Desemberuppbót atvinnuleitenda

Vinnu­mála­stofn­un mun greiða út des­em­berupp­bót til at­vinnu­leit­enda þann 5. des­em­ber í sam­ræmi við reglu­gerð sem fé­lags- og hús­næðismálaráðherra hef­ur gefið út. Rétt á des­em­berupp­bót eiga þeir at­vinnu­leit­end­ur sem tryggðir eru inn­an at­vinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­is­ins og hafa staðfest at­vinnu­leit á tíma­bil­inu 20. nóv­em­ber – 3. des­em­ber, sam­kvæmt til­kynn­ingu. Skil­yrði og út­reikn­ing­ur á rétti til greiðslunn­ar verður með sama […]

Alþjólegt átak um aðbúnað hótelþerna

Dagana 3. til 10. desember næstkomandi vekja stéttarfélög víða um heim athygli á vinnuaðbúnaði hótelþerna og beina kastljósinu að þessum erfiðu störfum sem unnin eru daglega á milljónum hótela um allan heim. Markmiðið með þessar alþjóðaherferð er að opna augu hótelgesta fyrir þessum störfum en um leið þrýsta á atvinnurekendur að bæta starfsaðbúnað og starfskjör […]

Sýnum starfsfólki við afgreiðslu- og þjónustustörf tillitsemi og kurteisi í jólaösinni

Í desember eykst álag á verslunar- og afgreiðslufólk mjög mikið og því vert að hafa í huga nokkur mikilvæg atriði er varða réttindi þeirra sem vinna við afgreiðslu- og þjónustustörf. Félagið vill beina því til viðskiptavina verslana, sérstaklega nú þegar jólaösin fera þyngjast að sýna starfsfólki kurteisi og tillitssemi. Hrós, bros og almenn tillitssemi kostar […]

Styrkum stoðum skotið undir atvinnulíf á Flateyri og Þingeyri

Fyrirtækin Arctic Oddi á Flateyri, Valþjófur og Vísir hf. héldu starfsmannafundi á Flateyri og þingeyri fyrr í dag þar sem framtíðaráform fyrirtækjanna um aðkomu að vinnslu sjávarafurða var kynnt. Fyrirtækin hafa einnig sent frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að samkomulag hafi náðst milli fyrirtækjana um áframhaldandi starfsemi á Flateyri og Þingeyri. Með samkomulaginu […]

Lokað á Patró

Vegna óvæntra atvika verður skrifstofa Verk Vest á Patreksfirði verður lokuð frá kl.14.00 í dag fimmtudag 27. nóv og föstudaginn 28. nóv. Í algjörum neyðartilfellum mun Alda Davíðsdóttir í síma 8455366 afgreiða afsláttarmiða í flug og miða í Hvalfjarðargöng á meðan. Minnum á símanúmer skrifstofunnar á Ísafirði, 456 3190. Félagsmenn á Patró og nágrenni eru […]

Lokað á Patró

Í dag, föstudag 25. ágúst, verður lokað á skrifstofunni á Patró. Opið er á Ísafirði eins og venjulega, sími: 4565190

Trúnaðarmannanámskeið 3. – 5. desember

Verk Vest stendur fyrir trúnaðarmannanámskeið dagana 3. – 5. desember í samstarfi við Félagsmálaskóla Alþýðu, og Fos Vest. Leiðbeinendur koma frá Félagsmálaskólanum sem heldur utan um trúnaðarmannafræðsluna. Á námskeiðinu verður fjallað stöðu trúnaðrmanns á vinnustað, einelti, vinnuvernd og lestur launaseðla. Um er að ræða þriggja daga námskeið sem er hluti af kjarsamningsbundinni fræðslu trúnaðarmanna. Að […]

Desemberuppbót 2014

Desemberuppbót 2014 Almenni samningur milli SGS og SA 73.600 kr. Starfsfólk á hótel og veitingastöðum ( bensínstöðvar ) 73.600 kr. Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS 73.600 kr. Samingur SGS og Launanefndar sveitarf. 93.500 kr. Starfsfólk Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum 109.287 kr. Samningur verslunar og skrifstofufólks 73.600 kr. Vinnustaðasamningur Ísl. Kalkþörungafélagsins 75.149 kr. Bændsamtök Íslands og SGS […]

Átt þú uppsafnaðann rétt í Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks ?

