Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hefst þriðjudaginn 16. febrúar

Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning aðildarfélaga ASÍ hefst kl. 08:00 að morgni þriðjudagsins 16. febrúar og stendur til kl.12:00 á hádegi miðvikudaginn 24. febrúar. Kjörgögn með leyniorði fyrir rafrænu kosninguna verða send út til félagsmanna Verk Vest mánudaginn 15. febrúar og mega félagsmenn okkar því búast við að gögnin fari að berast til þeirra upp frá […]
Aukin og bætt þjónusta við félagsmenn

Stjórn Verk Vest hefur að undanförnu unnið að breytingum á starfsemi félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. Breytingarnar felast fyrst og fremst í aukinni þjónustu við félagsmenn á starfssvæðinu. Á Patreksfirði hefur Stefanía Árnadóttir verið ráðin í hlutastarf á móti Hrönn Árnadóttur og í kjölfarið hefur opnunartími skrifstofunnar á Patreksfirði verið lengdur og er opið frá […]
Sjómannafélag Ísfirðinga 100 ára í dag

Sjómannafélag Ísfirðinga er 100 ára í dag en félagið var stofnað 5. febrúar 1916. Fyrsti formaður þess var Eiríkur Einarsson, en aðrir í stjórn voru Sigurgeir Sigurðsson, Jón Björn Elíasson og Jónas Sveinsson. Á stofnfundinum voru skráðir í félagið 75 meðlimir, samkvæmt fundargerðabók, en fram að næsta fundi bættust við 34, þannig að stofnfélagar teljast […]
Verðbólga á ársgrundvelli mælist 2,1%

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,58% milli mánaða og mældist 428,3 stig samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Verðbólga á ársgrundvelli mælist því 2,1% og hækkar lítillega milli mánaða. Lækkunin frá desember skýrist fyrst og fremst af árstíðarbundnum þáttum en vetrarútsölur hafa gjarnan áhrif á mælinguna í byrjun árs. Þannig lækkaði verð á fötum og skóm um 13% […]
Breytingar á fasteignagjöldum og útsvari 2016

Útsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2015 hjá 14 sveitafélögum af 15 en Reykjanesbær er með 3,62% álag á útsvarið. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkar útsvarið á milli ára. Í flestum tilfellum haldast álagningaprósentur óbreyttar en fasteigna- og lóðamat tekur víðast hvar breytingum. Raunbreyting á gjöldum er því í flestum tilfellum sökum breytinga á fasteigna- og lóðamati. Vegna […]
Skrifað undir nýjan kjarasamning um launabreytingar og lífeyrismál

Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa undirritað nýjan samning sem felur í sér viðbætur við þær hækkanir sem samið var um á síðasta ári á hinum almenna vinnumarkaði. Samningurinn byggir á rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá 27. október 2015 og bókun um lífeyrisréttindi frá árinu 2011 og er ætlað að tryggja jafnræði í kjaraþróun á grundvelli […]
Áttin ný vefgátt starfsmenntasjóða

Fyrr í dag var haldinn kynningarfundur um Áttin sem er ný vefgátt sem er hugsuð til að einfalda fyrirtækjum að sækja um styrki vegna starfsfræðslu fyrir vinnustaði. ASÍ og Samtök atvinnulífsins stóðu að kynningunni og kom fram að vefgáttin er sett upp til að svara ákalli forsvarsmanna fyrirtækja um einfaldað ferli við umsókn starfsfræðslustyrkja. Flestir […]
Miklar hækkanir á stökum sundferðum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1.1.15. til 1.1.16. Þrettán þeirra hækkuðu gjaldið á stökum miða. Seltjarnarneskaupstaður og Fljótdalshérað halda sömu gjaldskrá og í fyrra. Mesta hækkunin er hjá Sveitarfélaginu Árborg eða um 50% og hjá Reykjavíkurborg um 38%. Árskort fullorðinna hefur einnig hækkað í verði hjá 9 […]
Aukin brottflutningur íslenskra ríkisborgara þrátt fyrir góðæri

Búferlaflutningar hafa verið í umræðunni síðustu misseri og ekki að ósekju þar sem sveiflur í flutningsjöfnuði, þ.e. fjölda aðfluttra umfram brottflutta, hafa verið miklar undanfarin ár. Auknar sveiflur í seinni tíð má m.a. rekja til aukins hreyfanleika vinnuafls um Evrópu þar sem aðild Íslands að evrópska efnahagssvæðinu og síðar stækkun Evrópusambandsins til austurs hafa gert […]
Lokað á Patreksfirði
Vegna starfsmannafundar verður skrifstofan á Patreksfirði lokuð frá kl.10.30 – 12:00. Bendum félagsmönnum okkar á að óbreytt opnun er hjá skrifstofu félagsins á Ísafirði.
Lokað á Patreksfirði
Skrifstofa félagsins á Patreksfirði verður lokuð föstudaginn 10. maí. Vinsamlegast beinið erindum á skrifstofuna á Ísafirði eða á postur@verkvest.is.
Lokað á Patreksfirði
Skrifstofa félagsins á Patreksfirði verður lokuð í dag 11.12.2023 Við biðjum félagsfólk velvirðingar á skertri þjónustu en bendum félagsfólki á að opið er á Ísafirði. Starfsfólk Verk Vest.
Lokað á Patreksfirði

Vegna framkvæmda og viðhaldsvinnu á skrifstofu félagsins á Patreksfirði verður skrifstofa félagsins lokuð í dag og fram á hádegi á morgun. Við byðjum félagsmenn velvirðinga á óþægindum sem af því kann að hljótast en bendum á að hægt er að hringja í skrifstofuna á Ísafirði í 45565190 eða senda okkur tölvupóst á postur@verkvest.is Vegna flugmiða […]
KLUKK tímaskráningarapp fyrir snjallsíma

Klukk er tímaskráningarapp sem hjálpar launafólki að halda utan um sínar vinnustundir. Þannig má á auðveldan hátt nálgast yfirlit yfir unna tíma í mánuði og bera saman við greiddar vinnustundir á launaseðli.Í appinu getur þú klukkað þig inn og út, ásamt því að appið minnir þig á að klukka þig þegar þú kemur eða ferð […]
LÆKKUN FRAMLAGS TIL VIRK

Alþingi samþykkti þann 19. desember ákvæði til bráðabirgða í lögum 113/1990 um tryggingagjald og ákvæði til bráðabirgða í lögum 60/2012 um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Bráðabirgðaákvæðin kveða á um að iðgjöld atvinnurekenda og þeirra sem stunda sjálfstæða starfsemi og lífeyrissjóða til starfsendurhæfingarsjóðs skuli vera 0,10% af stofni til iðgjalds vegna áranna 2016 og 2017. […]
Órjúfanleg samstaða launafólks skilaði góðum kjarasamningum – hvað tekur svo við?

… „Allan tímann meðan á samningaviðræðum stóð dundi á verkafólki harður áróður úr röðum atvinnurekenda og bankamanna með Seðlabankastjóra fremstan í flokki. Heimsendaspár um hrun stærra en efnahagshrunið árið 2008 yrðu að veruleika ef samið yrði við verkafólk um 300.000 króna lágmarkslaun. Því var haldið fram að atvinnuleysi myndi aukast, verðbólga færi úr böndunum og kaupmáttur myndi rýrna sem aldrei fyrr. En hver varð reyndin? Verðbólga er með lægsta móti eða 2% og hefur vart mælst lægri um langan tíma þrátt fyrir ítrekaðar spár Seðlabanka og greiningadeilda bankanna um aukinn verðbólguþrýsting.“
Opnunartímar hjá Verk Vest um hátíðarnar

Verkalýðsfélag Vestfirðinga óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kæru þakklæti fyrir gott samstarf og baráttuanda á árinu sem er að líða. Merry Christmas and a happy new year! Wesolych Swiat Bozego Narodzenia. Priecigus Ziemsvetkus un laimigu Jauno Gadu! Maligayang Pasko at manigong bagong taon. เมอรี่คริสต์มาส และสวัสดีปีใหม่ Skrifstofa félagsins […]
Jólamatur lækkar í verði á milli ára hjá Fjarðarkaupum og Víði

Jólamatur hefur oftar hækkað í verði en lækkað í flestum verslunum síðan í fyrra, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi mánudaginn 14. desember. Verslanirnar sem hafa frekar hækkað verð en lækkað eru Bónus, Nettó, Krónan, Hagkaup og Samkaup-Úrval. En Fjarðarkaup og Víðir hafa oftar lækkað verð en hækkað. Verslunin […]
Mikill verðmunur á jólamat

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á jólamatvöru í átta matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu sl. mánudag. Kannað var verð á 108 algengum vörum sem eru í boði fyrir jólahátíðina. Bónus Korputorgi var með lægsta verðið í 50 tilvikum af 108, Krónan Lindum í 38 tilvikum og Víðir Skeifunni í 12 tilvikum. Samkaup-Úrval Hafnarfirði var með hæsta verðið í […]
Vasadagbókin 2016 komin í hús!

Vasadagbók Verk Vest fyrir árið 2016 er komin í dreifingu. Verður hægt að nálgast bókina á skrifstofum félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. Einnig verður vasadagbókinn dreift í stærri fyrirtæki á Þingeyri, Hómavík og Reykhólum. Þeir félagsmenn sem ekki geta nálgast vasadagbókina á þessum stöðum geta haft samband við skrifstofur félagsins og fengið sent til sín […]
Þriðja bindi Vindur í seglum III komin út – útgáfufagnaður í safnahúsinu á Ísafirði

Vindur í seglum III, þriðja bindi af sögu verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum er komin út. Höfundur er Sigurður Pétursson sagnfræðingur, en útgefandi Alþýðusamband Vestfjarða. Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður félagsmönnum til útgáfufagnaðar í safnahúsinu á Ísafirði laugardaginn 12. desember kl.17:00. Höfundur bókarinnar mun lesa valda kafla úr bókinni og eru allir boðnir velkomnir á meðan húsrúm leifir. Vindur […]
Félagsmenn í Verk Vest samþykkja kjarasamning við sveitafélög á Vestfjörðum.

