Misjafnar breytingar á gjaldskrám sveitafélaga á Vestfjörðum

Formaður Verk Vest beindi þeim tilmælum til sveitastjórnarmanna á Vestfjörðum í bréfi þann 13. nóvember 2013 að halda aftur af gjaldskrárhækkunum sveitafélaganna. Allmörg sveitafélög á vestfjörðum urðu við þessum tilmælum og hafa haldið aftur af hækkunum sumra gjaldskrárliða til almennings. En á sama tíma hafa önnur sveitafélög boðað almennar gjaldskrár hækkanir frá 2,5% til 5% […]

Helstu breytingar á sköttum og gjöldum 2014

Ýmsar breytingar voru gerðar á skattauhverfi á nýju ári og tóku þessar breytingar gildi frá 1. janúar 2014. Skatthlutfall í miðþrepi lækkar úr 40,22% í 39,74% Persónuafsláttur hækkar úr 48.485 kr. á mánuði í 50.498 kr. eða 605.977 kr. á ári. Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2014. Skattleysismörk á […]

Raforka hjá Rarik í dreifbýli hækkar mest

Heildar raforkukostnaður hjá heimilum landsins hefur hækkað frá því í ágúst 2013 m.v. 4.000 kWst. notkun á ári. Mest hefur raforkukostnaðurinn hækkað hjá viðskiptavinum Rarik dreifbýli/Orkusalan eða um 6,6%, Rafveita Reyðarfjarðar hefur hækkað um 2,8% og Orkuveita Reykjavíkur/Orka Náttúrunnar um 1,3%. Það hafa ekki allar dreifiveiturnar hækkað verðið en mest hækkar Rarik dreifbýli um 9%, […]

Í tilefni umræðu um kjarasamninga

Eftirfarandi pistill hefur verið birtur á heimasíðu Starfsgreinasambands Íslands vegna þess hvernig umræða um kjarasamninga hefur verið að þróast að undanförnu.“Mikil umræða hefur farið fram í fjölmiðlum og víðar um nýgerða kjarasamninga sem félagsmenn okkar eru þessa dagana að greiða atkvæði um. Umræða um kjaramál er góð en þó þarf að gæta sanngirni og að […]

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks

Nú um áramót tóku gildi breyttar reglur um úthlutun úr starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks. Helstu breytingar eru raktar hér fyrir neðan í formi spurninga og svara. Hvenær taka nýjar reglur gildi? Hægt er að sækja um samkvæmt nýju reglunum strax um áramótin 2013/2014. Hver er helsta breytingin í nýjum reglum? Félagsmaður í fullu starfi hefur […]

Nýtilkomnar verðhækkanir dregnar til baka

Á fundi trúnaðarráðs Verk Vest sem haldinn var fyrr í vikunni ræddi formaður félagsins þá ótrúlegu ósvífni að blekið á kjarsamningum væri varla þornað þegar fréttir væru farnar að berast af hækkunum á vöruverði og þjónustu. Tók hann þar sem dæmi miklar hækkanir á komugjöldum á heilsugæslustöðvar sem hann sagði vera úr algjörum takti við […]

Atkvæðaseðlar komnir í dreifingu

Á ýmsu hefur gengið við að koma út kjörgögnum vegna póstatkvæðagreiðslu hjá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga vegna nýgerðra kjarasamninga. Viðbótarkjörgögn sem áttu að koma frá Akureyri þvældust til Reykjavíkur og töfðust þar í einn sólahring. Starfsfólk skrifstofu Verk Vest dó ekki ráðlaust og hófst handa við að útbúa ný kjörgögn þegar ljóst var hverskyns var sem var […]

Tökum þátt í atkvæðagreiðslu um nýgerða kjarasamninga

Ágæti félagi! Þann 21. desember sl. var skrifað undir nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambands Íslands, Landssambands íslenskra verslunarmanna og Samiðnar (Verk Vest) og Samtaka atvinnulífsins. Samningaviðræður hafa staðið yfir síðan í september sl. og hefur gengið á ýmsu. Mikil harka hefur verið í þessum viðræðum af hálfu atvinnurekenda og hafði okkur lítið miðað áfram. Ekki […]

Bilun á símkerfi

Vegna rafmagnstruflana er bilun á símkerfi hjá skrifstofu Verk Vest á Ísafirði. Óljóst er með viðgerð vegna ófærðar, en þjónustuaðili er veðurtepptur í Bolungavík. Hægt er að ná sambandi við skrifstofu félagsins á Patreksfirði í síma 4562500 eða í farsíma hjá skrifstofustjóra á Ísafirði 8485883. Einnig er hægt að senda tölupóst á postur@verkvest.is og verður […]

Fundi frestað!

Fundi Sjómannafélagsins sem vera átti í dag hefur verið frestað um óákveðinn tima vegna óveðurs og ófærðar. Nýr fundartími auglýstur síðar.

