Laust í Flókalundi

Berin í Vatnsfirðinum eru falleg sem aldrei fyrr og nú er tækifær til að ná sér í nokkur því það eru lausir bústaðir í Flókalundi á næstu helgi.
ÍBÚÐIN Í ÁSHOLTI ER LEIGÐ

Vegna forfalla er laust í Ásholti dagana 2. – 8. september. Nú gildir regla fyrstur kemur fyrstur fær.
Röskun á þjónustu vegna framkvæmda

Þeir sem þurfa að eiga erindi við skrifstofu verkalýðsfélaganna í Pólgötu á Ísafirði hafa orðið varir við umtalsverr rask við inngang hússins. Allt hefur þetta nú gengið upp með góðra manna aðstoð og þolinmæði þeirra sem hafa átt erindi á skrifstofuna. Á morgun föstudag verður hinsvegar annað upp á teningnum þar sem frá kl.08.15 – […]
Greiðsluskylda til Virk – Starfsendurhæfingarsjóðs lögfest

Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE MicrosoftInternetExplorer4 /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin:0cm; mso-para-margin-bottom:.0001pt; mso-pagination:widow-orphan; font-size:11.0pt; font-family:“Calibri“,“sans-serif“; mso-ascii-font-family:Calibri; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-fareast-font-family:“Times New Roman“; mso-fareast-theme-font:minor-fareast; mso-hansi-font-family:Calibri; mso-hansi-theme-font:minor-latin; mso-bidi-font-family:“Times New Roman“; mso-bidi-theme-font:minor-bidi;} Samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í júní síðastliðnum (breyting […]
Óánægja vegna starfslokasamnings !

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga tók fyrir á fundi í gærkvöldi bréf
sem 14 félagsmenn stéttarfélaga víðsvegar af landinu skrifa undir. Í
bréfinu kemur fram hörð gagnrýni á afgreiðslu framkvæmdarstjórnar
Starfsgreinasambands Íslands (SGS) á starfslokum fyrrum
framkvæmdarstjóra sambandsins. En á framkvæmdarstjórnarfundi SGS þann 4.
júlí s.l. samþykkti meirihluti framkvæmdarstjórnarmanna að gerður yrði
starfslokasamningur við framkvæmdarstjórnann fyrrverandi þrátt fyrir að í
skýrslu óháðra matsaðila hafi komið fram ærin ástæða til að kæra málið
til lögreglu.
Stjórn Verk Vest lýsir yfir fullum stuðningi við bréfið og hvetur þau
sem undir það rita til að halda kyndli sannleikans áfram á lofti. Þess
má geta að formaður Verk Vest ásamt formönnum Bárunnar á Selfossi,
Verkalýðsfélags Akraness og Framsýnar á Húsavík greiddu atkvæði á móti
tillögu um að gerður yrði starfslokasamningur við framkvæmdastjórann
fyrrverandi. Umræddur starfslokasamningur kostar SGS átt í 9 milljónir
króna þrátt fyrir að skýrslur óháðra matsaðila hafa sýnt fram á mjög
alvarlega bort framkvæmdarstjórans í starfi fyrir SGS.
Hér á eftir er bréfið í heild sinni ásamt afriti af bréfi sem sent var
til formanns SGS og á MBL.IS. Nánast engin umfjöllun hefur verið um
þetta grafalvarlega mál í hinum frjálsu fjölmiðlum á Íslandi og vekur
það mikla furðu stjórnar Verk Vest
Höggvið á hnútinn og það strax !

Stjórnarfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn 4. ágúst 2011, hvetur Byggðastofnun, Landsbanka Íslands og skiptastjóra þrotabús Eyrarodda til að höggva á hnút óvissu í atvinnumálum Flateyringa. Algjört neyðarástand hefur ríkt á meðan áðurnefndir aðilar hafa dregið lappirnar og þvælst hver fyrir öðrum í ákvarðanatökum með þeim afleiðingum að fiskvinnsla er nánast að leggjast af á Flateyri. Þeirri […]
Laust í Ölfusborgum

Vegna forfalla er hús nr. 32 í Ölfusborgum laust til umsóknar vikuna 19. – 26. ágúst. Enn gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Flókalundur – LEIGÐUR !

