Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn föstudaginn 22. maí 2015 kl.17:30 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar
Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2014
Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs, sjúkrasjóðs og skoðunarmanna
Tillögur um reglugerðabreytingar:
a) Sjúkrasjóðs
b) Vinnudeilusjóðs
Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
Önnur mál
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt. Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins á Ísafirði í síðasta lagi fimmtudaginn 21. maí 2015. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga


