Er þínar upplýsingar réttar?

Þann 1. febrúar mun Verk Vest greiða í fyrsta sinn úr Félagsmannsjóði til félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum á félagssvæðinu. Greiðslan er vegna ársins 2022, en forsenda þess að hægt verði að greiða úr sjóðnum til félagsmanna er að félagið hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang þeirra félagsmanna sem eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum. Kíktu […]
Miðstjórn ASÍ ályktar um miðlunartillögu ríkissáttasemjara

Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að traust á embætti ríkissáttasemjara hefur skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA. Miðstjórn telur að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. […]
Greiðslur úr Félagsmannasjóði starfsfólks sveitarfélaga 1. febrúar 2023

Allir félagsmenn Verk Vest sem störfuðu hjá sveitarfélagi á árinu 2022 eiga að fá greitt úr Félagsmannasjóði SGS í byrjun febrúar nk. Iðgjald í sjóðinn er 1,5% af heildarlaunum. Síðastliðin tvö ár hefur umsýsla sjóðsins verið hjá Starfsgreinasambandinu (SGS) en í fyrra haust var gerð breyting á og nú mun aðildarfélögin sjálf um umsýslu sjóðsins […]
Samið um nýja kauptaxta hjá starfsfólki sveitarfélaga

Nýir kauptaxtar hjá starfsfólki sveitarfélaga tóku gildi um áramótin og eru þeir nú aðgengilegir á vef Verk Vest. Gildistími kauptaxta er frá 1. janúar til 30. september 2023 en þá rennur gildandi kjarasamningur út. Nýir kauptaxtar hækka grunnlaun í launaflokki 117 að lágmarki um 35.000 kr. skv. nýrri launatöflu en hækkun grunnlauna nemur á bilinu 35.000 kr. til 49.359 kr. […]
Nýjar deildarstjórnir kosnar á aðalfundi deilda og trúnaðarráðs

Á opnum fundi Trúnaðarráðs og aðalfundi starfsgreinadeilda Verk Vest voru kjörnar nýjar deildarstjórnir samkvæmt 4. gr. laga félagsins. Innan Verk Vest starfa fimm starfsgreinadeildir þar sem hópar launafólks er hafa sérstöðu um fagleg málefni sem og kaup og kjör eiga samleið. Starfsgreinadeildirnar eru Matvæla- og þjónustudeild hjá SGS, Opinber deild hjá SGS, Verslunar- og skrifstofudeild […]
Auglýst eftir framboðum til stjórnar og trúnaðarráðs Verk Vest

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2023 til 2025 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og […]
Auglýst eftir umsjónarfólki fyrir Orlofsbyggðina í Flókalundi

Stjórn Orlofsbyggðarinnar í Flókalundi óskar eftir að ráða umsjónarmann byggðarinnar í fullt starf frá og með 2. maí 2023. Árlegur starfstími umsjónarmanns er frá 2. maí til 30. september 2023. Leitað er eftir handlögnum einstaklingi eða tveimur samhentum einstaklingum til að hafa umsjón með umhverfi, orlofshúsum og sundlaug byggðarinnar. Umsækjandi þarf einnig að geta sinnt […]
Jólaglaðningur eldra félagsfólks í Verk Vest

Nú sem og endranær færir Sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Vestfirðinga félagsfólki sem hefur lokið starfsævinni Jólaglaðning ásamt fallegu korti frá félagssvæðinu. Á árinu 2018 varð sú breyting á myndefninu að sjóðsstjórnin óskaði eftir því við elsta félagsfólk Verk Vest að að sitja fyrir á myndum sem prýða Jólakort félagsins. Lögð hefur verið áhersla á að finna elstu […]
Launareiknivélar LÍV