Vegna forfalla er vikan 5. – 12. ágúst laus í Flókalundi. Þannig að nú er að bregðast fljótt við því reglan fyrstur kemur fyrstur fær er í fullu gildi.
LAUST Í ÁSHOLTI UM VERSLUNARMANNAHELGI – Íbúðin er leigð

Vegna forfalla er laust í Ásholtinu frá 29. júlí – 4. ágúst eða um verslunarmannahelgina. Nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Íbúðin er leigðNánari upplýsingar um íbúðirnar í Ásholtinu má finna hér.
Kjarasamningur beitningafólks endurnýjaður – leiðrétt frétt

Á dögunun lauk vinnu við endurnýjun kjarasamnings beitningafólks og hefur hann verið afgreiddur af aðilum samningsins þ.e. Landssambandi smábátaeigenda (LS) og Starfsgreinasambandi Íslands (SGS). Verk Vest er aðili að samningnum og gilda því þær breytingar sem samið var um fyrir beitningarfólk á öllu félagssvæðinu. Beitningafólki var tryggð eingreiðsla sem nemur kr.50.000 sem átti að koma […]
Nýir kjarasamningar starfsmanna sveitarfélaga – leiðrétt frétt

Eftir langa og erfiða samningalotu hefur loks verið undirritaður nýr kjarasamningur SGS við sveitafélögin. Gildistími nýja samningsins er frá 1. maí 2011 og til 30. júní 2014. Verði samningurinn samþykktur ber að leiðrétta laun frá 1. júní. Megin atriðið í þessum samningi er ný launatafla þar sem gömlu lífaldursþrepin hafa verið felld út. Þetta þýðir […]
Kauptrygging og kaupliðir sjómanna hækka frá 1. júní

Samninganefnd Verk Vest hefur samþykkt að ganga frá samningi við LÍÚ um hækkun kauptryggingar og kaupliða um 4,25% frá og með 1. júní 2011. Þannig verður 1. júní 2011 kauptrygging háseta kr. 222.734, kauptrygging matsveins, fyrsta og annars vélstjóra og vélavarðar, bátsmanns og netamanns kr. 278.419 og yfirvélstjóra kr. 334.101. Þetta var samþykkt í ljósi […]
Gott samstarf við vinnuskólana

Undanfarin ár hefur komist á gott samstarf milli Verk Vest og fulltrúa Ísafjarðarbæjar um kynningu á réttindum og skyldum á vinnumarkaði fyrir ungmenni í vinnuskóla hjá sveitafélaginu. Félagið hefur tekið á móti nokkrum hópum ungmenna vinnskólans og voru fyrstu hóparnir á kynningum hjá félaginu í gær. Þá ákvað Súðavíkurhreppur einng að bæta þessum þætti inn […]
Satrfsfólki Lotnu sagt upp – höggva verður á hnútinn og eyða óvissu

Á fundi starfsfólks og forsvarsmanna fiskvinnslu Lotnu á Flateyri í morgun kom fram að fyrirtækið yrði að gripa til þeirra neyðarúrræða að segja nánast öllu starfsfóki fyrirtækisins upp eða 11 af 13 starfsmönnum. Á fundinum var starfsfólki afhent uppsagnarbréf þar sem ástæður uppsagna voru raktar. Fulltrúar Verk Vest fóru yfir stöðuna með starfsfólki og hvernig […]
Kjarasamningur SGS við ríkið samþykktur