Nýjar starfsreglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks voru samþykktar í fyrra og hófst tveggja ára aðlögunartímabil þann 1. janúar 2014. Nýjar reglur munu taka við af eldri reglum árið 2016. Á aðlögunartímanum gefst félagsmönnum sem eiga uppsöfnuð stig samkvæmt eldri reglum Starfsmenntasjóðsins kostur á að nýta þau. Verk Vest vill benda félagsmönnum í verslunar- og skrifstofudeild […]

Ríkisvaldið standi við lög og gerða samninga

Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK segir afstöðu stjórnar VIRK mjög skýra, sem kemur fram m.a. í umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, að ef ríkið tekur ekki þátt í fjármögnun á VIRK eins og lög kveða á um og samningar gera ráð fyrir þá er ljóst að VIRK getur ekki tekið við einstaklingum í þjónustu á […]

Vegið að jafnrétti til náms

„Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að fyrirhugaðar breytingar á umhverfi framhaldsskólanna, sem munu bitna af þunga á nemendum eldri en 25 ára, verði endurskoðaðar. Íslenskar aðstæður eru um margt sérstakar og varhugavert að heimfæra stöðuna á Norðurlöndum upp á Ísland. Hér á landi hefur ungt fólk haft aðgang að vinnumarkaðnum, ólíkt nágrannalöndunum, sem gerir það […]

Landssamtök lífeyrissjóða gera athugasemdir við fjárlagafrumvarp

Landssamtök lífeyrissjóða ( LL ) hafa sent Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis athugsemdir vegna niðurfellingar framlags til jöfnunar örorkulífeyrisbyrði. Jafnframt skora LL eindregið á nefndina að beita sér fyrir því að að fallið verði frá áformum um breytingu á framlagi til jöfnunar örorkubyrði. Í athugasemdunum LL er rakið hvernig örorkuframlagið er tilkomið og að það hafi […]

Stjórn Verk Vest mótmælir harðri og óvæginni aðför að launafólki

Hin harða og óvægna aðför að launafólki sem birtist í fjárlagfrumvarpi 2015 á sér vart hliðstæðu hin síðari ár. Slík aðför er hvatning til launafólks inn í komandi kjaraviðræður um að láta sverfa til stáls. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur stjórnvöld til að koma í veg fyrir að óbreytt fjárlagafrumvarp nái fram að ganga um leið […]

Skipuleg leit að legháls– og brjóstakrabbameini bjargar mannslífum

Nú er bleikur mánuður, sem þýðir að athygli er vakin á nauðsyn þess að fara í krabbeinsskoðun. Leghálskrabbamein er annað algengasta krabbamein í heimi hjá konum og tiltölulega algengt meðal ungra kvenna. Það er eitt fárra krabbameina þar sem orsakir eru þekktar en meginorsök leghálskrabbameins er HPV–veira sem smitast við kynmök. Flest þessara smita hverfa […]

ÞETTA ER EKKI RÉTTLÁTT!

Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi. Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana. Hækkun á matvælumHækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum. HeilbrigðismálMeð meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem […]

Lokað á Ísafirði og Patró

Skrifstofur Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði verða lokaðar eftir kl.12.00 föstudaginn 3. október vegna vinnustaðaferðar starfsfólks. Þeir sem eiga eftir að ganga frá leigusamningum vegna íbúða, kaupa miða í göng eða flugmiða úmsókna eða vegna annarra mála er vinsamlegast bent á að ljúka því fyrir kl.12.00 á föstudag svo hægt verði að komast hjá […]

Ríkisstjórn ríka fólksins – nokkrar staðreyndir

„Lækkun á miðþrepi tekjuskattsins úr 25,8 í 25,3% mun samkvæmt greiningu fjármálaráðuneytisins skila 11 milljörðum í auknar ráðstöfunartekjur hjá heimilunum á árunum 2014 og 2015. Líkt og ASÍ benti á þegar breytingin var gerð gagnast hún aðeins tekjuhæstu heimilunum að fullu og í mun minna mæli lág- og millitekjufólki. Hjá þeim sem voru með tekjur […]

Fjárlagafrumvarpið 2015 – Aðför að launafólki

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu um fjárlagafrumvarpið og samskipti launþegahreyfingarinnar við ríkisstjórnina. …“Almennt launafólk hefur á síðustu árum tekið á sig miklar byrðar með samdrætti í tekjum, auknum útgjöldum og skuldsetningu sem leitt hafa til minni kaupmáttar. Þetta á ekki síst við um lágtekjuhópa og lífeyrisþega. Á sama tíma hefur verið skorið […]

Þing ASÍ – UNG

Þriðja þing ASÍ-UNG verður haldið í dag,12. september, undir yfirskriftinni „Samfélag fyrir alla … líka unga fólkið“. Öll aðildarfélög ASÍ, rúmlega fimmtíu talsins, hafa rétt til að senda fulltrúa á þingið. Fulltrúi Verk Vest er Þórdís G. Guðmundsdóttir trúnaðarmaður félagsins hjá Samkaupum á Ísafirði. En hvað er ASÍ -UNG ? Félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eru um […]

Ljóst að nýtt fjárlagafrumvarp mun að óbreyttu setja komandi kjaraviðræður í uppnám

Á nýafstöðnum formannafundi Starfsgreinasambands Íslands komu fram hörð mótmæli gegn þeirri aðför sem ríkisstjórnin er í gegn atvinnulausum og tekjulágum með nýju fjárlagafrumvarpi. Með hækkun á matarskatti er verið að velta álögum frá tekjuhæsta fólkinu yfir á lágtekjufólk sem mun rýra enn afkomu almenns launafólks og sérstaklega þeirra tekjulægstu. Fjármálaráðherra hefur lýsti því yfir að […]