Í kjarasamningum sem undirritaðir voru í desember 2022 var samið um 6,75% hækkun launa, þó að hámarki 66.000 kr. En launataxtar hækkuðu hlutfallslega meira, sjá launataxta. Reiknivél fyrir mánaðarlaun Reiknivél fyrir taxtalaun Launareiknivélar LÍV sýna laun árið 2023 í samanburði við laun 2022. Til að finna út núverandi mánaðarlaun út frá tímakaupi skal margfalda dagvinnutímakaup […]
Kjarasamningur SGS og Verk Vest vegna Þörungaverksmiðjunnar samþykktir

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði sem Verk Vest er aðili að liggja nú fyrir. Nýr kjarasamningur var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 17 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 9. til 19. desember. Í heildina var kjörsókn hjá SGS félögum 16,56%, […]
Skrifað undir nýjan kjarsamning við Þörungaverksmiðjuna

Á þriðja tímanum í dag var skrifað undir nýjan kjarasamning Verk Vest við Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum. Nýr kjarasamningur er í anda þeirra samninga sem hafa verið gerðir við félög innan ASÍ að undanförnu með áherslu á launatöflubreytingu og krónutöluhækkun líkt og í kjarasamningi SGS. Þær áherslur skila taxtalauna fólki í verksmiðjunni mjög góðum krónutöluhækkunum frá kr. […]
Kynning á kjarasamningi iðnaðarmanna

Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Félag járniðnaðarmanna á Ísafirði verða með kynningu á nýjum kjarasamningi Samiðnar í Alþýðuhúsinu á Ísafirði 3. hæð kl.20.00 fimmtudaginn 15. desember. Streymt verður frá kynningu Samiðnar. Kynningarefni samningsins má finna hér.
Nýjir kjarasamningar fyrir verslunar-, skrifstofu- og iðnaðarfólk í Verk Vest undirritaðir

Landssamband íslenskra verslunarmanna (LÍV) og Samiðn hafa undirritað kjarasamning við Samtök atvinnulífsins fyrir félagsmenn í Verk Vest. Um er að ræða skammtímasamning sem gildir frá 1. nóvember 2022 og rennur út 31. janúar 2024. Samningurinn felur í sér umtalsverðar kjarabætur. Frá og með 1. nóvember 2022 hækka mánaðarlaun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum um […]
Upplýsingar um nýjan kjarasamning SGS

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur tekið saman ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands (SGS) og Samtaka atvinnulífsins (SA). Á síðunni er m.a. að finna öll helstu atriði samningsins á íslensku, ensku og pólsku, Félagsmenn sem starfa skv. umræddum samningi eru hvattir til að að kynna sé samninginn vel og nýta atkvæðisrétt sinn, en atkvæðagreiðsla um samninginn […]
Desemberuppbót 2022

Kjarasamningum samkvæmt fær launafólk greidda desemberuppbót, en skilyrði uppbótar má finna í viðeigandi kjarasamningi sem finna má á kjaravef Verk Vest. Hér eru upplýsingar um upphæðir og síðasta greiðsludag miðað við fullt starf: Almennur vinnumarkaður: Kr. 98.000 sem greiðist í síðasta lagi 15. desember (flestir atvinnurekendur greiða þetta út með launum 30.nóv.) Ríkisstarfsmenn: Kr. 98.000 sem […]
Minnumst verkafólks á blóðvöllum HM

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hvetur landsmenn alla, og áhugafólk um knattspyrnu sérstaklega, til að gleyma ekki þeim fórnum sem farandverkafólk færði við byggingu mannvirkja og annan undirbúning vegna heimsmeistaramóts í knattspyrnu karla í Katar. Talið er að 6.500 manns hafi týnt lífi við störf tengd undirbúningi mótsins. Raunverulegur fjöldi liggur ekki fyrir því stjórnvöld í […]
Við höfnum gerræði og hótunum innan ASÍ

Línur eru teknar að skýrast varðandi framtíð Alþýðusambandsins. Ragnar Þór Ingólfsson hefur tilkynnt um forsetaframboð og lýst yfir stuðningi við Kristján Þórð Snæbjarnarson, Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Vilhjálm Birgisson í embætti varaforseta. Ragnar Þór hefur jafnframt lýst því yfir að hann ætli sér ekki að sleppa tökunum á VR í komandi kjaraviðræðum og sitja sem formaður […]
Trúnaðarmenn Verk Vest á námskeiði

