Atkvæðagreiðsla um endurnýjaðan kjarasamning sjómanna er hafin

Þann 14. nóvember var skrifað undir endurnýjaðan kjarasaming sjómanna og var verkfalli frestað frá kl.20:00 þann 15. nóvember. Rafræn atkvæðagreiðsla um endurnýjaðan kjarasamninga sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga er hafin. Kjarasamingur Verk Vest fyrir sjómenn er sjálfstæður samningur því er talið sér hjá okkar félagi. Verði kjarasamningur Verk Vest felldur hefst verkfall að nýju þann 14. […]
Aukaaðalfundur Verk Vest

Eins og kom fram í frétt hér á vef félagsins var samþykkt á framhaldsþingi Alþýðusambands Vestfjarða að sambandið rinni inn í Verkalýðsfélag Vestfirðinga. Til þess að svo geti orðið þarf að halda aukaaðalfund félagsins þar sem bornar verða upp tillögur um laga og reglugerðarbreytingar varðandi samrunann. Aukaaðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn miðvikudaginn 7. desember 2016 […]
Elísabet nýr forstöðumaður Listasafns ASÍ

Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Listasafns ASÍ. Elísabet hefur áralanga reynslu af listmiðlun og rekstri listastofnana bæði hér heima og erlendis. Hún lagði stund á nám í arkitektúr í Skotlandi og Frakklandi og rak teiknistofuna Kol og salt til margra ára og var jafnfram virkur þátttakandi í rekstri Gallerís Slunkaríkis á Ísafirði. Frá 2003 […]
Ágallar í kjarasamningi Verk Vest lagfærðir

Ríkissáttasemjari boðaði viðsemjendur í kjaradeilu sjómanna til fundar í dag til að fara yfir ágalla sem voru á undirrituðu eintaki Verkalýðsfélags Vestfirðinga og lagfæra. Efnisatriðum samningsins var ekki breytt heldur var eingöngu verið að leiðrétta nafn samningsins og samræma greinar þannig að þær stemmdu við gildandi kjarasamning félagsins. Hægt er að nálgast leiðrétt eintak hér […]
Desemberuppbót 2016

Desemberuppbót skal greidd ekki síðar en 15. desember, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira. Full desemberuppbót 2016 er sem hér segir: Verkafólk, starfsmenn […]
Trúnaðarráð hafnar nýgerðum kjarasamningi sjómanna

Nýr kjarasamningur sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga sem var undirritaður aðfararnótt mánudagsins 15. nóvember hefur verið kynntur fyrir trúnaðarráði félagsins. Eftir kynningu samningsins var ljóst að sá tæknilegi ómöguleiki væri kominn upp að undirritað samningsskjal væri í raun ekki kjarasamningur félagsins. Auk þess var ljóst að upphafshækkanir í kauptryggingu og fatapeningum voru ekki þær sömu og […]
Aðildarfélög Starfsgreinasambandsins krefjast jafnræðis gagnvart veiku fólki

Stéttarfélögum út um allt land hefur borist beiðni frá Landspítalanum um að nýta orlofsíbúðir félaganna þegar þörf er á að kyrrsetja þungaðar konur/foreldra utan af landi í Reykjavík vegna veikinda. Stéttarfélög hafa byggt upp orlofsíbúðir af miklum metnaði síðustu áratugi fyrir félagsfólk sitt til að auka lífsgæði þeirra og gera fólki kleift að ferðast um […]
Úrskurður kjararáðs svívirðileg mismunun gegn almennu launafólki, öldruðum og öryrkjum

Nýfallinn úrskurður kjararáðs um tugprósenta hækkun launa æðstu ráðamanna þjóðarinnar er sem blaut tuska í andlit almenns launafólks. Með úrskurði kjararáðs fá þingmenn um 368.000 króna hækkun mánaðalauna, sem svarar ríflega 100% meira í hækkun á mánuði en taxtalaunafólk fær allt árið. Rétt er að ítreka að almennt taxtalaunafólk fékk 15.000 króna hækkun mánaðarlauna í […]
Sjómenn greiða útgerðarmönnum rekstrarstyrk – Hverjir hagnast á olíuverðsviðmiði?

Í grein sem ég birti þann 21. september bendi ég á að þau olíuverðsviðmið sem notuð eru til ákvörðunar skiptaprósentu á skipum séu úr sér gengin og séu til þess fallin að láta sjómenn greiða útgerðunum rekstrarstyrk. Þessa fullyrðingu mína hafa útgerðarmenn gert athugasemd við og segja að olíuverðsviðmiðum hafi verið komið á til að […]
Konur göngum út kl.14:38 mánudaginn 24.október – Kjarajafnrétti strax!

ASÍ ásamt helstu samtökum launafólks; BSRB, BHM, KÍ, SSF og fulltrúum kvennasamtaka hafa tekið höndum saman og standa að baráttufundi á Austurvelli kl. 15:15 mánudaginn 24. október n.k. Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 þann dag og fylkja liði á samstöðufund undir kjörorðunum „Kjarajafnrétti strax“. Meðal atvinnutekjur kvenna eru 70,3% af […]
Opnun á leigu á orlofshúsum janúar til maí 2017

Stjórn orlofssjóðs hefur ákveðið breytingu á opnun tímabila í íbúðum og sumarhúsum. Þann 1. nóv. n.k. verður opnað fyrir tímabilið janúar til 19. maí 2017 Páskavikan verður í leigð í heild 11. – 18. apríl og kostar 18 punkta.
Margrét nýr formaður deildar verslunar- og skrifstofufólks

Á deildaraðalfundi verslunar og skrifstofufólks í Verk Vest sem haldinn var 10. október síðastliðinn var kosin ný deildarstjórn. Ákveðin tímamót voru einnig á fundinum þar sem Finnur Magnússon lét af embætti sem formaður deildarinnar eftir 17 ár í embætti. Finnur var áður formaður Verslunarmannafélags Ísafjarðar en þegar Verkalýðsfélag Vestfirðinga var stofnað 21. september 2002 þá […]
Verkfallsboðun sjómanna í Verk Vest samþykkt með 82% atkvæða

Niðurstaða í kosningu um verkfallsboðun hjá sjómönnum sem starfa samkvæmt aðalkjarasamningi ASV við SFS ( áður LÍÚ ) á félagssvæði Verkalýðsfélags Vestfirðinga liggur fyrir. Sjómenn í félaginu sýndu með afgerandi hætti stuðning við verkfallsboðun en 82% þeirra sem greiddu atkvæði kusu með verkfallsboðun. Einungis 16% greiddu atkvæði á móti verkfallsboðun og 2% tóku ekki afstöðu. […]
Sjómenn greiða útgerðarmönnum rekstrarstyrk – svar við athugasemdum útgerðarmanna

Þann 21. september síðastliðinn var birt grein eftir mig á vef Verk Vest undir yfirskriftinni Sjómenn borga útgerðarmönnum rekstrarstyrk – breytinga er þörf! Í kjölfarið fékk ég sendar athugasemdir frá útgerðarmönnum þar sem því er haldið fram að í greininni gæti mikils misskilnings sem þeir óska eftir að verði leiðréttur. Í fyrrnefndri grein bendi ég […]
Alþýðusamband Vestfjarða rennur inn í Verkalýðsfélag Vestfirðinga

Á framhaldsþingi 33. þings Alþýðusambands Vestfjarða ( ASV ) þann 19. september var samþykkt tillaga að ASV yrði lagt niður og Verkalýðsfélag Vestfirðinga tæki með formlegum hætti yfir öll réttindi og allar skuldbindingar ASV. Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur því með formlegum hætti tekið við keflinu sem regnhlíf allra stéttarfélaga sem áður voru innan ASV. Þannig lýkur […]
ASÍ og BSRB krefjast breytinga á fæðingarorlofskerfinu

ASÍ og BSRB hafa tekið höndum saman um að krefja stjórnvöld um breytingar á fæðingarorlofskerfinu og lagt af stað í átak á samfélagsmiðlum sem byggir á viðtölum við foreldra ungra barna sem þekkja af eigin raun annmarka kerfisins.Fylgstu með umræðunni á Facebook-síðu átaksins, Betra fæðingarorlof en þar er að finna myndbönd, fréttir og frásagnir. Við […]
Sjómenn borga útgerðarmönnum rekstrarstyrk – breytinga er þörf !