Starfsgreinasambandið heldur formannafund á Ísafirði

Starfsgreinasamband Íslands ( SGS ) heldur útvíkkaðann formannafund á Ísafirði í dag og á morgun. Fundurin fer fram á Hótel Ísafirði og þátttakaendurnir, sem eru 35 að tölu, koma frá aðildarfélögum SGS af öllu landinu. Gera má ráð fyrir að kjara- og atvinnumál verði fyrirferðamikil á fundinum þar sem undirbúningur fyrir kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði […]

Ekkert réttlætir ofurlaun forstjóra hjá íslenskum fyrirtækjum

Í nýrri samantekt ASÍ hafa ofurlaun íslenskra forstjóra verið sett í samhengi við laun almennings í landinu. Ekki kemur neinn nýr snannleikur í ljós, annar en sá að forstjórarnir eru tugföldum verkamannalaunum eins og við flest sennilega vitum. Umræðan fyrir hrun var á þann veg að réttlæta þessi ofurlaun af því fyrirtækin væru að skila […]

Samningnefnd SGS lýsir þungum áhyggjum af stöðu starfsfólks í ferðaþjónustu

Fram kom í máli margra formanna sem sátu samninganefndarfund hjá Starfsgreinasambandinu á fimmtudaginn var, að ástandið í kjaramálum fólks sem starfar innan ferðaþjónustunnar hefur aldrei verið jafn slæmt. Í sumar hafa komið óvenju mörg mál inn á borð stéttarfélaganna sem fjalla um að ekki eru greidd laun samkvæmt kjarasamningum. Einn fundarmanna gekk svo langt að segja: „Það er varla að það komin inn launamanneskja með rétt laun í veitingabransanum.“ Fundarmenn voru sammála um að ekki væri endilega um að ræða svik og pretti heldur væru atvinnurekendur oft illa upplýstir um kjarasamninga og leita sér ekki réttra upplýsinga.

Minnum á frídag verslunarmanna

Félagsmenn í Verk Vest sem starfa við verslunar- og afgreiðslustörf eru minntir á að frídagur verslunarmanna er mánudaginn 4. ágúst. Frídagurinn er stórhátíðardagur og ber að greiða fyrir vinnu þann dag samkvæmt ákvæðum þar um. Það er ekki vinnuskylda á frídögum og stórhátíðardögum og á fastráðið starfsfólk í verslunum rétt á að fá greidda dagvinnu […]

Laust á Einarsstöðum

Hitabylgja á Austfjörðum ! Bústaður félagsins á Einarsstöðum var að losna vegna forfalla vikuna 17 – 24. ágúst. Að vanda gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Ferð á Reykhóla á laugardaginn

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE Dagsferð fyrir félagsmenn VerkVest og fjölskyldur þeirra verður farin á Reykhóla 21. júní n.k. Lagt verður af stað með rútu frá Ísafirði kl. 9:00. Ýmislegt áhugavert verður skoðað á Reykhólum, m.a. Saltverksmiðja Norðursalts, Þörungaverksmiðjan og þaraböðin. Einnig er stefnt á að fara bátsferð í Skáleyjar. Og […]

Mikill verðunur á fiski, 50 – 100% verðmunur algengur

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiskafurðum í 27 fiskbúðum og öðrum verslunum með fiskborð, víðsvegar um landið mánudaginn 2. júní. Kannað var verð á 23 algengum tegundum fiskafurða. Í um helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði á milli 50-100%. Melabúðin neitaði þátttöku í könnuninni. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu […]

Gengur ekki að ASÍ félagar beri einir ábyrgð á stöðugleikanum

Markmið kjarasamninga haustsins 2013 var að halda verðlagi stöðugu, ná böndum á verðbólgu og byggja á hóflegum en stöðugum kaupmætti næstu misseri. Því miður hefur það ekki orðið reyndin. Einu félögin sem hafa lagt sitt af mörkum til að svo megi verða eru aðildarfélög ASÍ. Í staðin fyrir að þeirra framlag hafi orðið öðrum stéttum […]

Skattsvik í ferðaþjónustu

Í nýjustu fréttamolum sem ASÍ hefur sent út til aðildarfélaga er til umfjöllunar nýútkomin skýrsla Rannsóknarstofnunar atvinnulífsins sem ber heitið “ Skattsvik í ferðaþjónustu – Umfang og leiðir til úrbóta „. Í skýrslunni er bent á að virðisaukaskattskerfið er um margt flókið þegar kemur að ferðaþjónustunni og sama gildir um þætti er snúa að leyfisveitingum […]

Sjómenn til hamingju með daginn !

Stjórn og starfsfólk Verkalýðsfélags Vestfirðinga sendir sjómönnum og fjölskyldum þeirra árnaðaróskir á hátíðisdegi sjómanna. Gott er heilu fleyi heim að sigla.