Aðgerðaráætlun Verk Vest gegn einelti, ofbeldi, kynbundinni og kynferðislegri áreitni

Á fundi stjórnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga 6. nóvember var samþykkt að félagið endurnýjaði gildandi aðgerðaráætlun sem nýst gæti stjórn, trúnaðarráði og starfsfólki félagsins í þeirra vinnu og auka færni starfsfólks félagsins til að aðstoða atvinnurekendur til að innleiða slíkt á vinnustöðum. Aðgerðaráætlunin inniheldur einnig starfsmannasáttmála Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem er hugsaður sem ein helsta forvörn gegn einelti […]
Nýtt tímabil orlofsbókana opnar 1.nóvember

Nýtt tímabil orlofsbókana verður opnað kl.8.00 miðvikudaginn 1. nóvember. Opnað verður fyrir tímabilið 3. janúar – 18. maí 2018 að páskahelgi undanskilinni. Páskaúthlutun verður auglýst síðar.
Lyftaranámskeið á Ísafirði

Vinnueftirlitið heldur námskeið í stjórn og meðferð GAFFALLYFTARA. Námskeiðið verður haldið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða Suðurgötu 12 á Ísafirði. Þetta er tveggja daga námskeið og verður kennt 26. og 27. október 2017. Námskeiðið verður eingögnu haldið ef næg þátttaka fæst. Námskeiðsgjald kr 24.000 Rétt er að benda félagsmönnum í Verk Vest á að námskeiðið er styrkhæft […]
Opinn fundur trúnaðarráðs Verk Vest

Opinn fundur trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn á Hótel Ísafirði mánudaginn 23. október kl.18.30. Boðið verður upp á ekta íslenska kjötsúpu. Dagskrá. Skattbyrði launafólks 1998 – 2016. Henný Hinz deildarstjóri hagfræðideildar ASÍ kynnir helstu niðurstöður og ræðir innihald skýrslunnar. Vinnustaðaeftirlit í samstarfi stéttarfélaga á Vestfjörðum og Vesturlandi – Einn réttur ekkert svindl! María Lóa Friðjónsdóttir […]
Verk Vest og Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarf á Hómavík

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur samþykkt að fara í samstarf við Fræðslumiðstöð Vestfjarða með ráðningu verkefnastjóra á Hólmavík. Til verkefnisins hefur verið ráðin Ingibjörg Benediktsdóttir á Hómavík, en Ingibjörg er Strandamaður í húð og hár og því vel tengd og kynnt á svæðinu. Ingibjörg mun sjá um fræðsluverkefni félagsins ásamt samskiptum við starfsfræðslusjóði sem félagið er […]
Úthlutun íbúða/sumarhúsa jól og áramót 2017 – Ný verðskrá

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir jól og áramót 2017 mánudaginn 9. október kl. 8:00. Orlofshúsin eru sem eru í úthlutun eru: Bjarnaborg, íbúðir í Reykjavík og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Ekki er hægt að sækja um ákveðin hús/íbúð að undanskilinni stóru íbúðinni í Reykjavík. Félagsmenn geta farið inn á […]
Lokað á Patreksfirði 3. -5.október

Vegna trúnaðarmannanámskeiðs er skrifstofa okkar á Patreksfirði lokuð 3. – 5. október. Opnar aftur kl.10. föstudaginn 6. október.
Mikil aukning vinnuslysa eru gróf mannréttindabrot!