Niðurstöður í póstatkvæðagreiðslu um kjrasamning starfsmanna hjá ríkisstofununum liggur nú fyrir.Á kjörskrá eru 1.492 atkvæði greiddu 494 eða 33,2%. Já sögðu 458 eða 92,8%, nei sögðu 35 eða 7,1%, auðir/óg. 3 – 0,1%. Samningurinn telst því samykktur og hafa niðurstöðurnar verið kynntar viðsemjendum. helstu atriði nýs samnings ásamt launatöflum er hægt að nálgast hér.
Framkvæmdir við endurbætur orlofshúsa Verk Vest

Töluverðar framkvæmdir hafa verið við ibúðir og orlofshús félagsins. Stærsta framkvæmdin hefur verið við hús nr. 9 í Svignaskarði, en þar var farið í stækkun og endurbætur bæði að innan og utan. Húsið er nú orðið allt hið glæsilegasta með aðbúnað eins og hann gerist bestur. Gistipláss er fyrir 8 manns og geta tvær fjölskyldur […]
Kjarasamningar halda gildi sínu út 31. janúr 2014

Eins og kveðið var á um í aðfararsamningi kjarasamninga þá átti ríkisvaldið að vera búið að uppfylla ákveðin skilyrði fyrir 22. júni sem voru lögð til grundvallar þegar skrifað var undir kjarasamninga þann 5. maí síðastliðinn. Það var mat fulltrúa beggja aðila eftir stíf fundarhöld að staðfesta fyrir sitt leiti gildistöku þeirra kjarasamninga. Þessu til […]
Hvetur til sóknar og að barist verði fyrir auknum aflaheimildum frekar en árar verði lagðar í bát

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur útvegsmenn á Vestfjörðum til að nýta þá möguleika sem gætu opnast með fyrirhuguðum breytingum laga á fiskveiðstjórnarkerfinu til að auka við aflaheimildir á Vestfjörðum. Stór og öflug sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum hafa forskot umfram aðra til sóknar. Þau hafa yfir að ráða öflugustu fiskiskipunum, stærstu og best mönnuðu fiskvinnslustöðvunum og mestri verkþekkingu í sjávarútvegi í fjórðungnum.
Fyrirhugaðar breytingar ættu því að vera tækifæri til aukinnar sóknar með stóaukinni eflingu atvinnulífs þannig að ávinningurinn skili sér sem best til sjómanna og fiskvinnslufólks, enda skapa þeir starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækjunum hin raunverulegu verðmæti.
Ósátt við starfslokasamning framkvæmdastjóra SGS

Vegna frétta og blaðaskrifa um starfslok framkvæmdastjóra SGS sem komu til í kjölfar endurskoðunarskýrslu Deloitte á fjármálum Starfsgreinasambands Íslands (SGS ) hafa stjórnarmenn í Verk Vest ákveðið að senda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:“Undirritaðir stjórnarmenn í Verk-Vest lýsa furðu sinni yfir starfslokasamningi við framkvæmdastjóra SGS og hvernig tekið hefur verið á málum er varða ýmsa óútskýrða […]
Kjaraviðræður við sveitafélögin í hnút

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna sleit á sjöunda tímanum í kvöld viðræðum sínum við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga. Samningar hafa verið lausir frá 1.desember 2010 og hafa viðræður um nýjan kjarasamning staðið yfir með hléum frá áramótum. Deilur standa milli aðila um launatöflu sem sveitarfélögin hafa boðið og leggja ofuráherslu á að ná fram. Fjölmennasti […]
Samningar náðust í kjaradeilu starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar

Saminganefnd starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum náði á áttunda tímanum í gærkvöldi að lenda kjaraviðræðum við SA og fulltrúa eigenda Þörungaverksmiðjunnar með endurnýjun kjarasamnings til þriggja ára. Óhætt er að segja að meginmarkmiðum samningarnefndar um að ná auknum kjarabótum fyrir þá lægst launuðu hafi tekist og vel það. Samninganefndin lagði upp með tvær launatöflur eina fyrir […]
Nokkrar staðreyndir vegna umfjöllunar um endurskoðun á fjárreiðum Starfsgreinasambands Íslands og starfsloka framkvæmdastjóra

