1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks

Fyrsta maí komum við saman til að fagna alþjóðlegum baráttudegi Verkafólks. Samstaða launafólks hefur gert verkalýðshreyfinguna að mikilvægasta aflinu í baráttunni fyrir bættum kjörum og réttindum á íslenskum vinnumarkaði. Þess vegna er nauðsynlegt að við minnumst baráttunnar. Minnumst þeirra fórna sem fólkið okkar hefur fært og þess mikila árangurs af starfi verkafólks sem við njótum […]
Hátíðarhöldi á Vestfjörðum 1. maí 2017

Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu. Á Vestfjörðum verða hátíðarhöld með dagskrá á eftirtöldum stöðum. Ísafjörður Kröfugangan leggur af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 14.00 Dagskráin í Edinborgarhúsi: Lúðrasveit tónlistarskólans: Stjórnandi Madis Maekalle Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson sjómaður Söngatriði: Sigrún Pálmadóttir, undirleikur Beata Joó Pistill: […]
Helstu launahækkanir hjá Verk Vest 1. maí

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði: Þann 1. maí hækka laun og launatengdir liðir um 4,5%. Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf skal vera 280.000 frá 1. maí 2017. Starfsmenn fá 46.500 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf. Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar í 10% 1. júlí 2017. […]
Úthlutun orlofshúsa

Nú er lokið fyrstu úthlutun orlofshúsa og ættu nú allir umsækendur að hafa fengið tölvupóst um hvort þeir fengu úthlutað húsi eða ekki. Þeir félagsmenn sem fengu úthlutað hafa tíma til 4. maí til þess að ganga frá greiðslu. Þeir sem hyggjast ekki nýta sér vikuna sem þeir fengu úthlutað eru hvattir til þess að […]
4. apríl – Síðasti dagur umsókna um sumarhús.

Við viljum minna félagsmenn okkar á að í dag er síðasti dagur til þess að sækja um og vera með í fyrstu úthlutun. Skráning á http://orlof.is/verkvest/ – Umsókn 2017. Skrifstofur VerkVest eru opnar til kl. 16:00 og hægt að hafa samband í síma: 456 5190.
Innköllun aflaheimilda og arðinn til fiskverkafólks

„Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir stjórnvöld ábyrg fyrir fjöldaatvinnuleysi fiskverkafólks verði hótanir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) um útflutning starfa í fiskvinnslu að veruleika. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi líta á óveiddan fisk sem einkaeign sem þeir hafi heimild til að ráðstafa að vild og véla þannig með lífsviðurværi heilu byggðarlaganna. Hótanir forsvarsmanna fyrirtækja í sjávarútvegi um […]
Miðstjórn ASÍ ályktar um hroka og skort á samfélagslegri ábyrgð forsvarsmanna sjávarútvegsfyrirtækja

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir þungum áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun á störfum í fiskvinnslu víða um land. Hótanir forsvarsmanna fyrirtækja í sjávarútvegi um flutning á störfum fiskverkafólks úr landi lýsa miklum hroka og skorti á samfélagslegri ábyrgð. Slíkar hótanir kalla á endurskoðun sjávarútvegsstefnunnar þar sem tekið yrði sérstaklega á þessum vanda til að tryggja betur atvinnuöryggi […]
Umsóknir um orlofshús 2017

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir sumarið 2017. Nú er í fyrsta skipti hægt að sækja um á orlofsvef félagsins: http://orlof.is/verkvest/ umsókn 2017. Áfram verður þó hægt að sækja um á orlofsumsóknarblaði sem finna má á vef félagsins: http://verkvest.is/eydublod/ og skila inn á skrifstofu Verk Vest á Ísafirði eða Patreksfirði. Umsóknir […]
Umsjónarmaður orlofsbyggðarinnar í Flókalundi