Ört fjölgandi dauðaslysum á vinnumarkaði sem rekja má til slælegs aðbúnaðar eða ónógra öryggisreglna virðist ekki einskorðað við íslenskan vinnumarkað. Þessar sláandi staðreyndir voru ræddar á málþingi ASÍ „Komum heil heim“. Hjá máli frummælendum málþingsins voru raktar afleiðingar af auknum kröfum atvinnurekenda að afsláttur sé gefin af vinnuverndar- og öryggismálum á vinnustöðum. Fall úr hæð […]
Hækkun á styrkjum í starfsmenntasjóðum verslunarmanna

Á stjórnarfundi Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks í september var samþykkt hækkun á styrkjum til félagsmanna sem tekur gildi næstkomandi áramót. Veittur er hámarksstyrkur allt að 130.000 kr. á ári.90% af námi/starfstengdu námskeiðsgjaldi/ráðstefnugjaldi – hámark 130 þúsund.50% af tómstund – hámark 30 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).50% af ferðastyrk – hámark 40 þúsund (dregst frá hámarksstyrk).Uppsöfnun einstaklinga […]
Komum heil heim úr vinnu!

Málþing ASÍ um vinnuvernd Hvenær: 29. september kl. 9:00-12:00 Hvar: Icelandair hótel Natura Fyrir hverja: Forystufólk í verkalýðshreyfingunni og annað áhugafólki um vinnuvernd. Málþingið er öllum opið. Dagskrá: 9:00 Setning Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ 9:10 Aukin samfélagsleg vitund á vinnuvernd sem mannréttindum er nauðsyn Kristinn Tómasson 9:50 Work environment, safety and Health in Norway – […]
Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum afhent Héraðsskjalasafninu, Ísafirði

Skjalasafn verkalýðshreyfingarinnar á Vestfjörðum var formlega afhent Héraðsskjalsafninu Ísafirði við athöfn í Baldurshúsinu, Pólgötu 2 Ísafirði, föstudaginn 22. september. Skjalasafnið telur 524 skjalaöskjur sem skráðar eru í 34 deildir verkalýðsfélaga, stofnana, fyrirtækja og samtaka sem félögunum tengjast. Safnið geymir skjöl Alþýðusambands Vestfjarða frá stofnun þess 1927 og einstakra félaga sem störfuðu innan þess, allt til stofnunar Verkalýðsfélags Vestfirðinga á árunum 2002-2005. Afhending safnsins er stærsta einstaka afhending sem Héraðsskjalsafninu hefur verið færð og einstök að því leyti að safnið er frágengið, flokkað og skráð þannig að það er tilbúið til notkunar fyrir fræðimenn og aðra áhugasama.
Formleg opnun Blábankans á Þingeyri

Blábankinn nýsköpunar- og þjónustumiðstöð opnaði formlega á Þingeyri 20. september. Verkalýðsfélag Vestfirðinga verður samstarfsaðili Blábankans, en félagið á eingarhlut í húsnæðinu á móti Landsbankanum. Samfélagsverkefnið Blábankinn stendur og fellur með íbúunum á þingeyri og virkni þeirra í þátttöku með verkefnum Blábankans. Til stendur að vera með fasta opnunartíma frá mánudögum til fimmtudags frá kl.12 – […]
Mikilvæg hagsmunamál rædd á borgarafundi Vestfirðinga á Ísafirði

Sveitarfélögin á Vestfjörðum, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð, Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Árneshreppur, boða ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga til borgarafundar í íþróttahúsinu á Ísafirði nk. sunnudag 24. september kl. 14. Á fundinum verða rædd ein mikilvægustu hagsmunamál fjórðungsins um þessar mundir sem snúast öll um mikilvæga innviðauppbyggingu á Vestfjörðum. Meðal annars verður gerð […]
Lokað á Patreksfirði 12 – 15. september

Vegna náms- og kynnisferðar starfsmanns okkar á Patreksfirði verður skrifstofa félagsins á Patreksfirði lokuð dagana 12. -15. september að báðum dögunum meðtöldum. Skrifstofan á Ísafirði mun að sjálfsögðu reyna leysa eins vel úr málum og hægt er meðan á lokun stendur. Starfsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga
Ályktun um atvinnu- og byggðamál

