Orlofhús eru nú á lausu fyrir alla félagsmenn.

Nú er hægt að bóka þær vikur sem ekki gengu út við úthlutun umsókna. Kíkið á orlof.is/verkvest Laus tímabil
Dræm þátttaka í aðalfundi Verk Vest – góð afkoma félagsins

Verkalýðsfélag Vestfirðinga fer ekki varhluta af dvínandi áhuga á málefnum stéttarfélaga í landinu. En mjög dræm mæting var á aðalfund félagsins sem haldin var síðdegis í gær. Hverju er um að kenna er ekki gott að segja, en leiða má að því líkum að neikvæð umræða í garð stéttarfélaga í landinu hjálpi ekki til. Aðalfundur […]
Starfsmannadagur Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði

Vegna starfsmannadags starfsfólks Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði verður skrifstofan á Ísafirði lokuð eftir kl.10.30 föstudaginn 20. maí og skrifstofan á Patreksfirði verður lokuð eftir kl.14.00 sama dag. Skrifstofurnar verða opnar aftur á hefðbundnum opnunartíma mánudaginn 23. maí. Starfsfólk skrifstofanna biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda en bendir á vef […]
Lausir bústaðir á föstudaginn!

Þeir sam hafa áhuga á að leigja bústað frá föstudeginum 20. til 27. maí vinsamlegast hafið samband við skrifstofur félagsins í síma 456 5190. ATH: Útleigan mun ekki hafa áhrif á punktastöðu. Um er að ræða bústaði á eftirfarandi stöðum: Svignaskarði – Ölfusborgum – Illugastöðum – Akureyri – Flókalundi – Einarsstöðum.
Aðalfundur Verk Vest 18. maí kl.18.00 á Hótel Ísafirði

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2016 kl.18.00 á Hótel Ísafirði. Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá. Dagskrá: Skýrsla stjórnar Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2015 Tillögur um reglugerðabreytingar: a) Sjúkrasjóðs Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda Kosning siðanefndar skv. 28 […]
Afnám tolla á fatnaði og skóm skilar sér ekki

Í upphafi árs voru tollar felldir niður af fatnaði og skóm. Samkvæmt mati Fjármála- og efnahagsráðuneytis átti afnámið að skila að meðaltali 13% verðlækkun til neytenda á þeim vörum sem áður báru tolla. Áætlað var að um 60% vara í vöruflokknum bæru toll fyrir breytingarnar. Því má áætla að afnám tolla af fötum og skóm […]
1. maí alþjóðlegur baráttudagur verkafólks

Til hamingju með daginn. Samstaða í 100 ár – sókn til nýrra sigra! Sýnum samstöðu og mætum í kröfugöngur stéttarfélaganann. Dagskráin á Ísafirði og Suðureyri.
Úthlutun umsókna um sumarhús lokið

Til úthlutunar voru 109 vikur á tímabilinu frá 13. maí – 9. september. Flestar umsóknir voru á vinsælustu vikurnar á tímabilinu frá miðjum júni fram yfir miðjan ágúst. Alls bárust 136 umsóknir til félagsins vegna sumarúthlutunar, þar af voru 20 umsóknir sem ekki áttu rétt á sumarúthlutun. Af 116 umsóknum voru 76 umsóknum úthlutað og […]
Mál vegna vinnuslyss barns fyrnist hjá lögreglu

Brot á vinnuverndarlöggjöfinni virðast hafa lítið vægi hjá lögregluembættum landsins, jafnvel þó um vítaverð brot gegn barni sé að ræða. Um málið er fjallað á vef ASÍ. Vinnueftirlit ríkisins kærði brotið til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í febrúar árið 2012 vegna fiskvinnslufyrirtækis í bænum. Ástæða kærunnar var þríþætt brot fiskvinnslufyrirtækisins á 14 ára barni sem endaði […]
1. maí hátíðarhöld á Ísafirði og Suðureyri

Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna. Union members! Show solidarity and take part in the parade. Wszyscy bierzemy udział w pochodzie zwiazków zawodowych. Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 13:45. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Dagskráin í Edinborgarhúsi: Lúðrasveit tónlistarskólans: Stjórnandi Madis Maekalle Ræðumaður dagsins: […]
Takmarkanir á opnun á Patreksfirði

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður opnunartími skrifstofu félagins á Patreksfirði takmarkaður frá 19 – 26.apríl sem hér segir. Þriðjudag 19. apríl opið frá kl.13.30 – 16.00 MIðvikudag 20. apríl opið frá kl.13.30 – 16:00 Lokað sumardaginn fyrsta Föstudag 22. apríl opið frá kl.12.30 – 16.00 Mánudag 25. apríl opið frá kl.13.30 – 16.00
Hæstiréttur staðfestir að „kjarasamninga skal virða“

Þú greiðir ekki iðnaðarmanni verkamannalaun fyrir að vinna þau störf sem hann er menntaður til. Þetta staðfesti Hæstiréttur með dómi sínum í gær. Niðurstaðan kemur ekki á óvart og staðfestir það sem talin hefur verið meginregla í vinnurétti hér á landi þ.e. að kjarasamningar hafa gildi um lágmarkskjör fyrir þau störf sem stéttarfélögin semja um, […]
Ársfundur Gildis lífeyrissjóðs

Ársfundur Gildis lífeyrissjóðs var haldinn á Grandhótel í gær en Lífeyrissjóður Vestfirðinga sameinaðist gildi 1. janúar 2015. Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendi tvo fulltrúa á fundinn, þau Finnboga Sveinbjörnsson, formann Verk Vest og Margréti J. Birkisdóttur, varamann í stjórn Gildis frá samruna sjóðanna. Í máli stjórnarformanns sjóðsins kom fram að tryggingafræðileg staða sjóðsins hefði batnað nokkuð milli […]
Baldur og Sjómannafélagið – 100 ára barátta launafólks

Í tilefni þess að samtök verkafólks og sjómanna hafa starfað á Ísafirði samfleytt í eina öld verður opnuð sýning á Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði. Á sýningunni verður brugðið upp ljósi á sögu Verkalýðsfélagsins Baldurs og Sjómannafélags Ísfirðinga frá árinu 1916 til okkar tíma með ljósmyndum, lifandi myndum, munum og minjum til heiðurs verkafólki og sjómönnum […]
Nýtt greiðsluþátttökukerfi Heilbrigðisráðherra – kostnaður fluttur á almenna notendur heilbrigðisþjónustu

Með nýju greiðsluþátttökukerfi má gera ráð fyrir verulega aukinni kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. Þetta kom fram í máli Hennýjar Hinz hagfræðings hjá ASÍ í fyrirlestri um nýtt greiðsluþátttökukerfi Heilbrigðisráðherra. Henný benti á að allt frá árinu 1980 hefði greiðlsuþátttaka sjúklinga í heilbrigðisþjónustu verið að aukast. Árið 1980 var greiðsluþátttaka ríkisins um 88% á móti 12% […]
Skrifstofa á Patreksfirði lokuð á þriðjudag

Skrifstofa Verk Vest á Patreksfirði verður lokuð vegna jarðafarar frá kl.12:00 – 16:00 á morgun þriðjudag 12.apríl. Félagsmönnum á suðursvæði félagsins er bent á að hafa samband við skrifstofuna á Ísafirði í síma 4565190 eða á postur@verkvest.is. Félagið biður félagsmenn og aðra viðskiptavini afsökunar á þeim óþæginudum sem lokunin kann að valda.
Vöruverð hækkar milli ára

Þegar bornar eru saman verðkannanirnar sem verðlagseftirlitið framkvæmdi í maí 2015 og nú í apríl 2016 má sjá að mjólkurvörur, ostar, kjötvörur og drykkjarvörur hafa almennt hækkað á milli kannana en innfluttar vörur í flestum tilvikum lækkað í verði. Af þeim vörum sem bornar eru saman í þessum tveimur mælingum má sjá þessar verðbreytingar endurspeglast […]
Verkalýðsfélagið Baldur á Ísafirði 100 ára

Það var 1. apríl 1916 sem 44 verkamenn á aldrinum 18-66 ára stofnuðu Verkmannafjelag Ísafjarðar einsog það hét í fyrstu. Í ársbyrjun 1917 var nafni félagsins breytt og hét eftir það Baldur. Stjórn félagsins skipuðu Sigurður H. Þorsteinsson formaður, Kristján Dýrfjörð Kristjánsson varaformaður, Jón Gunnar Hallgrímsson ritari og Magnús Jónsson gjaldkeri. Félagið náði fljótt útbreiðslu […]
Áskorun um löggildingu Félagsliða

Stétt félagsliða telur nú hátt í eitt þúsund manns en tólf ár eru síðan námið stóð fyrst til boða. Félagsliðar eru sérmenntaðir til að veita þjónustu í formi aðstoðar og umönnunar einstaklinga á öllum aldri sem vegna félagslegra aðstæðna, líkamlegrar eða andlegra hömlunar eiga erfitt um vik að sjá um sig sjálfir. Félagsliðar hafa aðallega […]
Fræðsludagur félagsliða

Fræðsludagur félagsliða verður haldinn þann 30. mars næst komandi í húsi stéttarfélaganna á Selfossi. Um er að ræða árlegan fræðsludag félagsliða sem Starfsgreinasamband Íslands og Félag íslenskra félagsliða halda í sameiningu. Er fræðslan opin félagsliðum um allt land óháð stéttarfélagi. Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks fyrir 20. mars næst komandi í netfangið drifa@sgs.is. […]
ASÍ 100 ára – „Réttindi okkar duttu ekki af himnum ofan“

