Kampi ehf. tilkynnir lokun vegna hráefnisskorts

Starfsfólki rækjuverksmiðjunnar Kampa ehf. á Ísafirði var tilkynnt um 5 vikna lokun vegna hráefnisskorts á fundi með stjórnendum verksmiðjunnar síðdegis í gær. Í tilkynningu sem fyrirtækið sendi til Verk Vest og Vinnumálastofnunar í morgun segir orðrétt: „…Útlit á hráefnisöflun í sumar er ekki gott og þar vegur þyngst að væntanlega verður ráðgjöf Hafró um 5.000 […]

Samfélagið verður af tugum milljarða árlega

Gestur aðalfundar Verkalýðsfélgas Vestfirðinga var Sigurður Magnússon starfsmaður hjá Matvís og fyrrverandi verkefnastjóri hjá ASÍ. Á fundinum kynnti hann skýrslu um vinnustaðaskilríki og verkefnið „Leggur þú þitt af mörkum“. Í máli Sigurðar kom fram að samstarf ASÍ, SA og Ríkisskattstjóra hefði skilað umtalsverðum árangri undanfarin ár. Með átakinu á árinu 2013 hafi rúmlega 14 milljörðum […]

Aðalfundur Verk Vest hvetur til samstarfs ASÍ félaga

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur til samstarfs aðildarfélaga ASÍ í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Þetta eru skilaboð fundarmanna inn í komandi kjaraviðræður. Telur fundurinn að eini raunhæfi möguleikinn til árangurs í baráttu fyrir bættum kjörum væri að sýna samstöðu bæði í orði og verki. Beita þyrfti verkalýðshreifingunni af fullum þunga, annað virðast atvinnurekendur ekki skilja. Atvinnurekendum […]

Viltu vinna í bygginga- eða málmiðnaði ? – Kynningarmyndbönd

Mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt Samiðn hafa látið útbúa fjögur stutt myndbönd um þau tækifæri sem felast í störfum í byggingar- og málmiðnaði. Markmiðið er að myndböndin gefi góða innsýn í þessi störf og kveiki áhuga hjá ungu fólki sem er að velja sér framtíðarstarf. Eins er markmiðið að vekja athygli nemenda og foreldra þeirra á […]

Aðventuferð fyrir félagsmenn VerkVest

Fyrirhuguð er aðventuferð fyrir félagsmenn Verk Vest í haust, 27.- 30. nóvember. Félagið á frátekna nokkra miða í þessa ferð og þurfum að staðfesta pöntunina fyrir 27. maí.Verð á mann er 86.500 og innifalið er: Flug og flugvallaskattar Gisting á 4* hóteli í 3 nætur 3 x morgunverðarhlaðborð Íslensk fararstjórn Áhugasamir skrái sig á skrifstofu […]

Orlofsuppbót 2014 – athugaðu þinn rétt !

Verk Vest vill minna launafólk á rétt sinn til að fá greidda orlofsuppbót. Þeir sem starfa á alemnnum vinnumarkaði eða hjá ríkisstofnunum og sveitafélögum eiga að fá greidda orlofsuppbót þann 1. júní nk. Allt starfsfólk sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru […]

Hefur þú áhuga á að starfa í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga?

Ert þú félagsmaður í Verk Vest og vilt starfa í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga? Ef svo er endilega mættu á félagsfund Verk Vest sem verður haldinn á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 14. maí 2014 kl.18.00. Dagskrá. Tillaga um fulltrúa til setu á aðalfundi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga Breytingar í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga Staðan í kjaraviðræðum Aðalfundur Verk Vest Orlofshús […]

Ekki horft til vanda tekjulágra varðandi framtíðarskipulag i húsnæðismálum

Verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála skilaði skýrslu sinni í gær. Hún leggur til að hér verði tekið upp nýtt húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd og er það vel. Þegar kemur að lausnum á vanda þeirra tekjulægstu í samfélaginu skilar verkefnisstjórnin hins vegar auðu. Verkefnisstjórnin leggur til að hér verði tekið upp nýtt húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd, þar […]

Fræðslu- og umræðufundur um loftslagsbreytingar og almannahag

LOFTLAGSBREYTINGAR OG ALMANNAHAGUR Miðvikudaginn 14. maí kl. 08:00-10:15 á Grand Hótel Reykjavík Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af mannavöldum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Alþjóðlegur samtakamáttur er eina leiðin til að vinna gegn þessari þróun og þar […]

Glæsileg hátíðarhöld ábaráttudegi verkafólks

Óskammfeilni atvinnurekenda að boða fólk til vinnu á baráttudegi launþega virðist fara vaxandi. Allmörg dæmi víða um land eru um að launþegar hafi verið boðaðir til vinnu í dag. Nærtækasta dæmið er vinnuboðun fiskverkafólks í Bolungavík. Þrátt fyrir að gjörningurinn hafi sett ákveðinn skugga á hátíðarhöldin er ekki hægt að segja annað en kraftmiklar ræður […]

Samfélag fyrir alla er yfirskrift 1. maí 2014

Forseti ASÍ gerir þá misskiptingu sem mjög víða er að finna í íslensku samfélagi að umtalsefni í pistli sem birtur hefur verið á vef ASÍ. Fer forsetinn yfir þau málefni sem hvað mest hefur mætt á undanfarin misseri og þá misskiptingu sem virðist vera að hreiðra um sig í samfélaginu og bitnar harðast á þeim […]

Nýjar áherslur í kjaraviðræðum ASÍ og SA

Á fundi samninganefndar ASÍ með SA þriðjudaginn 29. apríl 2014 setti Alþýðusamband Íslands fram kröfu um breyttar áherslur í komandi kjaraviðræðunum. Ljóst er að tilraun til þess að gera stöðugleikasamning til lengri tíma er í uppnámi. Frá því að ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu í nóvember 2013 um að haga stefnu sinni og ákvörðunum út frá […]

Nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk Edduhótela

Starfsgreinasamband Íslands og Flugleiðahótel ehf. hafa undirritað nýjan kjarasamnings sem tekur til starfsfólks á Edduhótelum sem vinna eftir hlutaskiptakerfi. Samningurinn kemur til viðbótar kjarasamningi aðila frá 22. júní 2011 og tekur mið af breytingum sem gerðar voru á kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem undirritaðir voru 21. desember 2013 ásamt sáttatillögu ríkissáttasemjara frá 20. febrúar 2014. […]

1. maí hátíðarhöld 2014

Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna. Union members! Show solidarity and take part in the parade. Wszyscy bierzemy udział w pochodzie zwiazków zawodowych. Lagt verður af stað frá skrifstofu Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Á Suðureyri verður lagt af stað frá […]

Samkomulag við ríkið samþykkt

Atkvæði hafa verið talin vegna samkomulags um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við fjármála og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs við Starfsgreinasambands Íslands sem Verk Vest er aðili að. Samkomulagið var undirritað 1. apríl síðastliðinn og gildir frá 1. mars 2014 til 30. apríl 2015. Samningurinn var samþykktur með 71,5% atkvæða og félagar innan SGS greiddu atkvæði […]

Ef kemur til verkfalls hjá framhaldsskólakennurum

Nú eru tæpir fimm sólahringar fram að boðuð verkfalli framhaldsskólakennara ef samningar takast ekki fyrir þann tíma. Rétt er að benda á að yfirvofandi verkfall nær eingöngu til félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum. Þeir starfsmenn sem eru félagsmenn í Verk Vest eða annarra starfsmanna sem ekki eru í viðkomandi félögum að […]

Allt að 218% verðmunur

Verslunin Bónus í Reykjanesbæ var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 13 verslunum víðsvegar um landið þann 25. febrúar, en farið var í lágvöruverðsverslanir, stórmarkaði sem og klukkubúðir. Hæsta verðið var oftast að finna í klukkubúðinni 10/11 Akureyri eða í meira en helmingi tilvika. Verðmunurinn á hæsta og lægsta verði vöru […]

Skylduábyrgð stéttarfélaga gagnvart launafólki

Stéttarfélög, atvinnurekendur og stjórnvöld skipta milli sín ábyrgð á velferð launafólks vegna aldurs, við slys eða veikindi, vegna orlofs, starfsfræðslu o.fl. Skýrast birtist það í skylduaðild að lífeyrissjóðum, sjúkrasjóðunum, orlofssjóðum og menntasjóðum. Stéttarfélögin hafa þannig tekið að sér tiltekið hlutverk í velferðarkerfinu fyrir allt vinnandi fólk. Af þeim ástæðum er greitt af öllum og allir […]

Aðild að stéttarfélagi

Eftir nýgerða kjarasamninga hefur töluvert borið á þeim misskilningi í samfélaginu hverjir hefðu heimild til að kjósa um kjarasaminga og hverjir ekki. Einnig hefur verið töluverð umræða um stéttarfélagsaðild og hvort starfsfólk geti staðið utan stéttarfélaga. Skylduaðild að stéttarfélögum er bönnuð og er vinnandi fólki heimilt að standa utan þeirra. Þó starfsmaður velji að standa […]

Tryggingarstofnun ber að greiða endurhæfingarlífeyri frá fyrsta degi

Í kærumáli til Úrskurðarnefndar almannatrygginga nr. 240/2013 frá 29.1 2014, sem Stéttarfélag Vesturlands f.h. félagsmanns síns fór með fyrir nefndina var túlkun TR hrundið. Málsatvik voru á þann veg að félagsmaður Stétt Vest tæmdi rétt sinn úr sjúkrasjóði félagsins þann 8. júní 2013. Samkvæmt úrskurði TR þann 11.júní 2013 átti hann rétt á endurhæfingarlífeyri. Með […]