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga, krefst þess að stjórnvöld gefi íbúum Vestfjarða skýr svör og höggvi nú þegar á þá hnúta sem standa atvinnuuppbyggingu í fjórðungnum fyrir þrifum. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga gagnrýnir harðlega hugmyndir um að laxeldi við Ísafjarðardjúp verði slegið á frest eða laxeldi settir þvílíkir afarkostir að ekki verður unt að hefja raunhæfa uppbyggingu laxeldis […]
Félagsblað Verk Vest komið í dreifingu

Félagsblaðið okkar er komið úr prentun og fór í póstdreifingu inn á öll heimili á félagssvæðinu í byrjun vikunnar. Flestir okkar félagsmanna ættu því að vera komnir með blaðið í hendur. Því miður læddust tvær mjög meinlegar villur inn í blaðið er varðar orlofskosti félagsins. Í auglýsingu með útilegukortum í blaðinu er gefið upp gamalt […]
Hækkun iðgjalds 1. júlí – val um ráðstöfun viðbótariðgjalds

Allt viðbótariðgjaldið fer í samtryggingardeild nema sjóðfélagi óski eftir að því verði ráðstafað í tilgreinda séreign. Iðgjaldið greiðist til þess sjóðs sem sjóðfélagi á aðild að. Mikilvægt er að sjóðfélagar geri sér grein fyrir að réttindi í samtryggingardeild geta falið í sér verðmæt tryggingaréttindi. Með ráðstöfun iðgjalds í tilgreinda séreign ávinnst ekki, hvað þau iðgjöld […]
Orðsending til ríkisstjórnar Íslands frá Þingeyrarakademíunni

Formaður Verk Vest hefur fengið góðfúslegt leifi Þingeyrarakademíunnar til að birta eftirfarandi orðsendingu til ríkistjórnar Íslands. Þingeyrarakademían er stór hópur karla og kvenna sem stundar morgunsund og heita pottinn á Þingeyri. Þar eru ýmiskonar innanlands- og heimsvandamál rædd og jafnvel leyst. Þingeyrarakademían kemur til dyranna eins og hún er klædd. Þingeyrarakademían samþykkti 3. júlí 2017 […]
Aukið mótframlag 1. júlí – val um ráðstöfun iðgjalds

Hagur sjóðfélaga vænkast um næstu mánaðamót þegar framlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð þeirra hækkar um 1,5%. Þetta er önnur hækkun af þremur til jöfnunar lífeyrisréttinda sem samið var um í kjarasamningum ASÍ og SA í janúar 2016. Til að framfylgja ákvæðum kjarasamningsins var samþykktum Gildis-lífeyrissjóðs breytt á aukaársfundi í gær. Allt viðbótariðgjaldið fer í samtryggingardeild nema […]
Lokað á Patreksfirði vegna sumarleyfis 15 – 26. júní

Eins og fram hefur komið hér á síðunni tókst ekki að útvega starfsfólk til sumarafleysinga fyrir Verk Vest á Patreksfirði verður skrifstofa félagsins á Patreksfirði lokuð dagana 15 – 26. júní vegna sumarleyfis. Búast má við að félagið þurfi að grípa þessa úrræðis aftur í júlímánuði og síðan eina viku í ágúst takist ekki að […]
Lokað kl.12:00 á föstudag

Vegna sumarleifa og ýmissa annara ástæðna verður skrifstofa VerkVest á Ísafirði lokuð frá kl. 12:00 föstudaginn 9. júní. Þeir sem eiga eftir að ná í lykla eða kaupa miða í göng þurfa að koma við tímanlega. Gleðilega sjómannadagshelgi. Starfsfólk skrifstofu
Nýtt félagsskírteini og afsláttarkort

Þessa dagana er nýtt félagsskírteini að berast til félagsmanna. Skírteinið er jafnframt afsláttarkort og rafrænt auðkenniskort. Kortið er unnið í samstarfi við Íslandskortið. Með útgáfu rafrænna skírteina opnast fyrir ótal möguleika eins og að nýta kortið til auðkenningar á ýmsum þjónustum sem verða kynntar eftir því sem notkunin eykst. Það sem nú þegar er í […]
Lokað á Patreksfirði vegna sumarleyfis

Þar sem ekki tókst að útvega starfsfólk til sumarafleysinga fyrir Verk Vest á Patreksfirði verður skrifstofa félagsins á Patreksfirði lokuð dagana 6 – 9. júní vegna sumarleyfis. Búast má við að félagið þurfi að grípa þessa úrræðis aftur í júnímánuði og síðan eina viku í ágúst takist ekki að útvega starfsfólk til afleysinga. Þær dagsetningar […]
LOKAÐ VEGNA FLUTNINGA !