…“Skylda launafólks er að styðja hvort annað í baráttunni fyrir bættum kjörum og framförum í réttindamálum okkar. Baráttan fyrir réttindunum sem flestir telja sjálfsögð hefur kostað íslenska alþýðu blóð svita og tár. Verkafólk má ekki láta etja sér saman líkt og var ástundað fyrir miðja síðustu öld þegar þrengdi að á vinnumarkaði. Á þeim tíma var reynt að brjóta niður baráttuvilja verkafólks með öllum tiltækum ráðum. Við megum ekki láta slíkt henda aftur, til of mikils hefur verið barist. Gleymum ekki að réttindin duttu ekki af himnum ofan. Fyrir þeim hefur verið barist í rúm 100 ár…“
Umsóknir um sumarúthlutun 2016 komin á vefinn

Nú er hægt að nálgast eyðublað fyrir sumarúthlutun 2016 á vef félagsins. Sumarúthlutunartímabilið er frá 13. maí – 9. september og þurfa umsóknir að hafa borist félaginu fyrir 8. apríl næst komandi. Allar upplýsingar um leigustaði og tímabil eru á blaðinu og eins og áður merkja umsækjendur valmöguleika inn á blaðið. Áríðandi er að vanda […]
Þriðja skeiðið – réttindi og tækifæri

Fimmtudagskvöldið 10. mars, kl. 17 – 19 verður 3. erindið í fyrirlestraröðinni um Stéttarfélög, Starfsendurhæfing og Virk. Finnbogi Sveinbjörnsson, Gabríela Aðalbjörnsdóttir, Harpa Kristjánsdóttir og Fanney Pálsdóttir fjalla um stéttarfélög, Starfsendurhæfingu og Virk. Í erindum sínum munu þau vera með almenna kynningu á Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Félagi opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsendurhæfingu og Virk. Ennfremur hvernig […]
Bæklingur um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum

Allir eiga rétt á því að starfsumhverfi þeirra einkennist af gagnkvæmri virðingu í samskiptum. Í því felst að starfsmenn eiga rétt á því að njóta skilyrðislausrar verndar gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustað. Nú er kominn út bæklingur þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og […]
Afmælistónleikar ASÍ – Edinborgarhúsið Ísafirði

ATH. ÞAÐ ERU TIL NOKKRIR MIÐAR Á 100 ÁRA ASÍ AFMÆLISTÓNLEIKANA Í EDINBORGARHÚSINU. MIÐARNIR ERU Á SKIRFSTOFU FÉLAGSINS Á ÍSAFIRÐI. FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR.
Skora á Samtök atvinnulífsins að virða löglega boðað verkfall í Straumsvík og ganga til samninga við starfsmenn.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga skorar á Samtök atvinnulífsins að virða löglega boðað verkfall verkamanna Río tinto í Straumsvík og beita sér fyrir því að gera nýjan kjarasamning hið fyrsta. Félagsdómur hefur þegar úrskurðað verkfallsaðgerðir starfsmanna við álverið í Straumsvík löglegar. Samtök atvinnulífsins eiga því að taka af skarið og stöðva lögbrot fyrirtækisins gegn löglega boðaðri vinnustöðvun […]
Yfirmenn í Straumsvík ganga í störf verkafólks – verkafólk sent heim!

Í gærkvöldi staðfesti Félagsdómur að boðað uppskipunarbann starfsmanna við álverið í Straumsvík væri lögleg aðgerð. Skilningur stéttarfélaganna er sá að eingöngu forstjóri fyrirtækisins og yfirmaður viðkomandi sviðs megi ganga í störf verkafólks. Í morgun var aftur á móti mættur fjöldi yfirmanna til að ganga í störf verksfólksins og vinna að uppskipun áls til útfluttnings. Ekki […]
Laus tímabil á Spáni – Laust um Páska !

Verk Vest ásamt þremur öðrum stéttarfélögum, hefur til umráða orlofsíbúð nr. 13 í Altomar III í Los Arenales á Spáni. Vekjum athygli á því að það er laust um Páskana. Raðhúsahverfið Altomar III í Los Arenales er rétt sunnan við Alicante borg og mjög gott útsýni er til Alicante frá ströndinni í Los Arenales. Akstur […]
Upprætum brotastarfsemi á vinnumarkaði – Einn réttur – Ekkert svindl !

Alþýðusamband Íslands hefur í samstarfi við aðildarsamtök sín hleypt af stokkunum verkefninu Einn réttur – ekkert svindl! Verkefninu er beint gegn undirboðum á vinnumarkaði og svartri atvinnustarfsemi en síðustu mánuði hafa stéttarfélögin orðið vör við vaxandi brotastarfsemi á vinnumarkaði. Sérstaklega í byggingargeiranum og ferðaþjónustunni sem eru helstu vaxtargreinar í þeirri uppsveiflu sem nú ríkir á […]
Verslunar og skrfistofufólk í Verk Vest getur eingöngu kosið rafrænt

Vegna mistaka í útsendingu kjörgagna frá ASÍ þá mun verslunar og skrifstofufólk í Verk Vest eingöngu geta kosið um nýjan kjarasamning með rafrænni innskráningu með íslykli eða auðkenningu í síma. Þeir sem ekki hafa aðgang að nettengdri tölvu geta komið á skrfstofur félagsins á Ísafirði og Patreksfirði og fengið að kjósa. Rafræn kosning verður virk […]