Enn er tækifæri til að senda inn umsóknir um starf umsjónarmanns í Flókalundi sem stjórn orlofsbyggðarinnar í Flókalundi auglýsir eftir. En óskað eftir að ráða umsjónarmann byggðarinnar í fullt starf frá og með 1. maí 2017 – 30. september 2017. Stjórnin leitar eftir handlögnum einstaklingi eða samhentum hjónum sem hægt er að fela ýmis minniháttar […]
Petra Hólmgrímsdóttir er nýr ráðgjafi Virk á Vestfjörðum

Petra Hólmgrímsdóttir hefur verið valin hæfust úr hópi sjö umsækjenda um stöðu starfsendurhæfingarráðgjafa Virk hjá stéttarfélögunum á Vestfjörðum. Petra tekur formlega við keflinu af Fanney Pálsdóttur þann 1. júní næst komandi, en þá mun Fanney fara í árs leyfi frá störfum. Petra er aðfluttur Ísfirðingur, sem kann vel við sig á landsbyggðinni að eigin sögn. […]
„Góðar samgöngur eru lífæð hverrar byggðar“

Verkalýðsfélag Vestfirðinga leggur sérstaka áherslu á að tengja norður- og suðursvæði Vestfjarða í einni framkvæmd með jarðgöngum og vegabótum. Á meðan ástand vegamála á svæðinu er svo dapurlegt sem raun ber vitni, er einfaldlega ekki hægt að bjóða íbúum og atvinnulífi á suðurfjörðum Vestfjarða upp á að standa í eðlilegri samkeppni við aðra landshluta vegna […]
Kjarasamningum verður ekki sagt upp

Niðurstaða forsendunefndar ASÍ og SA vegna endurskoðunar kjarasamninga er að tvær af þremur forsendum standast en ein gerir það ekki. Sú snýst um launaþróun annarra hópa. Samninganefnd ASÍ hefur engu að síður, m.a. að undangengnum fundarhöldum í baklandi stéttarfélaganna, ákveðið að segja ekki upp núgildandi kjarasamningi. Forsendurnar sem voru til skoðunar eru þessar: Fjármögnun stjórnvalda […]
Aðeins um þátttöku í atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna

Eftir atkvæðagreiðsluna um kjarasamninginn sem undirritaður var milli samtaka sjómanna og SFS þann 18. febrúar síðastliðinn hefur verið nokkur umræða um þátttökuna í atkvæðagreiðslunni. Sumir halda því fram að þátttakan hafi verið léleg þar sem 53,7% þeirra sem voru á kjörskrá tók þátt í kosningunni. Tíminn sem menn höfðu til að greiða atkvæði var stuttur, […]
Endurnýjaður samningur í höfn – sjómenn höfnuðu aðkomu ráðherra

Mjög erfiðri samningalotu sjómanna og útgerðarmanna lauk með undirritun kjarasamninga kl.hálf þrjú aðfaranótt laugardags. Sjómenn áttu samtal við ráðherra um viðurkenningu á dagpeningagreiðslum þannig að sjómenn sætu við sama borð og aðrar stéttir. áherslur sjómanna mættu ekki skilningi ríkisvaldsins. Samningamenn sjómanna höfnuðu því aðkomu ríkisvaldsins enda náði tillaga ráðherra í fæðismálum eingögnu til hluta sjómanna. […]
Áríðandi orðsending til sjómanna í Verk Vest

Þegar þessi orð eru skrifuð klukkan að verða hálf þrjú aðfararnótt laugardags er verið að undirrita endurnýjaðan kjarasamning sjómanna við útgerðarmenn. Eins og staðan er núna má gera ráð fyrir kynningu samningsins strax á laugardeginum bæði á Ísafirði og Patreksfirði. Ef allt gengur upp má gera ráð fyrir að kynningarnar verði kl.16.00 á báðum stöðum. […]
Fréttatilkynning frá Sjómannasambandi Íslands

