Aðalfundur Verk Vest 18. maí kl.18.00 á Hótel Ísafirði

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2016 kl.18.00 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá.
Dagskrá:

Skýrsla stjórnar
Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2015
Tillögur um reglugerðabreytingar:
a) Sjúkrasjóðs
Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
Kosning siðanefndar skv. 28 gr. Starfs- og siðareglna félagins.
Önnur mál

Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt.
Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins á Ísafirði í síðasta lagi þriðjudaginn 17. maí 2016. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga