Ályktun stjórnar Verk Vest – 176 störf í uppnámi á Vestfjörðum

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga ræddi þá alvarlegu stöðu sem blasir við smærri fiskvinnslum og útgerðum á Vestfjörðum verði áform stjórnvalda um afnám línuívilnunar, uppbóta fyrir rækju- og skel ásamt skerðingum á byggðakvóta. Vesfirðingar standa enn og aftur frammi fyrir alvarlegum áskorunum í atvinnumálum og nú vegna alvarlegs inngrips Alþingis sem gæti orðið til þess að 176 […]

Ísafjarðarbíó 90 ára – elsta starfandi bíóhús á Íslandi

Alþýðuhús Ísfirðinga við Norðurveg var reist árin 1934-35 af félögum í Verkalýðsfélaginu Baldri og Sjómannafélagi Ísfirðinga, undir forystu Hannibals Valdimarssonar og Eiríks Einarssonar. Hannibal hafði áður haft forystu um byggingu félagsheimis í Súðavík, þar sem hann tók að sér forystu í félagi verkamanna og sjómanna. Hann flutti til Ísafjarðar árið 1931 og skipaði sér þegar […]

Ályktun miðstjórnar ASÍ um vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur þá ákvörðun peningastefnunefndar að lækka stýrivexti skref í rétta átt nú þegar skýr merki eru um kólnun í hagkerfinu. Peningalegt aðhald þrengir nú þegar verulega að skuldsettum heimilum, og getur ýtt undir hraðari kólnun hagkerfisins og stuðlað að auknu atvinnuleysi.   Samkvæmt spá Seðlabankans hægir verulega á hagvexti á þessu ári og […]

Gunnhildur Björk Elíasdóttir stjórnarmaður í Verkalýðsfélagi Vestfirðinnga látin

Í gær bárust Verkalýðsfélagi Vestfirðinga þær fréttir að Gunnhildur Björk Elíasdóttir stjórnarmaður í Verk Vest væri látin eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Gunnhildur Björk var frá Keldudal við Dýrafjörð en bjó síðar á Þingeyri. Hún hefur í fjölda mörg ár ljáð verkalýðshreyfingunni krafta sína, fyrst í Verkalýðsfélaginu Brynju á Þingeyri og eftir sameiningu félaganna á […]

Auglýst eftir framboðum til stjórnar og trúnaðarráðs Verk Vest

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2025 til 2027 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu. Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 17 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga […]

Opinn fundur Trúnaðarráðs og aðalfundur deilda

Opinn fundur Trúnaðarráðs og aðalfundur deilda annarra en sjómannadeildar verður haldinn mánudaginn 27. janúar klukkan 18:00 í fundarsal Verk Vest í Alþýðuhúsinu á Ísafirði (efsta hæð í bíóinu). Lögð verður fram tillaga kjörnefndar um fulltrúa í stjórn og trúnaðarstöður hjá félaginu. Kosið verður í deildarstjórnir í eftirfarandi deildum: Samkvæmt 4. gr. laga félagsins um skiptingu […]

Græni punkturinn tryggir ekki lágt vöru verð!

Mikill fjöldi vara sem merktar eru „á lágvöruverði“ í Kjörbúðinni eru í raun þriðjungi til helmingi dýrari en í Bónus eða Prís samkvæmt athugun verðlagseftirlitsins. Samkvæmt heimasíðu Kjörbúðarinnar á grænn punktur sem settur er á verðmiða í verslunum Kjörbúðarinnar að tryggja „varan sé á sambærilegu verði og í lágvöruverslun.“   Athugað var þann fyrsta nóvember hvort […]

Sjóðfélagafundur lífeyrissjóðsins Gildis 12. nóvember – BEINT STREYMI

Gildi-lífeyrissjóður stendur fyrir opnum sjóðfélaga- og fulltrúaráðsfundi þriðjudaginn 12. nóvember klukkan 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Staða og starfsemi Gildis á árinu 2024. Valkostir í séreignarsparnaði. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um stöðu og framtíð lífeyrissjóðsins. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi […]

Yfirlýsing stjórnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga vegna auglýsingar Ísafjarðarbæjar um stöðu bæjarverkstjóra

Yfirlýsing frá stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga vegna auglýsingar um starf Bæjarverkstjóra hjá Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar Ísafjarðarbær auglýsir á heimasíðu bæjarins eftir Bæjarverkstjóra til starfa á Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar en umsóknarfrestur rennur út 11. nóvember nk. Um er að ræða starf sem samkvæmt starfsmati Sambands íslenskra sveitarfélaga og samningsaðila krefst iðmenntunar. Af auglýsingunni má ráða að sveitarfélagið hefur ekki […]

Uppfærð heildarútgáfa kjarasamnings SGS og SA komin á kjaravefinn

Starfsgreinasambandið og Samtök atvinnulífsins skrifuðu undir nýjan kjarasamning í mars sl. vegna starfa á almennum vinnumarkaði og gildir sá samningur frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028. Að undanförnu hafa samningsaðilar unnið að því að uppfæra heildarkjarasamninginn m.t.t. þeirra atriða sem samið var um í mars og er þeirri vinnu nú lokið. Uppfærðan aðalkjarasamning má nálgast hér […]

Aðbúnaður, misneyting og vinnumansal

Fréttatilkynning í tilefni af fréttaskýringaþætti Kveiks í gærkvöldi þar sem fjallað var um aðbúnað verkafólks, misneytingu og vinnumansal. Undirrituð félög telja ástæðu til að árétta að mál af þeim toga sem fjallað var  um í þættinum varðandi launaþjófnað og slæman aðbúnað verkafólks koma reglulega á borð félaganna. Mikið er um alvarleg brot gagnvart verkafólki og er […]

Mótmælum á Austurvelli 10. september!

Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila landsins vegna síhækkandi verðs á nauðsynjavörum og húsnæðiskostnaðar. Ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna og rannsóknir sýna að fólk ber ekki von til að ástandið lagist í bráð. Þrátt fyrir að þetta hafi verið brýnasta viðfangsefni stjórnvalda síðustu […]

Nýr kjarasamningur við sveitarfélögin samþykkur með miklum meirihluta

Atkvæðagreiðlsu um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin lauk kl. 09:00 í morgun. Talningu atkvæða er lokið og var hann samþykktur með 84,27% atkvæða. Á kjörskrá hjá SGS voru 3972 manns 693 greiddu atkvæði, eða 17,45% Já sögðu 584 – eða 84,27% Nei sögðu 72 – eða 10,39% 37 tóku ekki afstöðu – eða 5,34% Nýr kjarasamningur […]

Kjarasamningur fyrir starfsfólk Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum samþykktur

Föstudaginn 5. júlí var undirritaður nýr kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðsfélags Vestfirðinga f.h. starfsfólks. Kjörfundur var haldinn í verksmiðjunni í gær hvar starfsfólk greiddi atkvæði um kjarasamninginn sem var samþykktur með 92,3% atkvæða. Nýr kjarasamningur gildir afturvikt frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028 með fjórum launahækkunum og þá síðustu 1. janúar 2027. 

Nýr kjarasamningur við Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum undirritaður

Á föstudaginn 5. júlí var undirritaður nýr kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðsfélags Vestfirðinga f.h. starfsfólks. Nýr samningur er í anda kjarasamnings SGS varðandi launaliðinn og eru launahækkanir því sambærilegar í krónum og prósentum. Kjarasamningurinn gildir afturvikt frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028 með fjórum launahækkunum og þá síðustu 1. janúar 2027.  Kjarasamningurinn […]

Nýr kjarasamningur við ríkið samþykktur yfirgnæfandi meirihluta

Atkvæðagreiðslu er lokið hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands, vegna nýs kjarasamnings SGS og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 25. júní síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 1.-8. júlí. Á kjörskrá voru 1.309 manns og var kjörsókn 22,84%. Já sögðu 87,96%, nei sögðu 7,69% og 4,35% tóku ekki afstöðu. Samningurinn var því samþykktur […]

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin er hafin

Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir hér með rafræna atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga SGS við Samband sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan hefst föstudaginn 5. júlí og stendur til kl. 09:00 mánudagsins 15. júlí 2024. Kosningarétt hefur allt félagsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga (Verk Vest) sem starfar samkvæmt kjarasamningi við Samband Sveitarfélaga. Ákvörðunin er ykkar, og eru allt félagsfólk hvatt til að kynna sér […]

Skrifað undir nýjan kjarasamning við sveitarfélögin – atkvæðagreiðsla hefst í dag

  Nýr samningur gildir afturvirkt frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 og verður kynntur félagsfólki á næstu dögum. Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst föstudaginn 5. júlí kl. 12:00 og lýkur mánudaginn 15. júlí kl. 09:00. Nálgast má frekari upplýsingar um samninginn og atkvæðagreiðsluna á upplýsingasíðu um samninginn sem opnuð verður um leið og […]

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Fjármálaráðuneytið er hafin

Kæri félagsmaður ! Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga SGS við Fjármálaráðuneytið Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir hér með rafræna atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga SGS við Fjármálaráðuneytið. Atkvæðagreiðslan er hafin og stendur til kl. 09:00 mánudagsins 8. júlí 2024. Kosningarétt hefur allt félagsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga (Verk Vest) sem starfar samkvæmt kjarasamningi við Fjármálaráðuneytið. Ákvörðunin er ykkar, og eru allt félagsfólk […]

Nýr kjarasamningur undirritaður fyrir félagsfólk Verk Vest hjá ríkisstofnum

18 aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands undirrituðu í gær nýjan kjarasamning við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóð og gildir samningurinn frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir þeir samningar sem ríkið hefur gengið frá að undanförnu. Samningnum fylgja nýjar launatöflur og munu laun hækka afturvirkt frá 1. apríl 2024. Samkvæmt launatöflu […]