Félagsdómur um matarpeninga ríkisstarfsmanna

Fallinn er dómur í félagsdómi um fæðispeninga til hjúkrunarfræðings á vakt á kvöldin þar sem starfsfólkið hefur ekki aðgang að matstofu eins og kveðið er á um í kjarasamningi. Sama á við í samningum SGS við ríkið sem Verk Vest er aðili að. Ákvæði í hjúkrunarfræðisamningunum Starfsmaður á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin […]

Vörukarfa ASÍ bæði hækkar og lækkar – allt eftir því hvar er verslað

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá átta verslunum og verslunarkeðjum frá því í nóvember 2013 (viku 44) þar til nú í byrjun febrúar (vika 6). Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest um 3,2% hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, hún hækkaði um 2,1% hjá Hagkaupum, 1,7% hjá Víði, 1,4% hjá Nettó, en hjá Krónunni, Samkaupum–Úrvali, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kaupfélagi […]

Karlar í umönnunar- og kennslustörfum

Aðgerðahópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti kynja efnir til opins fundar um karla í umönnunar- og kennslustörfum fimmtudaginn 13. febrúar. Eitt verkefna aðgerðahópsins er að stuðla að aðgerðum sem draga úr kynjaskiptingu starfa á íslenskum vinnumarkaði. Niðurstöður innlendra og erlendra rannsókna benda til þess að engin ein aðgerð sé líklegri til að minnka launamun […]

Starfsgreinasambandið kallar eftir ábyrgð atvinnurekenda og hins opinbera

Á formannafundi Starfsgreinasambnads Íslands sem haldinn er í Reykjavík, var eftirfarandi ályktun um stöðu kjaraviðræðna lögð fram og samþykkt fyrir stundu.“Formannafundur Starfsgreinasambandsins lýsir áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði. Stór hluti aðildarfélaga SGS felldi þá samninga sem undirritaðir voru í desember síðastliðnum og engar formlegar viðræður eru hafnar við fulltrúa fjármálaráðuneytisins vegna samninga SGS og ríkisins […]

Vinna við aðfararsamning hafin

Þau fimm félög innan SGS sem samþykktu aðalkjarasamning sem var undirritaður þann 21. desember 2013 hafa þegar myndað samninganefnd SGS og falið henni umboð til viðræðna. Enda alveg skýrt að þessi fimm félög eru bundin af aðalkjarasamningi SGS og þeim aðfararsamningi sem þar var innifalinn. Fyrsti fundur samninganefndar var haldinn 31. janúar og er skipuð […]

Hreyfitorg – hreyfing fyrir alla!

Virk starfsendurhæfingarsjóður hefur tekið þátt í þróun Hreyfitorgs sem er ný vefsíða sem er ætlað að veita góða yfirsýn yfir þá valkosti sem eru í boði á sviði hreyfingar á hverjum tíma, fyrir allan aldur, hvar sem er á landinu. Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda þeim sem leita eftir þjónustu fyrir sig eða aðra að, […]

Snæfellingar í heimsókn

Stjórn og starfsfólk Verkslýðsfélags Snæfellinga kom í heimsókn til Verk Vest á dögunum. Tilefni heimsóknar var að kynnast starfsemi og uppbyggingu hjá Verk Vest. En ástæðuna má rekja til þess að bæði félögin hafa orðið til með sameiningu nokkurra stéttarfélaga og er samsetning félagsmanna með nokkuð áþekkum hætti. Vlf. Snæfellinga hefur verið í undirbúningsvinnu sem […]

Kjarasamningar hjá Verk Vest samþykktir

Talning atkvæða í póstatkvæðagreiðslu Verk Vest vegna kjarasamninga félagsins hófst kl. 17:00 í gær, en þá rann út frestur til að skila inn atkvæðum. Á kjörskrá hjá Verk Vest voru alls 1283 og greiddu 340 atkvæði eða 27% sem er þó nokkuð minni kjörsókn en hefur tíðkast hjá félaginu að undanförnu, en þykir samt nokkuð […]

Aksturs- og hvíldartími ökumanna við snjóruðning og hálkuvarnir

Alþýðusamband Íslands í samstarfi við Vegagerðina hefur gefið út minnisblað um aksturs- og hvíldartíma ökumanna við snjóruðning og hálkuvarnir í vetraþjónustu, en nokkur óvissa hefur verið um það hvaða reglur gilda við slíka vinnu. Ástæðan er einkum sú að gefnar hafa verið óskýrar og andstæðar upplýsingar frá Samgöngustofu og Vegagerðinni um þetta efni. Af þessum […]

Samningur um kaup á flugmiðum

Verk Vest og Flugfélagið Ernir hafa gert með sér samning um kaup á flugmiðum á flugleiðinni Bíldudalur – Rreykjavík. Flugmiðarnir eru eingöngu seldir til félagsmanna Verk Vest og verða afgreiddir hjá skrifstofu félagsins á Patreksfirði. Verð fyrir aðra leið með sköttum er kr. 7.500 og gilda flugmiðar samkvæmt samkomulaginu í ótakmarkaðann tíma. Með þessum samningi […]