Tilboðsverð á gistingu í Flókalundi um sjómannadagshelgina

Sérstakt tilboðsverð á gistingu til félagsmanna um sjómannadagshelgina frá föstudegi til mánudags aðeins kr. 16.500 fyrir 3 nætur. Eingöngu bókanlegt á skrifstofum félagsins í síma 4565190.
Aðalfundur Verk Vest þriðjudaginn 5. júní

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 5. júní 2018 kl.18.00 á Hótel Ísafirði. Boðið verður upp á léttan málsverð í upphafi fundar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins Önnur mál Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt. Ársreikningar félagsins liggja […]
Komdu með til Glasgow !

Haustferð Verk Vest til Glasgow 8. – 11. nóvember Flogið frá Keflavík til Glasgow fimmtudaginn 8. nóvember og gist í þrjár nætur á Mercure Glasgow City Hotel. Flogið heim á sunnudag, 11. nóvember. Verð krónur 69.000 á mann í tveggja manna herbergi. Innifalið í verði, flug, ferðir til og frá flugvelli, gisting í þrjár nætur […]
Sumarferð Verk Vest á Snæfellsnes 9. – 10. júní

Sumarferð Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður í þetta sinn á Snæfellsnes og í Borgarfjörð, dagana 9. – 10. júní, ef næg þátttaka fæst. Lagt verður af stað frá Landsbankaplaninu á Ísafirði laugardaginn 9. júní og ekið sem leið liggur vestur yfir heiðar að Brjánslæk á Barðaströnd. Hádegisverður snæddur að gömlum sið úti í nátturunni. Siglt með ferjunni […]
Fátækt, misskipting, réttindabarátta innflytjenda og samstaða rauði þráðurinn í ræðum dagsins á Ísafirði

Baráttufundir verkalýðsfélaganna á Ísafirði og Suðureyri tókust mjög vel og var óvenju góð mæting á báðum stöðum. Á Ísafirði var gengið frá Alþýðuhúsinu með Lúðrasveit Tónlistaskólans í broddi fylkingar niður í Edinborgarhúsið þar sem baráttufundur stéttarfélaganna var haldinn. Húsfyllir var á baráttufundunum í Edinborg og í Félagsheimilinu á Suðureyri og var frábært að sjá hve […]
1. maí dagskrá stéttarfélaganna

Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna. Union members! Show solidarity and take part in the parade. Wszyscy bierzemy udzial w pochodzie zwiazków zawodowych. Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14.00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi. Dagskráin í Edinborgarhúsinu: Kynnir verður Kolbrún Sverrisdóttir. Lúðrasveit Tónlistarskóla […]
Laun hækka þann 1. maí

Þann 1. maí næstkomandi hækka laun almennt um 3% samkvæmt kjarasamningum Verk Vest á aðild að. Lágmarkstekjutrygging fyrir dagvinnulaun hækkar meira eða sem nemur 7% og verður lágmarkstekjutrygging fyrir 100% starf 300 þúsund krónur á mánuði. Félagsmenn Verk Vest eru hvattir til að fylgjast sérstaklega með hvort laun fyrir dagvinnu, bónusar og álagsgreiðslur þar með […]
Er virkilega ekkert svigrúm til að hækka laun á Íslandi ?

„Það er dýrt að hækka laun á Íslandi“. Þannig hefst pistill Ástu S. Fjeldsted framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands og má jafnvel skilja inngangin sem svo að íslenskt atvinnulíf sé komið á heljarþröm. Megin þungi pistilsins er á launatengd gjöld og að fríðindi starfsmanna valdi því hversu erfitt og dýrt það sé að hækka laun. Þannig heldur […]
Lokað vegna námskeiðs

Allar skrifstofur Verk Vest verða lokaðar miðvikudaginn 18. apríl frá kl.8.00 – 10.00 vegna námskeiðs hjá starfsfólki.
Fyrstu úthlutun orlofshúsa lokið

Nú er lokið fyrstu úthlutun orlofshúsa og ættu nú allir umsækendur að hafa fengið tölvupóst um hvort þeir fengu úthlutað húsi eða ekki. Þeir félagsmenn sem fengu úthlutað hafa til 17. apríl til þess að ganga frá greiðslu. Þeir sem ætla ekki að nýta sér vikuna sem þeir fengu úthlutað eru hvattir til þess að […]
Fræðslu- og samráðsdagur bílstjóra og tækjastjórnenda

Starfsgreinasambandið stendur fyrir fræðslu- og samráðsdegi fyrir bílstjóra og tækjastjórnendur þann 18. Apríl næstkomandi kl. 10-16:30 hér á höfuðborgarsvæðinu (nánari staðsetning síðar). Hugmyndin er að trúnaðarmenn eða aðrir fulltrúar stéttarinnar eigi sviðið þennan dag og fjalli um kjör, aðbúnað og aðstæður sínar. Uppbyggingin er svipuð og hjá félagsliðunu. Drög að dagskrá eru svona: Kl. 10:00 […]
Ögrun við launafólk – ályktun frá Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega þeirri sjálftöku launa sem á sér stað meðal stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum. Allt frá því að kjararáð gaf tóninn með hækkun launa til þingmanna og forstöðumanna stofnana hefur orðið til hyldýpi milli þessara aðila og launafólks. Þrátt fyrir að ákvörðunum kjararáðs hafi verið mótmælt harðlega og þrátt fyrir að […]
Opnað fyrir umsóknir um orlofshús Verk Vest fyrir sumarið 2018

Á næstu dögum munu félagsmenn fá bréf um sumarúthlutanir. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins http://orlof.is/verkvest/ og sótt um með því að velja: Sumar. Félagið á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2018. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bjarnaborg á Suðureyri (hluta af tímabilinu) Einarsstaðir við Eyjólfsstaðaskóg. Flókalundur […]
Skrifstofur Verk Vest lokaðar vegna starfs- og fræðsludaga – Zamkniete

Skrifstofur Verk Vest á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði verða lokaðar föstudaginn 16. mars. Félagsmönnum er bent á að mál sem þarfnast úrlausnar fyrir föstudag að leita sem fyrst til félagsins. Einnig er þeim sem eiga eftir að sækja lykla, kaupa flugmiða eða sækja aðra þjónustu ljúka þeim málum fyrir föstudag. Biuro Zwiazkow Zawodowych w Isafjordzie […]
Kjaramálafundi á Patreksfirði AFLÝST vegna veðurs

Kjaramálafundi Verk Vest sem halda átti í dag hefur verið AFLÝST vegna veðurs og ófærðar.
Kjaramálafundir Verk Vest 20 – 22.feb

Verkalýðsfélag Vestfirðinga verður með kjaramálafundi á eftirtöldum stöðum dagana 20. – 22. febrúar: Þriðjudaginn 20. febrúar kl.18:00 í Blábankanum á Þingeyri Miðvikudaginn 21. febrúar kl.18:00 í Félagsheimilinu á Patreksfirði Fimmtudaginn 22. febrúar kl.13:00 í Þörungaverksmiðjunni Reykhólum og kl.15.30 í Hólmadrangi á Hólmavík Formaður og varaformaður Verk Vest munu fara yfir stöðuna í kjaramálum í aðdraganda […]
Laun ríkisstarfsmanna sem eru félagsmenn hjá Verk Vest hækka afturvirkt um 1,8%

Ríkisstarfsmenn sem eru í aðildarfélögum ASÍ, þ.e. félagsmenn RSÍ, Samiðnar, VM, SGS og félaganna í Flóabandalaginu fá nú í fyrsta sinn svokallaða launaskriðstryggingu sem gefur að meðaltali 1,8% hækkun á laun afturvirkt frá 1. janúar 2017. Þetta er gert á grundvelli samnings sem ASÍ gerði við ríkið 21. desember 2017 og byggir á rammasamkomulagi aðila […]
Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) blæs til átaks gegn kynbundnu ofbeldi

Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) telur að 35% kvenna yfir 15 ára aldri, alls 818 milljónir kvenna í heiminum öllum, hafi upplifað kynferðislegt ofbeldi, heimilisofbeldi eða ofbeldi á vinnustað. Við slíkt verður ekki unað og því hefur Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) blásið til 23 daga átaks til að vekja athygli á málinu. Kynbundið ofbeldi er enn í dag […]
Opinn félagsfundur trúnaðarráðs Verk Vest 15. febrúar

Verk Vest auglýsir opinn félagsfund trúnaðarráðs Verk Vest fimmtudaginn 15. febrúar kl.18.00 á 4 hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. Endurskoðun kjarasamninga er eitt heitasta umræðuefnið innan veraklýðshreifingarinnar og framundan ákvörðun um hvort segja skuli upp kjarasamningum. Gestir fundarins vera þau Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Drífa Snædal, framkvæmdastýra Starfsgreinasambands Íslands. En þau ætla fara […]
Skipulags- og starfsmannabreytingar hjá Verk Vest

Félagsmenn okkar og aðrir viðskiptavinir verða varir við ýmsar breytingar hjá Verk Vest nú um mánaðarmót. Fyrst er að nefna að ráðinn hefur verið til Verk Vest varaformaður félagsins, Bergvin Eyþórsson, og mun hann gegna starfi skrifstofustjóra ásamt því að sinna vinnustaðaeftirliti og vinnu við kjara- og réttindamál. Bergvin er fjölskyldumaður búsettur í Hnífsdal, og […]
Opnað fyrir páskaumsóknir 1. febrúar

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir páskavikuna 2018 fimmtudaginn 1. febrúar kl. 8:00. Orlofshúsin sem eru í úthlutun eru: Bjarnaborg, íbúðir í Reykjavík og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Ekki er hægt að sækja um ákveðin hús/íbúð að undanskilinni stóru íbúðinni í Reykjavík. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og […]
Vasadagbók Verk Vest fyrir 2018 loksins komin!

Vasadagbók Verk Vest fyrir árið 2018 er loksins lent og er hægt að nálgast bókina á skrifstofum félagsins á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Þeir félagsmenn sem ekki geta nálgast vasadagbókina á þessum stöðum geta haft samband við skrifstofur félagsins og fengið dagbókina senda til sín í pósti.
OPINN KYNNINGARFUNDUR Á DIPLÓMANÁMI Í VIÐSKIPTAFRÆÐI OG VERSLUNARSTJÓRNUN

Nú er að fara af stað nýtt Diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun sem byggir á ítarlegri greiningu á starfi verslunarstjóra. Námið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Háskólans í Reykjavík og starfsmenntasjóðanna SVS og SV. Í tilefni þessa sóknartækifæris fyrir verslunarstjóra hefur stjórn SVS ákveðið að niðurgreiða skólagjöld fyrir nemendur í fyrsta hópnum um 50.000 kr. […]
Skattbreytingar auka ráðstöfunartekjur hátekjuhópa um tugi þúsunda

Um áramót tóku gildi skattbreytingar sem munu skila hátekjuhópum sexfalt meira en lág- og millitekjufólki. Hækkaði persónuafsláttur til samræmis við hækkun á verðlagi undanfarið ár en efri tekjumörk hækkuðu til samræmis við launavísitölu, eins og lög gera ráð fyrir. Alþýðusambandið hefur ítrekað vakið athygli á þessu ósamræmi í framkvæmd skattkerfisins, sem leiðir kerfisbundið til aukins […]
Vextir sjóðfélagalána hjá lífeyrissjóðnum Gildi lækka

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að lækka vexti á lánum til sjóðfélaga frá og með 5. janúar 2018. Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,25% í 3,05% og verðtryggðra viðbótarlána lækka úr 4,00% í 3,80%. Fastir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,60% í 3,55% og verðtryggðra viðbótarlána úr 4,35% í 4,30%. Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána lækka […]
Einstaklingsstyrkir fræðslusjóða Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt hækka frá áramótum

Starfsfræðslusjóðirnir Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt hafa ákveðið að hækka hámark einstaklingsstyrkja frá og með 1. janúar 2018. Hámarksgreiðsla á ári fer úr kr. 75.000,- fyrir almennt nám í kr. 100.000,- Þriggja ára uppsafnaður styrkur hækkar úr kr. 225.000,- í kr. 300.000,- fyrir eitt samfellt nám Hámarksstyrkur vegna námskeiða sem falla undir frístunda/tómstundanámskeið munu hækka […]
Jólablað Verk Vest

Jólablað Verk Vest fer í dreifingu í vikunni ætti að berast inn á heimili á Vestfjörðum á allra næstu dögum. Blaðið er að venju stútfullt af áhugaverðum fréttum úr félagsstarfinu og upplýsingum um kjaramál og vinnustaðaeftirlit. Blaðinu er dreift inn á öll heimili á Vestfjörðum og verður rafrænt eintak aðgegngilegt hér á heimasíðunni innan skamms.
Veiðikortið 2018

Veiðikortið 2018 er komið út. Hefð er fyrir því að kortið komi út fyrir jólin svo að hægt sé að lauma því í jólapakkana. Veiðikortið er frábær valkostur sem hvetur til útivistar í náttúru Íslands. Korthafar geta veitt nánast ótakmarkað á 34 vatnasvæðum vítt og breitt um landið auk þess sem börn yngri en 14 […]
Desemberuppbót 2017

Desemberuppbót skal greidd ekki síðar en 15. desember, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira. Full desemberuppbót 2017 er sem hér segir: Verkafólk, starfsmenn […]
Fræðsludagar félagsliða

Miðvikudaginn 22. nóvember næstkomandi verður hinn árlegi fræðsludagur félagsliða haldinn á Grand Hótel Reykjavík. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði, en viðburðurinn er opinn félagsliðum um allt land óháð stéttarfélagi. Nauðsynlegt er að skrá sig hjá Drífu Snædal (drifa@sgs.is) fyrir 15. nóvember. Félagsliðar um allt land eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að […]