AUGLÝSING UM KOSNINGU TIL STJÓRNAR OG TRÚNAÐARSTARFA HJÁ VERKALÝÐSFÉLAGI VESTFIRÐINGA 2015 – 2017

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2015 til 2017 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu. Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga […]

Ætlum við að sækja fram eða lepja dauðann úr skel?

Vilja félagsmenn í Verk Vest sætta sig við 3 – 4% launahækkanir eins og Samtök atvinnulífsins hafa boðið eða vilja félagsmenn fylkja sér um réttmætar kröfur samninganefndar félagsins um hækkun lægstu launa? Þessari spurningu hvet ég allt launafólk til að svara og ákveða í framhaldinu hvort sótt verði fram með réttmætar kröfur um réttmætar kjarabætur […]

Miðstjórn ASÍ mótmælir harðlega aðför Primera Air að réttindum launafólks hér á landi

Miðstjórn ASÍ fór yfir stöðu flugliða hjá flugfélaginu Primera Air, en samkvæmt upplýsingum sem fyrir liggja um starfsemi Primera Air hér á land hefur félagið flutt flugrekstarleyfi sitt til Lettlands og gerir út þaðan. Þaðan eru flugvélar félagsins leigðar ásamt áhöfn til íslenskra ferðaskrifstofa. Hluti flugfreyja félagsins hafa heimastöð á Íslandi en koma gegnum starfsmannaleigu […]

Sveitafélögin hækka gjald á sundferðum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1.janúar 2014 til 1. febrúar 2015. Öll nema Árborg, sem var með eitt hæsta gjaldið fyrir, hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna, mesta hækkunin var hjá Reykjanesbæ eða um 38%. Árskort fullorðinna hefur einnig hækkað í verði hjá […]

Fundur með starfsfólki Vísis á Þingeyri

Það sem af er degi hefur félagið fengið töluverðan fjölda fyrirspurna frá starfsfólki fiskvinnslu Vísis á Þingeyri varðandi launagreiðslur. Ljóst má vera miðað við það sem fram hefur komið í samtölum við starfsfólkið að töluverður munur er á útborguðum launum frá því sem verið hefur. Starfsfólk hefur ekki fengið launaseðla í hendur og því erfitt […]

Starfsgreinasambandið undirbýr næstu skref

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands veitti í dag samningaráði sambandsins umboð til að vísa kjaradeilu þess við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Starfsgreinasambandið fer með umboð 16 aðildarfélaga um allt land og semur fyrir rúmlega 12 þúsund manns á almennum vinnumarkaði. Launakröfur Starfsgreinasambandsins voru birtar Samtökum atvinnulífsins á fundi í húsnæði ríkissáttasemjara mánudaginn 26. janúar. Þar lýstu fulltrúar […]

Hækkun lágmarkslauna er hlutfallslega lítill kostnaðarauki hjá fyrirtækjum

Viðar Ingason Hagfræðingur hjá VR hefur skrifað ítarlega grein sem hefur verið birt á vef VR og í 3 tb. af Vísbendingu. Í greininni rekur Viðar niðurstöður helsu rannsókna á áhrifum hækkunar á lágmarklaunum og kemst að þeirri niðurstöðu að slíkar hækkanir hafi lítil sem engin áhrif á kostnaðarauka fyrirtækjanna og muni að öllu líkum […]

Kröfur verkafólks réttmætar – Sendum láglaunagrýlu SA heim !

Trúnaðarráð Verk Vest kom saman til fundar í gærkvöldi til að fara yfir viðbrögð SA við kröfugerð verkafólks. Fundarmenn voru sammála um að næsta skref í stöðunni væri að vísa deilunni til sáttasemjara þar sem SA menn hefðu hafnað að eiga viðræður við forystufólk verkalýðshreifingarinnar um réttmætar og sanngjarnar kröfur sem lagðar hafa verið fram. […]

Laun á Íslandi í samanburði við hin Norðurlöndin

Það er athyglisvert að skoða launamun á Norðurlöndunum eftir einstaka starfsstéttum að teknu tilliti til skattkerfis áhrifa og verðlags. Á meðfylgjandi mynd má sjá muninn á dagvinnulaunum á Íslandi og að meðaltali á hinum Norðurlöndunum eftir að tekið hefur verið tillit til bæði verðlags og skatta. Það er áberandi að munurinn á dagvinnulaunum á Íslandi […]

Lægstu laun verði þrjúhundruð þúsund innan þriggja ára

Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands (SGS) var lögð fram á fundi samningaráðs SGS og fulltrúa Samtaka atvinnulífsins sem var haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Kröfurnar mótuðust á fundum í verkalýðsfélögum og á vinnustöðum um land allt og með hliðsjón af niðurstöðu viðhorfskannana. Þær urðu þannig til í víðtæku, lýðræðislegu ferli í verkalýðshreyfingunni þar sem […]

Hækkun virðisaukaskatts á matvæli strax komin fram

Matvara hefur hækkað umtalsvert í verði undanfarinn mánuð samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr verðmælingum verðlagseftirlits ASÍ í matvöruverslunum í kjölfar breytinga á virðisaukaskatti og vörugjöldum. Um áramót hækkaði á virðisaukaskattur á matvörur úr 7% í 11% auk þess sem vörugjöld (s.k. sykurskattur) voru afnumin af sykri og sætum matvörum. Ný verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ staðfestir að fjöldi […]

„Komum í veg fyrir nýja öld lénsherra á Íslandi“

Staða atvinnumála á Flateyri og Þingeyri var til umræðu á fundi trúnaðarráðs félagsins sem haldinn var á Hótel Ísafiði í gærkvöldi. Voru fundarmenn ómyrkir í máli þegar staða sjávarbyggða var rædd. Flutningur veiðiheimilda, hreppaflutningar starfsfólks og nútíma vistarbönd voru orð sem féllu á fundinum. Skeytingarleysi gagnvart landverkafólki og minkandi atvinnuöryggi er grafalvarlegt mál og furðulegt […]

Góð kjaramálaumræða á námskeiði fyrir afgreiðslufólk

Verk Vest í samstarfi við VR stóð fyrir námskeiði fyrir afgreiðslufólk í verslunum og brauðgerðarhúsum. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Elías G. Magnússon sem er forstöðumaður kjaramálasviðs hjá VR. Mjög góð mæting var á námskeiðið og tóku félagsmenn okkar mjög virkan þátt í umræðum um kjaramál, vinnutíma og mörg önnur atrið sem tengjast störfum okkar félagsmenna […]

Kjaramálakönnun – tökum öll þátt!

Undirbúningur vegna kröfugerðar Verk Vest er að komast á loka metrana. Samninganefnd félagsins mun funda mánudagskvöldið 19. janúar til að leggja lokahönd á kröfur félagsins. Haldnir hafa verið kjaramálafundir víða um félagssvæðið ásamt því sem farið hefur verið í vinnustaðaheimsóknir til að kanna hug félagsmanna. En við viljum líka heyra í þeim sem komust ekki […]

Fullur sigur í baráttunni við Fæðingarorlofssjóð

Alþýðusambandið hefur ítrekað gert kröfu til þess að Fæðingarorlofssjóður leiðrétti greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi sem urðu fyrir ólögmætum skerðingum vegna rangrar túlkunar sjóðsins á lögunum um fæðingar- og foreldraorlof. Um málið er fjallað i nýútkomnum fréttamolum ASÍ. Efni málsins er í sem stystu máli það að 28. ágúst 2013 sendi umboðsmaður Alþingis frá sér […]

Kjaramálafundir VerkVest

Kjaramálafundir Verk Vest verða haldnir: Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal mándaginn 12. janúar kl. 18:00 Félagsheimilinu Partreksfirði mánudaginn 12. janúar kl. 20:00 Hótel Ísafirði þriðjudaginn 13. janúar kl. 20:00 Formaður og Varaformaður fara yfir stöðuna. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta.

Skýrar reglur gilda um aksturs- og hvíldartíma ökumanna sem starfa við snjómokstur og hálkuvarnir

Alþýðusamband Íslands í samstarfi við Vegagerðina hefur gefið út minnisblað um aksturs- og hvíldartíma ökumanna við snjóruðning og hálkuvarnir í vetraþjónustu, en nokkur óvissa hefur verið um það hvaða reglur gilda við slíka vinnu. Ástæðan er einkum sú að gefnar hafa verið óskýrar og andstæðar upplýsingar frá Samgöngustofu og Vegagerðinni um þetta efni. Af þessum […]

Námsstyrkir til Sjómanna

Samkvæmt kjarasamningi eru fjögur námskeið hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg EKKI styrkhæf hjá Sjómennt. Samkvæmt ákvæðum kjarasamninga sjómanna ber útgerð að greiða þáttökukostnaðinn. Neiti útgerð að greiða eru sjómenn að sjálfsögðu hvattir til að leita réttar síns hjá viðkomandi stéttarfélagi. Eftirtöld námskeið hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu eru EKKI styrkhæf og ber útgerð að greiða þátttökukostnað: 1. GRUNNÖRYGGISFRÆÐLA STCW10 […]

Heildarkerfi starfsendurhæfingar í hættu

Stjórn VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs segir í bréfi til Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra að afgreiðsla fjárlaga 2015 hafi staðfest ásetning ríkisstjórnarinnar að standa ekki við lög og samninga við aðila vinnumarkaðarins um uppbyggingu starfsendurhæfingar og fjármögnun á VIRK og verði til þess að eitt heildarkerfi atvinnutengdrar starfsendurhæfingar verði ekki lengur fyrir hendi.Samkvæmt lögum og samningum […]

Konfekt og kaffi hækka um tugi prósenta

Verð á jólamat hefur hækkað nokkuð í verði síðan í desember 2013 í flestum verslunum. Þó má finna all nokkur dæmi um verðlækkanir. Verslanirnar Bónus, Víðir og Samkaup-Úrval hafa frekar lækkað verð en hækkað. Hjá Nettó, Iceland og Fjarðarkaup hefur verð frekar hækkað en lækkað. Verð á konfekti hækkar um allt að 36% milli ára […]

