Afl í auðlindum Vestfjarða – ráðstefna um atvinnu og byggðamál á Vestfjörðum

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:”Times New Roman”;
mso-fareast-theme-font:minor-fareast;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;}

Afar fjölsóttur fundur um atvinnumál á Vestfjörðum var haldinn á
Ísafirði í dag. Fundinn sóttu um 150
manns víðsvegar að af Vestfjörðum. Að
fundinum stóðu verkalýðsfélög og atvinnufyrirtæki á svæðinu, til að vekja
athygli á alvarlegri byggðaþróun á Vestfjörðum.
Framsögumenn fjölluðu um tækifæri, aðstæður og samkeppnisskilyrði
atvinnufyrirtækja og leiðir til úrbóta. Ráðherrarnir
Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson, sátu fyrir svörum auk Guðna A
Jóhannessonar, orkumálastjóra sem var fulltrúi iðnaðarráðherra. Auk þeirra voru fulltrúar viðskiptabankanna,
Fjárfestingarsjóðs Íslands og Orkubús Vestfjarða.
Fram kom í máli innanríkisráðherra að hann hefði skipað starfshóp
undir forystu Guðmundar Kristjánssonar, hafnarstjóra á Ísafirði til þess að
koma fram með tillögur um strandsiglingar. Var því vel tekið af
fundarmönnum. Auk þess lýsti ráðherra
því yfir að mest væri þörfin fyrir samgönguframkvæmdir á Vestfjörðum og
Austfjörðum og ættu framkvæmdir þar að njóta forgangs að vegafé. Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, lýsti
því yfir að fyrirhugaðar breytingar á löggjöf í sjávarútvegi ættu að styrkja
stöðu strandveiða og að aukin byggðatenging og byggðafesta myndu styrkja
samkeppnisstöðu sjávarbyggða.
Flutt voru þrettán framsöguerindi um skiptinga skatttekna,
samgöngur, nýtingu auðlinda og aðgengi að fjármagni. Í máli Vífils Karlssonar, hagfræðings kom
fram að stjórnvöld væru að valda verulegu ójafnvægi í milli landssvæða með
ráðstöfun skattfjár til starfsemin hins opinbera. Telur Vífill á grundvelli rannsókna sem hann
hefur unnið, að landsbyggðin njóti í mun minna mæli ávinnings af ráðstöfun
skattfjár. Ályktanir, glærur og annað efni frá ráðstefnunni mun verða aðgengilegt hér á síðunni innan skamms,