Atkvæðagreiðslu er nú lokið um nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambandsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. nóvember síðastliðinn. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga sinna og var samningurinn samþykktur í öllum félögunum, en í heildina samþykktu yfir 90% þeirra sem greiddu atkvæði. Félögin sem SGS fór með umboð fyrir eru: Aldan stéttarfélag, AFL […]
Viðræðuslit í kjaradeilu sjómanna – Þvergirðingsháttur útgerðarmanna alger!

Á fundi deiluaðila hjá sáttasemjara fyrr í dag mættu fulltrúar sjómanna fullkomnu virðingarleysi gagnvart kröfum sjómanna. Alvarlegast var þó að upplifa skeytingarleysi fulltrúa útgerðarinnar gagnvart öryggismálum sjómanna. Var öllum tillögum sjómanna varðandi skýrari ákvæði um mönnun á íslenskum fiskiskipum hafnað. Rétt er að benda á þögn tryggingarfélaga sem er hrópleg í þessu samhengi. Fulltrúar sjómanna […]
Deilihagkerfið ryður sér til rúms í gisti- og ferðaþjónustu

Deilihagkerfið hefur verið mikið til umræðu í hinni alþjóðlegu verkalýðshreyfingu undanfarið enda tilefni til að hafa töluverðar áhyggjur af þróun þess og áhrifum á kjör og aðbúnað launafólks. Nauðsynlegt er að gera skýran greinarmun á deilihagkerfinu þar sem fólk skiptist á þjónustu án þess að gjald komi fyrir og deilihagkerfinu sem er beinlínis orðinn atvinnurekstur. […]
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning sveitafélaga – Rafræn kosning

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga hefst kl. 08:00 þann 1. desember og stendur hún til miðnættis 8. desember. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar daginn eftir. Atkvæðagreiðslan verður með rafrænum hætti og eru allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við sveitarfélögin á kjörskrá. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á […]
Ísafjarðarbíó 80 ára

Alþýðuhús Ísfirðinga við Norðurveg var reist árin 1934-35 af félögum í Verkalýðsfélaginu Baldri og Sjómannafélagi Ísfirðinga, undir forystu Hannibals Valdimarssonar og Eiríks Einarssonar. Hannibal hafði áður haft forystu um byggingu félagsheimis í Súðavík, þar sem hann tók að sér forystu í félagi verkamanna og sjómanna. Hann flutti til Ísafjarðar árið 1931 og skipaði sér þegar […]
Kjarasamningur fyrir starfsfólk sveitafélaga undirritaður

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) skrifaði undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga á áttunda tímanum í kvöld, föstudaginn 20. nóvember. SGS undirritaði kjarasamninginn í umboði eftirtalinna félaga: AFL – starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Stéttarfélagið Samstaða, Stéttarfélag Vesturlands, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðs- […]
Samtök atvinnulífsins setja SALEK samkomulag í uppnámi

Undanfarnar vikur hafa verið í gangi mjög harðar kjaraviðræður við Rio Tinto Alcan í Straumsvík og má segja að starfsmönnum sé haldið í gíslingu af fyrirtækinu með atbeina SA ( Samtök atvinnulífsins ). Fyrirtækið hefur hafnað að ræða við samninganefnd starfsmanna um sambærilegar launahækkanir og náðust á almennum vinnumarkaði fyrr á þessu ári. Með þessu […]
Stjórn Orlofssjóðs samþykkir breytingar á úthlutunarreglum

Á fundi stjórnar orlofssjóðs Verk Vest var samykkt að breyta gildandi úthlutunarreglum. Helstu breytingar felast í að nú er punktakerfi sem tekið var í notkun vegna úthlutunar árið 2014 komið inn reglurnar ásamt breytingum sem voru gerðar vegna skila og umgengni á orlofseignum félagsins. Ástæða þess að breytingar eru gerðar á reglunum er vegna slæms […]
SALEK samkomulagið umrædda – spurt og svarað

SALEK-samkomulagið sem undirritað var í lok október milli stórs hluta vinnumarkaðarins hefur verið töluvert til umfjöllunar síðustu daga. Nokkuð hefur verið um að misskilnings hafi gætt í þeirri umræðu. Til að skýra myndina fyrir leikmönnum og hjálpa þeim að mynda sér skoðun á málinu hefur ASÍ birt nokkrar algengar spurningar sem komið hafa upp, sem […]