Tungumálatöfrar 2024

Tungumálatöfrar er íslenskunámskeið með listsköpun og leik fyrir 5 – 9 ára börn sem fer framí grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri dagana 6. – 11. ágúst 2024. Námskeiðið er sérstaklegahugsað fyrir íslensk börn sem fæðst hafa eða flutt erlendis frá til Íslands og börn af erlendum upprunasem sest hafa að hér á landi, en námskeiðið er […]

Aðalfundur 2024 verður haldin í Bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirði

    Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 14. maí kl.18.00 í Bryggjusal Endiborgarhússins á Ísafirði. Félagsfólk er beðið að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is eða í síma 4565190. Einnig verður hægt að taka þátt gegnum Teams fjarfund. Boðið verður upp á kvöldverð í upphafi fundar.  Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins  Önnur mál  Þrír heppnir þátttakendur verða dregnir […]

Réttindin duttu ekki af himnum ofan!

Í dag er alþjóðlegur báráttudagur verkafólks, fólksins sem barist hefur fyrir þeim réttindum sem í dag, öllum þykja sjálfsögð og eðlilegur huti samfélagsins. Hinsvegar er til fólk sem finnst verkalýðsbarátta algjörlega tilgangslaus og sumir ganga svo langt að segja verkalýðsfélög óþörf! Ok, ekkert mál. Ef stéttarfélögin eru bæði tilgangslaus og óþörf viltu þá ekki sleppa […]

TR og lífeyrissjóðir semja um stafræna upplýsingamiðlun

Einfaldara umsóknarferli   Tryggingastofnun og lífeyrissjóðir hafa gengið frá samkomulagi um stafræna miðlun upplýsinga um lífeyrisréttindi viðskiptavina sem hafa sótt um lífeyrisgreiðslur til TR. Með þessu móti er hægt að fækka þeim skrefum sem umsækjandi, TR og lífeyrissjóðir þurfa að taka þegar sótt er um greiðslur frá TR. Þannig mun umsóknaferillinn verða einfaldari fyrir umsækjendur. Skilyrði […]

Endurskoðun launa félagsliða og starfsólks við veitur hjá sveitarfélögum

Endurskoðun launa Félagsliða og starfsólks við veitur hjá sveitarfélögum er lokið og gildir hækkun launa afturvirkt frá 1. janúar 2024. Laun félagsliða hækka mismunandi mikið eftir starfssviði og þá kemur inn nýtt starf sem heitir Félagsliði á heimili fyrir fatlað fólk (þyngri þjónusta) sem raðast í launaflokk 141. Þá er umtalsverð breyting hjá félagsliðum á […]

Samningar Samiðnar samþykktir

Atkvæðagreiðslum um kjarasamninga Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, sem undirritaðir voru í Karphúsinu 7. mars síðastliðinn, er lokið. Atkvæðagreiðslur stóðu yfir frá 12.-19. mars 2024. Samningarnir voru samþykktir með miklum meirihluta í öllum tilvikum og taka gildi frá 1. febrúar sl. Nýjar launatöflur Samiðnar sem gilda fyrir iðnaðarmenn í Verk Vest

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning verslunar- og skrifstofufólks er hafin

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning fer fram á verkvest.is. Innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Félagsfólk sem ekki getur kosið en telur sig eiga rétt á að taka þátt, vinsamlega sendið erindi til postur@verkvest.is eða í síma 456 5190. Félagsfólk sem ekki getur kosið rafrænt getur kosið á skrifstofum Verk Vest á opnunartíma.    Hægt er […]

Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga LÍV við SA

Kjörstjórn LÍV auglýsir hér með rafræna atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga LÍV við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslan hefst kl. 10:00 mánudaginn 18. mars 2024 og lýkur kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 21. mars 2024. Kosningarétt hefur allt félagsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga (Verk Vest) sem starfar samkvæmt þessum samningum. Kosning fer fram á verkvest.is. Innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða […]

Nýr kjarasamningur undirritaður fyrir verslunar- og skrifstofufólk í Verk Vest

Landsamband íslenskra verslunarmanna (LÍV) og Samtök atvinnulífsins hafa skrifað undir kjarasamning sem gildir til 31. janúar árið 2028. Samningurinn verður lagður fyrir félagsfólk í atkvæðagreiðslu sem fyrirhugað er að ljúki fimmtudaginn 21. mars næstkomandi. Atkvæðagreiðslan verður rafræn og verður auglýst sérstaklega.  Meginmarkmið samnings þessa er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta, auka kaupmátt launafólks, […]

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SGS er hafin

Félagsfólk í Verk Vest sem starfar skv. kjarasamningum SGS á almennum vinnumarkaði s.s. við fiskvinnslu, fiskeldi, ræstingu og á veitingastöðum eru hvatt til að að kynna sé nýja samninginn vel og nýta atkvæðisrétt sinn. Rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hófst kl.12.00 miðvikudaginn 13. mars og stendur til kl. 09:00 að morgni 20. mars. Starfsgreinasambandið (SGS) hefur útbúið […]