Nýir kjarasamingar undirritaðir

Kjarasamningar sem aðildarsamtök Alþýðusambands Íslands undirrituðu í gærkvöldi við Samtök atvinnulífsins er svokallaður aðfarasamningur. Sem er einskonar tilraun til eins árs hvort hægt verði að vinna að stöðugleika og auknum kaupmætti ráðstöfunartekna í framhaldinu. Auk launabreyinga gefur samningurinn aðilum 12 mánuði til að undirbúa gerð langtímasamnings sem á að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi og […]

Gleðileg jól !

Opnunartími hjá Skrifstofum verkalýðsfélaganna á Ísafirði og Patreksfirði kringum jólahátíðina verður með eftirfarandi hætti:27. desember verður opið á Ísafirði frá kl. 10.00 – 14:00 Á Patreksfirði verður opið frá kl. 12:00 – 16:00.30. desember verður opið á Ísafirði frá kl.08:00 – 16:00 Á Patreksfirði frá kl 12:00 – 16:00. Opnum eftir áramót þann 2. janúar […]

Innlegg ASÍ og BSRB skipti sköpum varðandi desemberuppbótina

Hugmyndir forystu ASÍ og BSRB um tilflutning á fjármunum frá Virk Starfsendurhæfingarsjóði yfir til Atvinnuleysistryggingasjóðs á þessu ári til að fjármagna desemberuppbót gegn því að fjármunum yrði varið til að tryggja ráðgjöf og vinnumiðlun við atvinnuleitendur á næsta ári var ráðandi þáttur í þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót, eins og tíðkast hefur. Liður […]

LAUS ÍBÚÐ!!!

Íbúð í Ásholti losnaði óvænt frá deginum í dag fram yfir jól.Fyrstur kemur/hringir fyrstur fær!Sími: 456 5190

Atvinnulausir fá ekki desemberuppbót !

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands ( SGS ) hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna ákörðunar ríkisstjórnarinnar um að skerða greiðslur til atvinnulausra með því að neita þeim um desemberuppbót.“Niðurskurðarhnífurinn fer víða í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar og bitnar hart á lágt launuðu fólki á vinnumarkaðnum. Skuldaniðurfellingarúrræðin koma tekjuhærri betur en tekjulægri hópunum, skattatillögurnar sömuleiðis svo ekki sé rætt […]

Vasadagbók Verk Vest komin !

Dagbókin 2014 fyrir félagsmenn Verk Vest er nú komin í afgreiðslur félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. Dagbókinni verður komið í dreifingu á allra næstu dögum til deildarformanna á félagssvæðinu og ætti því að verða aðgengileg á flestum vinnustöðum innan skamms.

Innlegg ríkisstjórnarinnar til kjaraviðræðna – aukin verðbólga!

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun vegna aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjaraviðræðum. Í haust fór verkalýðshreyfingin fram á það við ríki og sveitarfélög að hætt yrði við gjaldskrárhækkanir um áramót til að skapa stöðugleika á grunni lágrar verðbólgu. Reykjavíkurborg fór á undan með góðu fordæmi og dró fyrirhugaðar hækkanir til baka og það sama […]

SGS vísar kjaradeilu við SA til sáttasemjara

Að loknum fundi samningarnefndar SGS og Samtaka atvinnulífsins í dag var ljóst að mikið ber á milli viðsemjenda er varðar launaliðina. Samninganefnd SGS hefur því tekið þá ákvörðun að kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins væri vísað til ríkissáttasemjara sem mun í framhaldinu verða með verkstjórn viðræðnanna. Eftirfarandi yfirlýsing var samþykkt í lok fundar samninganefndar SGS. „Í […]

Viðræður við SA sigla í strand

Eftir samningafund fulltrúa landsambanda ASÍ fyrr í dag varð ljóst að ekki yrði komist lengra í viðræðum við Samtök atvinnulífsins á grundvelli þeirra vinnu sem grunnur hafði verið lagður að innan samninganefnda ASÍ. Í kjölfar þess var ákveðið að slíta viðræðum og sendu fulltrúar landsambanda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Samninganefnd ASÍ hefur á undanförnum vikum […]

Virðum rétt afgreiðslufólks – kurteisi kostar ekkert !

Nú fer í hönd einn mesti annatími afgreiðslu fólks í verslunum þegar jólaösin fer að þyngjast. Í desember eykst álag á verslunar og afgreislufólki mjög mikið og því vert að hafa í huga nokkur mikilvæg atriði er varða réttindi þessarra starfsmanna. Félagið vill beina því til viðskiptavina verslana, sérstaklega nú þegar álag eykst að sýna […]

Hvatning til sveitastjórna á Vestfjörðum skilar árangri

Hvatningarbréf sem Verk Vest sendi til sveitastjórnarmanna á Vestfjörðum um miðjan mánuðinn er farið að skila árangri ef marka má viðbrögð frá stærstu sveitarfélögum á svæðinu. En Ísafjarðarbær og Bolungavíkurkaupstaður hafa boðað að gjaldskrár sveitarfélaganna muni ekki hækka á næsta ári. Munar þar mest um að gjaldskrár leikskóla og skólamáltíðir muni ekki hækka. Þá verða […]

Hinir lægst launuðu fá minnst

Margir eiga erfitt með að ímynda sér að fólk lifi af minna en 300.000 krónur í mánaðarlaun. Ráðherrar, atvinnurekendur og fleiri eiga skiljanlega erfitt með að setja sig í þau spor. Í verkalýðshreyfingunni erum við hins vegar í daglegum samskiptum við fólk sem er einmitt að reyna þetta; að lifa af mánaðarlaunum undir 300.000 krónum. […]

Ber almennt launafólk ábyrgð á verðbólgunni ?