Skrifstofa félagsins á Ísafirði verður lokuð föstudaginn 19. maí vegna flutninga í nýtt húsnæði. Skrifstofan okkar á Patreksfirði verður opin og mun sjá um símsvörun ásamt því að leysa úr fyrirspurnum. Starfsfólk skirfstofunnar hvetur alla þá sem eiga eftir að sækja lykla, kaupa miða eða annað sem ekki er hægt að bjarga sér með á […]
Aðalfundur Verk Vest 17. maí

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn miðvikudaginn 17. maí 2017 kl.18.00 á Hótel Ísafirði. Boðið verður upp á léttan málsverð í upphafi fundar. Dagskrá: Skýrsla stjórnar Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2016 Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs og skoðunarmanna Tillaga um lagabreytingar Tillögur um reglugerðabreytingar: a) Sjúkrasjóðs Kosning framkvæmdastjórnar sjúkrasjóðs Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð Lögð fram […]
Breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að lækka vexti á bæði verðtryggðum og óverðtryggðum sjóðfélagalánum með breytilegum vöxtum, um 0,10 prósentustig frá og með 15. maí 2017. Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,45% í 3,35% og verðtryggðra viðbótarlána lækka úr 4,20% í 4,10%. Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána lækka úr 6,15% í 6,05% og óverðtryggðra viðbótarlána úr […]
Muna að greiða orlofshúsin.

Síðasti greiðsludagur þeirra sem fengu úthlutað orlofshúsi er 4. maí. Minnum félagsmenn á að greiða á orlofshúsasíðunni eða hafa samband við skrifstofu í síma 4565190. Þann 5. maí verða ógreidd hús á lausu fyrir þá félagsmenn sem ekki fengu úthlutun. Þann 8. mai opnar svo á bókanir fyrir alla félagsmenn.
AUGLÝSING UM KOSNINGU TIL STJÓRNAR VERKALÝÐSFÉLAGS VESTFIRÐINGA TIL TVEGGJA ÁRA

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2017 til 2019 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu. Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga […]
Bindum enda á græðgi fyrirtækjanna – heimurinn þarfnast hærri launa

Fyrsta maí yfirlýsing Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) Árangurinn, sem margar kynslóðir starfandi stétta hafa skilað og fagnað er fyrsta maí, sætir kerfisbundnum og linnulausum atlögum, þar sem valdamikil fjölþjóðleg fyrirtæki og fáeinir gríðarlega auðugir einstaklingar ráða lögum og lofum um hagkerfi heimsins. Stjórnvöld hörfa hvarvetna, eru leiksoppar þeirra ofurríku og bregðast skyldu sinni að tryggja mannsæmandi […]
Verkalýðshreyfingin og stjórnir lífeyrissjóða fengu brýningu á Ísafirði

Ræðumenn dagsins á Ísafirði sendu verkalýðsforystunni og stjórnum lífeyrissjóða brýningu á baráttufundi í tilefni af 1. maí hátíðarhöldum stéttarfélaganna á Ísafirði. Bergvin Eyþórsson sjómaður og trúnaðarmaður hjá Verk Vest var aðalræðumaður dagsins og gerði yfirskrift dagsins að umræðuefni. Þar hvatti hann stjórnir lífeyrissjóða til að byggja íbúðir á hagstæðum kjörum fyrir sjóðfélaga. Einnig gerði Bergvin […]