Á framkvæmdastjórnarfundi þriðjudaginn 10. maí 2011 var lögð fram frá óháðum endurskoðanda sem fenginn var til verksins (Deloitte) „Skýrsla um könnun á bókhaldi Starfsgreinasambands Íslands 2010″ og „Minnisblað“ frá óháðum lögmanni, Páli Arnóri Pálssyni hrl.
Í skýrslu Deloitte eru meðal annars gerðar athugasemdir við óútskýrðan erlendan ferðakostnað sem stofnað var til af Skúla Thoroddsen framkvæmdastjóra SGS á árinu 2010. Þar koma fram ófullnægjandi skýringar á gjaldfærðum kostnaði að upphæð samtals kr. 779.285. Þess skal getið að í skýrslu Deloitte kemur fram að dagpeningagreiðslur til framkvæmdastjóra erlendis fyrir árið 2010 námu kr. 1.064.364 þrátt fyrir að kostnaður vegna ferðanna væri þar til viðbótar í mörgum tilfellum einnig greiddur.
Einnig bendir Deloitte á að ökutækjastyrkur framkvæmdastjóra innanlands nam samtals kr. 1.570.791 fyrir árið 2010. Þess ber að geta að framkvæmdastjóri fær að auki fastan bílastyrk kr.62.400 á mánuði á núvirði ( 600 km X 104 ) eða kr. 748.000 á ársgrundvelli. Í skýrslunni er vakin athygli á að framkvæmdastjóri miðar aksturs greiðslur ávallt við heimili sitt þrátt fyrir að ráðningastaður sé í Reykjavík og hann fái fastan bílastyrk miðað við það eins og áður hefur komið fram. Bílastyrkur til framkvæmdastjóra fyrir árið 2010 nam því um 2,3 miljónum króna.
Góð þátttaka í kosningu kjarasamninga – yfir 90% sögðu JÁ

Mjög góð þátttaka var í kosningu félagsmanna í Verk Vest um nýgerða kjarasamninga. En félagið viðhafði póstatkvæðagriðslu sem fór fram dagana 13 – 24. maí. Alls tóku 44% félagsmanna þátt í kosningu um kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og sögðu 97,2% þeirra sem kusu JÁ og 2,1% Nei, auðir seðlar og ógildir voru 0,7%. Hjá verslunar- […]
Kjaradeilur starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar hjá sáttasemjara

Fyrsti formlegi samningafundurinn í kjaradeilu starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar var haldinn undir verkstjórn ríkissáttasemjara mánudaginn 23. maí. Á fundinum var lagt fram nýtt tilboð starfsmanna sem byggir á launalið nýgerðs kjarasamnings bræðslumanna. En hjá Þörungaverksmiðjunni er unnið við þurrkun á þangi og því um mjölvinnslu að ræða og eðlilegast að miða við þau kjör sem náðust í […]
Kjaraviðræður í Þörungaverksmiðjunni sigla í strand

Kjaraviðræður vegna endurnýjunar kjarasamnings starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum hafa siglt í strand og verið vísað til ríkissáttasemjara. Viðræður milli aðila hafa staði með hléum frá því í október 2010 án teljanlegs árangurs, þrátt fyrir að sátt hafi náðst í lok janúar á þessu ári um að fylgja þeim línum sem kjarasamningar aðildarfélaga ASÍ lögðu og voru undirritaðir þann 5. maí sl. Í ljósi þessa gekk samningstilboð starfsmanna í megin dráttum út á að grunnhækkun taxta yrði sem svarar 0.9% hærri en hækkun lágmarkstekjutryggingar í almennu kjarasamningunum. Verður það að teljast mjög sangjarnt tilboð sérstaklega ef horft er til sambærilegra starfa eins og t.d. í mjölvinnslum og þeim hækkunum sem þar náðust. Í viðræðunum var megin áhersla lögð á að tryggja betur laun þeirra tekjulægri í verksmiðjunni og horfa þannig til samræmdu launastefnu Samtaka atvinnulífsins. Á fundi aðila þann 12. maí sl. var ljóst á svörum fulltrúa Þörungaverksmiðjunnar að öllum tilboðum starfsmanna væri hafnað þrátt fyrir að þau væru í samræmi við þann samning sem hafði verið skrifað undir þann 5. maí á almennum markaði.
Starfsmannafundur í Þörungaverksmiðjunni mánudaginn 16.maí