Vindur í seglum II komin í dreifingu og sölu

Vindur í seglum II, annað bindi sögu verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum eftir Sigurð Pétursson sagnfræðing er komin út. Undirtitill bókarinnar er Strandir og firðir 1931-1970. Í bókinni segir frá verkafólki við sjóinn, samtökum þess og samfélagi á Vestfjörðum. Fjallað er um tólf verkalýðsfélög í jafnmörgum byggðarlögum þar sem verkalýðshreyfingin náði fótfestu og verkafólk og sjómenn fengu […]

Ályktanir 29. þings Sjómannasambands Íslands

Vinnusömu 29. þingi Sjómannasambands Íslands lauk þann 5. desember með kosningu formanns og sambandsstjórnar eins og kom fram í frétt hér á vefnum. Þingið skilaði einnig af sér fjölda ályktana svo sem um kjaramál, umbætur um aðbúnað og forvarnir til handa sjómönnum svo og lífeyrismál. Sævar Gestsson formaður sjómannadeildar Verk Vest var fulltrúi félagsins á […]

Jólablað Verk Vest komið í prentun

Jólablað Verk Verk er komið í prentsmiðjuna og verður væntanlega komið í dreifingu öðru hvoru megin við komandi helgi. Að vanda er blaðið stútfullt af fréttum og fróðleik um kjaramál og öðru sem tengist starfsemi félagsins. Einnig er í blaðinu stuttur kafli úr nýútkomnu öðru bindi af Vindur í seglum sem er atvinnu- og mannlífssaga […]

Vasadagbók 2015 komin í dreifingu

Vasadagbók Verk Vest fyrir árið 2015 er komin í dreifingu. Verður hægt að nálgast bókina á skrifstofum félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. Einnig verður vasadagbókinn dreift í stærri fyrirtæki á Þingeyri, Suðureyri, Hómavík og Reykhólum. Þeir félagsmenn sem ekki geta nálgast vasadagbókina á þessum stöðum geta haft samband við skrifstofur félagsins og fengið sent til […]

29. þing Sjómannasambands Íslands

29. þing Sjómannasambands Íslands er haldið dagana 4. og 5. desember 2014 að Grand Hóteli, Reykjavík. Þingið var sett kl. 10:00 þan 4. desember. Verk Vest á rétt á einum þingfulltrúa og sækir Sævar Gestsson formaður sjómannadeildar félagsins þingið fyrir hönd félagsins. Á þinginu mun Sævar Gunnarsson, sem verið hefur formaður Sjómannasambandsins til 20 ára, […]

Margir bóksalar neita þátttöku í jólabókaverðkönnun – óttast verðsamanburð við matvöruverslanir

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á jólabókum í 7 bókabúðum og matvöruverslunum víðsvegar um landið sl. þriðjudag. Kannað var verð á 70 bókatitlum, sem eru í bókatíðindum 2014. Penninn-Eymundsson, A4, Mál og menning Laugavegi og Iða Lækjargötu töldu það ekki þjóna hagsmunum sínum að verðlagseftirlitið upplýsi neytendur um verð í þeirra verslunum. Oftast var á milli […]

Fjögur stéttarfélög í samstarf um rekstur orlofsíbúðar á Spáni

Orlofssjóðir hjá Öldunni í Skagafirði, Vlf. Snæfellsness, Vls. Sandgerðis og Verk Vest hafa ákveðið að hefja samstarf um rekstur á orlofsíbúð á Spáni. Hafa félögin fest kaup á raðhúsi nr. 13 sem er á jarðhæð í raðhúsahverfinu Altomar III í Los Arenelas. Hefur húsið fengið nafnið „Vinaminni“. Íbúðin er í lokuðum kjarna þar sem enginn […]

Fulltrúaráð mæti á aukaársfund Lífeyrissjóðs Vestfirðinga

Eins og sjálfsagt flestum ætti að vera kunnugt þá hefur verið unnið að samrunasamningi Lifeyrissjóðs Vestfirðinga við Gildi lífeyrissjóð. Verður samningurinn borinn upp til samþykktar eða synjunar á aukaársfundi hjá Lífeyrissjóði Vestfirðinga sem verður á Hótel Ísafirði þriðjudaginn 9. desember kl.17:00. Í fulltrúaráði Verk Vest eru 28 einstaklingar sem eru hvattir til að mæta fyrir […]

Launafólk að þarf að búa sig undir hörð átök á vinnumarkaði

Ályktun miðstjórnar ASÍ um fjárlagafrumvarpið Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir yfir vonbrigðum með framkomnar tillögur stjórnarmeirihlutans við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2015. Lítið er komið til móts við þá miklu og hörðu gagnrýni sem miðstjórn Alþýðusambandsins og aðildarsamtök ASÍ settu fram í haust. Það eru því kaldar kveðjur sem ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn á Alþingi sendir […]