Þegar viðræðum sjómanna og útvegsmanna var slitið s.l. föstudag setti Ríkissáttasemjari fjölmiðlabann á samninganefndarmenn. Ekki má ræða efnisatriði kjaraviðræðna né það sem skeður á fundum undir stjórn Ríkissáttasemjara. Sáttaemjari hafði varla lokið máli sínu þegar SFS greinir frá bókun sem fulltrúar sjómanna settu fram. SFS gerir því skóna að bókunin sé í raun ný krafa […]
Viðræðum við útgerðarmenn slitið – allt járn í járn

Samningarnefndir sjómanna og útgerðar hittust á samningafundi hjá sáttasemjara kl.13.00 í dag. Eftir frekar stuttar viðræður var ljóst að ekki væri lengra komist og viðræðurnar væru járn í járn þar sem hvorugur aðilinn ætlar að gefa tommu eftir af kröfum. Eftir stutt fundarhlé lögðu samningsaðilar sjómanna og útgerðar fram bókanir um stöðuna og í kjölfarið […]
Starfsgreinasambandið lýsir yfir stuðningi við verkfall sjómenn

Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við sjómenn í þeirri kjaradeilu sem nú stendur yfir Þær vinnudeilur sem sjómenn og útgerðarmenn standa nú í hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir landverkafólk. Fiskvinnslufyrirtæki hafa nýtt sér ákvæði í landslögum sem gerir þeim kleift að senda fiskvinnslufólk á atvinnuleysisbætur vegna „ófyrirséðra áfalla“ í stað þess að njóta kauptryggingar […]
Atvinnuleysisbætur hækkuðu 1. janúar

Á þorláksmessu undirritaði ráðherra breytingu á reglugerð um fjárhæðir atvinnuleysistrygginga. Hækkunin nemur 7,5% og tók gildi 1. janúar 2017. Hækkunin kemur í kjölfar ítrekaðrar gagnrýni verkalýðshreifingarinnar að attvinnuleysisbætur hafi ekki hækkað hltufallslega jafn mikið og lægstu laun. Eftir hækkunina eru grunnatvinnuleysisbætur 83,5% af lágmarkslaunum. Upphæð grunnatvinnuleysisbóta reiknast í hlutfalli við bótarétt: Atvinnuleysisbætur eru 217.208 kr. […]
Öllum kröfum sjómanna hafnað

Á samningafundi sem var haldinn hjá ríkissáttasemjara fyrr í dag höfnuðu útgerðarmenn öllum kröfum sjómanna. Útgerðarmenn höfnuðu einnig að byggt verði ofan á þann samning sem var felldur í desember 2016. Þau viðbrögð útgerðarmanna setja viðræðurnar í raun á núll punkt. Því miður er ekki hægt að segja annað deilan hafi harðnað til muna eftir […]
Aðalfundur sjómannadeildar 26. desember

Aðalfundur sjómannadeildar Verk Vest verður haldinn 26. desember kl.14:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði. Dagskrá: Kosning deildastjórnar Kjaramál sjómanna Önnur mál Nú sem aldrei fyrr er áríðandi að sjómenn mæti til fundarins til að ræða kröfur sjómanna og næstu skref í verkfallsdeilu sjómanna við útgerðarmenn. Stjórn sjómannadeildar Verk Vest
Dagbókin 2017 fyrir félagsmenn

Vasadagbók Verk Vest fyrir árið 2017 er lent og verður hægt að nálgast bókina á skrifstofu félagsins á Ísafirði fyrir jól en á Patreksfirði eftir jól. Einnig verður vasadagbókinn dreift í stærri fyrirtæki á Þingeyri, Hómavík og Reykhólum. Þeir félagsmenn sem ekki geta nálgast vasadagbókina á þessum stöðum geta haft samband við skrifstofur félagsins og […]
Umsóknir um styrk úr Vinnudeilusjóði

Samkvæmt 8. grein reglugerðar Vinnudeilusjóðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga er auglýst eftir umsóknum um styrk úr Vinnudeilusjóði félagsins. Eingöngu sjómenn sem voru á kjörskrá vegna atkvæðagreiðslu um kjarasamning Verkalýðsfélags Vestfirðinga við SFS eiga rétt á styrk úr sjóðnum meðan verkfall sjómanna stendur. Umsókn skal vera skrifleg og er nauðsynlegt að nýjasta afrit af launaseðli fylgi með umsókninni, […]
Jólablað Verk Vest farið í dreifingu