Viðræðunefnd starfsmanna í Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum hefur ákveðið að boða til starfsmannafundar í matsal Þörungaverksmiðjunnar kl.12.00 mánudaginn 16. maí næst komandi. Fundarefnið er sú staða sem er komin upp í kjaraviðræðum við stjórn verksmiðjunnar vegna endurnýjunar kjarasamninga starfsmanna. Viðræðunefnd starfsmanna lagði fram tilboð um kaupkröfur til stjórnar verksmiðjunar í lok október 2010 en lítið hafði þokaðist í samkomulagsátt á samningafundum aðila og stefnir allt í deilur milli aðila. Kröfur starfsmanna voru á hógværu nótunum og í samræmi við þá launastefnu sem mótuð var í aðdraganda þeirra kjarasamninga sem voru undirritaðir milli aðildarfélaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins þann 5. maí síðast liðinn.
Aðalfundur Verk Vest laugardaginn 21.maí

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði laugardaginn 21. maí kl.11.00. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins. Dagskrá:1. Setning fundarins 2. Kosning starfsmanna fundarins 3. Skýrsla stjórnar 4. Kynntur ársreikningar starfsárið 2010 5. Lýst kjöri stjórnar, varamanna í stjórn, trúnaðarmannaráði og annarra trúnaðrastarfa 6. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð 7. Lögð fram […]
Kjörgögn send út

Mikill handagangur hefur verið á skrifstofu félagsins vegna nýrra kjarasamninga sem Verk Vest er aðili að. Yfirferð á kjörskrám og afstemming þeirra ásamt því að útbúa kynningarefni til félagsmanna vegna samninganna hefur bæst við annann erill á skrifstofunni. Kjörseðlar ættu að vera berast félagsmönnum þessa dagana og er áríðandi að bregðast fljótt og vel við […]
Ný kynnig vegna kjarasamninga

*** UPPFÆRT ***Á heimasíðu ASÍ er verið að setja inn meira kynningarefni vegna nýju kjarasamninganna. Fyrsta kynningarmyndbandið er um helstu atriði kjaraliðs samningsins. Umsjónamaður þessarar fyrstu kynningar er Ólafur Darri Andrason hagfræðingur hjá ASÍ. Myndbandið er um 10 mínútur í spilun og fylgja skýringarglærur með. Fljótlega verður einnig hægt að nálgast fleiri kynningar um kjarasamninginn. […]
New Collective Agreement

On Thursday May 5th a new Collective Agreement on the
private labour market was signed on behalf of the trade unions.
Workers in the
country who are members of the unions within The Icelandic Confederation of
Labour (ASÍ) have had no agreement with their employers for almost half a year.
During this period purchasing power has
decreased, we have been facing growing unemployment, many have experienced a
sharp drop in their income as working hours have been cut and many have to
accept job sharing and part time work. The bargaining negotiations of last
months have been especially difficult for the negotiators as increase in wage
payments have been dragged for months when people really need a pay rise. It
has been of great help to our negotiators that people in the unions have been
very supportive and all decisions have been made in complete agreements. The new agreement will be put to vote in the
trade unions and has to be ratified before May 25th in order to come
in to force.
It is clear that if
the unions and employers had not reached an agreement the road was open for
serious industrial disputes as the trade unions had started preparing for
massive strikes in the country.