Þegar ég byrjaði fyrst á sjó hafði ég aldrei áður heyrt á það minnst að starfsmenn fyrirtækja tækju á sig hluta af rekstrarkostnaði við vinnustað sinn og fannst það ansi undarlegt. í skilningsleysi mínu fyrir þessu krafði ég eldri sjómenn svara við því hvers vegna þetta væri. Mér var bent á að olíuverðsviðmið hefði verið […]
Rafræn atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall sjómanna í Verk Vest

Rafræn atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga hefst kl.14.00 í dag mánudaginn 19. september. Kosningin stendur til kl.12:00 mánudaginn 17. október. Allir atkvæðisbærir félagsmenn/sjómenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga fá sent bréf um framvindu samningaviðræðnanna við SFS auk leyniorðs sem nota má við atkvæðagreiðsluna. Félagsmaðurinn fer inn á heimasíðu Verkalýðsfélags Vestfirðinga www. verkvest.is og smellir […]
Launamunur kynjanna óbreyttur samkvæmt launakönnun VR.

Frá janúar 2015 til apríl 2016 hækkuðu grunnlaun félagsmanna VR um 14,3% og heildarlaun þeirra um 15,8%. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árlegri launakönnun meðal félagsmanna VR sem birt er í dag. Launahækkun VR félaga er í takt við breytingar á launavísitölu Hagstofu Íslands sem hækkaði um 14,5% á sama tíma og […]
Útgerðarmenn hafna tilboði sjómanna – heimild til vinnustöðvunar virkjuð

Þann 11. maí 2011 lögðu Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Verkalýðsfélags Vestfirðinga (Verk Vest) fram kröfur vegna endurnýjunar á kjarasamingi sjómanna í Verk Vest sem rann út þann 1. janúar 2011. Útgerðarmenn lýstu viðræður um framlagðar kröfur árangurslausar og þann 22. maí 2012 og vísuðu kjaradeilunni til Ríkissáttasemjara. Þann 4. desember 2015 mat samninganefnd Verk […]
Þjónustufulltrúi 50% starf – Verkalýðsfélag Vestfirðinga

Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir eftir þjónustufulltrúa í 50% stöðu á skrifstofu félagsins á Ísafirði. Ábyrgðasvið: Almenn þjónusta við félagsmenn Aðstoð í vinnuréttindamálum Upplýsingagjöf til félagsmanna Aðstoð við skýrslugerð Aðstoð við innheimtu og rafrænar skráningar Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf Vinnustaðaheimsóknir Hæfniskröfur: Menntun sem nýtist í starfi Þekking á starfsemi stéttarfélaga er kostur Reynsla af uppgjörsvinnu, skýrslugerð […]
Græðgissjónarmið ráðandi í ákvörðunum um bónusgreiðslur

Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti á fundi síðdegis í gær eftirfarandi ályktun um græðgi, ofurbónusa, sérhagsmunahópa og algjört siðrof í íslensku viðskiptalífi. „Því miður kemur það aftur og enn í ljós að við búum í samfélagi þar sem tryggt er að þeir ríku verði ríkari og fátæku fátækari. Siðrof gagnvart almenmningi er staðreynd og áhersla er […]
Afmælisboð ASÍ á Árbæjarsafni 28. ágúst 2016 kl. 13 -16