Jólablað Verk Vest er farið í dreifingu og ætti að berast til félagsmanna á allra næstu dögum. Blaðið er að venju stútfullt af áhugaverðum fréttum úr félagsstarfinu, ýmsum upplýsingum um kjaramál og áhugaverðu vitali við Hólmberg Arason þúsundþjalasmið á Ísafirði. Blaðinu er dreift inn á öll heimili á Vestfjörðum og verður rafrænt eintak aðgegngilegt hér […]
Kjarsamningur sjómanna felldur með 87% greiddra atkvæða

Atkvæðagreiðslunni um kjarasamninginn milli Verkalýðsfélags Vestfirðinga og SFS lauk kl. 12:00 á hádegi í dag. Á kjörskrá voru 120 sjómenn og af þeim greiddu 70 atkvæði eða 58,3%. Niðurstaðan er þessi: Já sögðu 9 eða 13% þeirra sem greiddu atkvæði. Nei sögðu 61 eða 87% þeirra sem greiddu atkvæði. Samkvæmt niðurstöðunni var samningurinn felldur með […]
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna lýkur á morgun

Verk Vest hefur haldið þrjá kynningafundi um endurnýjaðan kjarasamning sjómanna bæði á Ísafirði og Patreksfirði. Fundirnir hafa verið mjög málefnalegir þó svo ljóst sé að hljóðið í sjómönnum sé þungt og skal engan undra. Rauði þráðurinn í samtölum við sjómenn er að taka þurfi olíuverðsviðmið til gagngerrar endurskoðunar og gera þurfi betur vegna nýsmíðaálagsins, þó […]
Samtök atvinnulífsins vilja banna Samkeppniseftirlitnu að verja almannahagsmuni

Síðastliðið sumar komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu eftir ítarlega rannsókn að Mjólkursamsalan hefði brotið með alvarlegum hætti gegn banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Með almannahagsmuni að leiðarljósi hefur stjórn Samkeppniseftirlitsins ákveðið að skjóta ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla og stefna Mjólkursamsölunni til þess að fá ógilda niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar um samspil búvörulaga og samkeppnislaga og […]
Kynningafundir á kjarasamningi sjómanna

Verk Vest heldur tvo kynningarfundi um endurnýjaðan kjarasamning sjómanna. Sá fyrri verður í dag þriðjudag kl.16.30 á Hótel Ísafriði. Seinni fundurinn verður haldinn í borðsalnum á Páli Pálssyni á morgun miðvikudag kringum hádegi þegar skipið er væntanlegt í land. Formaður Sjómannasambands Íslands Valmundur Valmundsson kynnir nýgerða kjarasamninga. Kjörgögn með lykilorði fyrir kosningu ættu að fara […]
Ályktanir 30. þings Sjómannasambands Íslands

Dagana 24.- 25. nóvember var haldið 30. þing Sjómannasambands Íslands. Fulltrúi Verk Vest á þinginu var Sævar Gestsson formaður sjómannadeildar félagsins. Á þinginu voru samþykktar fjölmargar ályltanir og bera þær nokkurn blæ af þeim málum sem helst brenna á sjómönnum. Má þar t.d. nefna kröfu Sjómannasambands Íslands að skattfríðindi íslenskra sjómanna verði lögfest að nýju […]
Stofnfundur Félags fagkvenna

Næstkomandi mánudag mun vera haldin stofnfundur Félag fagkvenna sem er skilgreint félag fyrir konur í karllægum iðngreinum. Konur sem eru með sveinspróf, á námssamninginn eða í námi í karlægri iðngrein eru boðnar til stofnfundar Félags fagkvenna. Í meginmáli er tilgangur félagsins að búa til öflugt tengslanet milli kvenna í karllægum iðngreinum og fá fleiri konur […]