ASÍ höfðar mál gegn LÍÚ vegna meintrar pólitískrar vinnustöðvunar

Þann 28. janúar var þingfest
í Félagsdómi, mál Alþýðusambands Íslands f.h. allra aðildarfélaga sinna gegn
Samtökum atvinnulífsins f.h. Landssambands íslenskra útvegsmanna.
ASÍ krefst þess að
viðurkennt verði að sú aðgerð LÍÚ, að beina því til félagsmanna sinna þann 2.
júní 2012 að halda skipum sínum ekki til veiða eftir sjómannadag þann 3. júní
2012 og beina þeim þess í stað til Reykjavíkurhafnar 7. júní 2012 í mótmælaskyni
gegn frumvörpum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til breytinga á lögum um
stjórn fiskveiða og veiðigjöld, hafi brotið gegn 2. tl. 17. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og
vinnudeilur.
Flestum ætti að vera í
fersku minni þau læti sem urðu við Reykjavíkurhöfn í kringum svokallaðan
„samstöðufund” útgerðarmanna sl. sumar. ASÍ gerir enga athugasemd við þann fund
og viðurkennir fúslega rétt útgerðarmanna sem og annarra að hafa skoðanir og
halda kröfum sínum á lofti. Ekki sé hins vegar ásættanlegt að nær allur
fiskiskipafloti Íslands hafi verið stöðvaður í því samhengi, enda að mati ASÍ
engin rök sem hníga til þess að LÍÚ hafi beint því til
sinna félaga með boði að ofan að veiðar skyldu stöðvaðar þar til eftir fundinn.
Að mati ASÍ hafi þessi stöðvun flotans falið í sér ólögmæta vinnustöðvun eins
og það hugtak er skilgreint í nefndum lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. ASÍ telur sig því knúið til að fá það
viðurkennt með dómi að LÍÚ hafi með hátterni sínu brotið gegn lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur enda hafi aðgerðir þeirra valdið almennu tjóni
fyrir samfélagið auk þess sem meginreglur um samskipti aðila á vinnumarkaði
hafi verið brotnar.
Að lokum má nefna að í 75
ára sögu gildandi laga um stéttarfélög og vinnudeilur hefur aldrei reynt á það
með beinum hætti hvort aðilar vinnumarkaðarins hafi misnotað sín lögákveðnu
úrræði til að vinna kröfum sínum í vinnudeilum framgang, í pólitískum tilgangi.
Má því ætla að dómur í málinu muni hafi talsvert fordæmisgildi. Dóms má vænta þegar
nær dregur vori.

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:”Times New Roman”;
mso-fareast-theme-font:minor-fareast;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;}