Alþýðusamband Íslands fagnar 100 ára afmæli í ár og einn liður í að minnast þeirra tímamóta er afmælisboð ASÍ í Árbæjarsafni þann 28. ágúst nk. Alþýðusambandið býður frítt inn á safnið þann dag og fjölbreytta dagskrá sem bregður birtu á aðstæður og aðbúnað íslensks verkafólks á síðustu öld. Boðið verður upp á leiðsagnir, ratleik, þvottaburð, […]
Sterkari saman í seinni hálfleik

Hvað mun einkenna vinnumarkaðinn á næstu árum og hvernig við búum okkur undir það? Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir verður með hið vinsæla námskeið „Sterkari saman í seinni hálfleik“ á Ísafirði fimmtudaginn 25. ágúst í Fræðslumiðstöðinni á Ísafirði. Eftir námskeiðið ættir þú að: Vita betur hvernig þú getur þróað starfsferil þinn með framtíðarþarfir í huga. Hafa […]
Sjómenn í Verk Vest felldu endurnýjaðan kjarasamningvið útgerðarmenn

Atkvæðagreiðsla um endurnýjaðan kjarasaming sjómanna hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga við Samtök fyrirtækja í sjávarútveg sem var undirritaður hjá ríkissáttasemjara þann 29. júní 2016 er lokið. Póstatkvæðagreiðsla stóð frá kl.12.00 þann 19. júlí til kl.12.00 þann 15 ágúst. Kjörstjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hefur talið atkvæði og eru niðurstöður úr atkvæðagreiðslunni eftirfarandi: Á kjörskrá voru: 105 Greidd atkvæði: 41 […]
Íslenskir atvinnurekendur ekki barnanna bestir

Ólaunuðum starfsmönnum hvort sem þeir kallast sjálfboðaliðar eða starfsnemar hefur fjölgað hratt síðustu misseri í íslensku atvinnulífi. Mest ber á slíku í ferðaþjónustu, landbúnaði og við barnagæslu og heimilisaðstoð. Ásókn erlendra ungmenna í sjálfboðaliðastörf hér á landi er einn fylgifiskur þess að Ísland er komið á kortið sem ferðamannaland. Þetta segir Dröfn Haraldsdóttir, sérfræðingur og […]
Félagsliðabrú – Fjarnám

Vinnur þú við umönnun? Viltu auka færni þína? Nemendur þurfa að vera orðnir 22ja ára hafa að baki að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu af viðkomandi starfssviði.Námið er kennt í fjarnámi í samstarfi við Símey og Farskólann, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra. Notað verður Skype for buisness. Skiptir ekki máli hvar þú býrð á landinu.Formlegt […]
Atkvæðagreiðsla um endurnýjun kjarasamnings sjómanna í Verk Vest

Póstatkvæðagreiðsla vegna kosninga um endurnýjun kjarasamnings Verk Vest við SFS er hafin. Kjörgögn og kynningarefni vegna atkvæðagreiðslunnar eru komin í póst og ættu að berast til sjómanna hjá Verk Vest á næstu dögum. Eingöngu þeir sem vinna á bátum og skipum í stóra kerfinu fá send kjörgögn. Kjörskár liggur frammi á skrifstofum félagsins á Ísafirði […]
Endurnýjaður kjarasamningur sjómanna í Verk Vest við SFS

Um hádegi í gær 29. júní var skrifað undir endurnýjaðan kjarasamning vegna sjómanna í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga ( Verk Vest ) við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Verði endurnýjaður samningur samþykktur af sjómönnum taka breytingar samningsins gildi frá og með 1. júní 2016. Kjarasamningurinn var áður samningur Alþýðusambands Vestfjarða ( ASV ) við útgerðarmenn (LÍÚ) en […]
Laus sumarhús

Hægt er að ganga frá pöntun inn á http://orlof.is/verkvest/ Eða hafa samband á skrifstofurnar í síma: 456 5190 24. – 1. júlí Flókalundur 5. – 12. ág. Flókalundur 12. – 19. ág. Einarsstaðir 19. – 26. ág. Bjarnaborg – Einarsstaðir – Flókalundur 26 ág. – 16. sept -Allir staðir lausir –