Í nýrri auglýsingarherferð Samtaka atvinnulífsins ( SA ) er fullyrt að launahækkanir á almennum vinnumarkaði séu megin orsakir fyrir óstöðugleika, verðbólgu og rýrnun kaupmáttar. Er þar sérstaklega vitnað í nýlega samantekt frá Seðlabankanum ásamt því að bera saman launahækkanir hér heima við launahækkanir á hinum Norðurlöndunum. En stöldrum aðeins við. Launahækkanir kjarasamninganna 2011 gáfu 11% […]

Yfirlýsing frá samninganefnd Starfsgreinasambandsins vegna kjaraviðræðna við SA

Samninganefnd SGS sem nú fundar í húsakynnum ríkissáttasemjara hefur samþykkt að senda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna kjaraviðræðna við SA. „Viðræður vegna kjarasamninga hafa nú ratað inn í auglýsingatíma sjónvarpsins með auglýsingu sem SA birti í gærkveldi. Þar er varað við hækkun launa umfram 2%. Flestir leggjast nú á eitt að koma í veg fyrir […]

Sögufölsun Samtaka atvinnulífsins

Í kjölfar mjög ósmekklegrar sögufölsunar samtaka atvinnulífsins sem kom fram í sjónvarpsauglýsingu gær sendi ASÍ frá sér eftirfarandi yfirlýsingu.“Samtök atvinnulífsins setja fram dæmalausa sögufölsun í nýjum sjónvarpsauglýsingum. Í þeim er með sérlega ósmekklegum hætti látið í það skína að kröfur launafólks um launahækkanir séu ástæða hárrar verðbólgu á Íslandi. Samtök atvinnulífsins skauta algerlega framhjá þeirri […]

Sjómennt – fræðslusjóður sjómanna

Sjómennt, fræðslusjóður sjómanna, vekur athygli á nokkrum atriðum: Breytingu á styrkfjárhæð Námskeiðum sem ekki eru styrkhæf hjá sjóðnum Gögnum sem þurfa að fylgja styrkumsóknum Breytt upphæð tómstundastyrkja: Frá 1. desember næstkomandi hækkar upphæð fyrir tómstundastyrki upp í 20.000 kr., þó aldrei meira en 75% af námskeiðsgjaldi. Aðrar upphæðir styrkveitingar eru óbreyttar: Fyrir almenna styrki að […]

Sveitastjórnir á Vestfjörðum hvattar til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendi í síðustu viku tölvupóst til sveitarstjórnarmanna á Vestfjörðum þar sem sveitastjórnir eru hvattar til að leggja sitt lóð á vogaskálar þess að hægt verði að byggja grunn undir stöðugleika og sátt á vinnumarkaði. Í bréfinu eru sveitastjórnir hvattar til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og fara þar fram með góðu fordæmi. Rétt […]

Fræðslumiðstöðin útskrifar starfsfólk frá HG

Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. ( HG ) og Sýni útskrifaði á dögunum flottan hóp starfsfólks af grunnn- og framhaldsnámskeiði fyrir fiskvinnslufólk. Útskriftarnemarnir, sem vinna hjá HG í Hnífsdal, Ísafirði og Súðavík, eru af mjög fjölbreyttu þjóðerni og var túlkað bæði á ensku og pólsku á námskeiðinu. Hjálparforritið google translate kom […]

Staðan í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins

Starfsgreinasamband Íslands lagði fram kröfur sínar um síðustu mánaðarmót og byggðust þær á kröfugerðum frá aðildarfélögunum og niðurstöðu samninganefndarinnar. Í samninganefndinni eiga sæti formenn allra aðildarfélaga SGS sem veitt hafa umboð, þ.e. félög utan höfuðborgarsvæðisins. SGS hefur alltaf talað fyrir því að ef launafólk á að sýna varkárni í samningum og freista þess að halda […]

Lífeyrisgáttin

Lífeyrissjóðir landsins hafa opnað aðgang að Lífeyrisgáttinni, nýrri leið sjóðfélaga til að fá á einum stað upplýsingar um áunnin lífeyrisréttindi sín í samtryggingarsjóðum.Sjóðfélagar fá aðgang að Lífeyrisgáttinni á heimasíðum lífeyrissjóðanna og nota þar sama aðgangsorð og gildir fyrir sjóðfélagavefi. Algengt er að fólk eigi réttindi í mörgum lífeyrissjóðum, til dæmis frá þeim tíma þegar það […]