Trúnaðarmenn hjá Verk Vest luku námslotu 6 hjá Félagsmálaskóla Alþýðu sem haldin var í Heydal í Mjóafirði við Djúp. Leiðbeinendur í 6 lotu voru þau Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ sem fjallaði um helstu hagfræðihugtök í daglegu lífi og í kjarasamningagerð, s.s. kaupmátt launa, mun á hlutfallslegri hækkun eða krónutöluhækkun. Bergþóra Guðjónsdóttir sem kynnti helstu hugtök í samningtækni. Lögð […]
Helgartilboð í Flókalundi

Framundan er síðasta opnunarhelgin í Orlofsbyggðinni í Flókalundi og það spáir fallegu haustveðri. Af því tilefni er boðið upp á helgartilboð frá fimmtudegi til mánudags kr. 20.000. Nú gildi reglan fyrstur kemur fyrstur fær! Bókanir eru á orlofsvef félagsins eða í síma 4565190
Opnum aftur á Patreksfirði

Frá 1. september mun starfsemi og þjónusta á skrifstofu félagsins á Patreksfirði aftur komast í eðilegt horf með ráðningu starfsmanns í tímabundna afleysingu. Sigurbjörg Ásgeirsdóttir í Neðri Tungu við Patreksfjörð mun taka við keflinu af Völu Dröfn sem er á leið í fæðingarorlof. Opnunartími skrifstofunnar verður óbreyttur frá kl.09.30 – 15:00 alla virka daga.
Yfirlýsing frá formönnum innan SGS vegna afsagnar Drífu Snædal, forseta ASÍ

Við undiritaðir formenn félaga innan Starfsgreinasambands Íslands viljum þakka fráfarandi forseta ASÍ fyrir farsælt og gefandi samstarf undanfarin 10 ár. Fyrst með flestum okkar sem framkvæmdastjóri SGS og síðustu fjögur ár sem forseti ASÍ. Drífa hefur verið róttæk, sýnileg og fylgt áherslum Alþýðusambands Íslands mjög vel eftir og verið hreyfingunni til sóma á allan hátt. […]
Aðalfundur Verk Vest veitir RKÍ styrk

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti að svara ákalli frá félögum okkar í verkalýðsfélögum í Úkraínu og nágrannaríkjum þeirra um stuðning í orðum og verki. Stjórn Verk Vest lítur á það sem samfélagsskyldu félagsins að veita stríðshrjáðum flóttamönnum aðstoð og lagði því til við aðalfund félagsins að veita styrk til Rauðakross Íslands (RKÍ). Félagar á aðalfundi samþykktu […]
Lokað vegna viðhalds á tölvukerfi og búnaðar

Skrifstofur félagsins á Ísafirði og Patreksfirði verða lokaðar frá kl.13.00 föstudaginn 10. júní vegna viðhalds á tölvukerfum félagsins og uppfærslu á búnaði þeim tengdum. Félagsmenn eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kanna að valda. Starfsfólk Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði.
Laust í Ölfusborgum 10.-17. júní

Vegna forfalla er hús nr. 32 í Ölfusborgum laust 10. – 17. júní. Fyrstur kemur fyrstur fær!
Nokkrar vikur enn lausar á Spáni

Nokkrar vikur eru enn lausar í húsi félagins í Los Arenales del Sol á Spáni. Í júní er laust frá 1. – 16. júní. Í ágúst er laust frá 16. – 30. ágúst Í september er laust frá 13. september og áfram inn í veturinn. Almennar upplýsingar um húsið og staðsetningu má finna hér. Fyrir […]
Miðstjórn gagnrýnir aðgerðaleysi stjórnvalda harðlega

Miðstjórn Alþýðusambandsins kallar eftir tafarlausum aðgerðum til að bregðast við hratt vaxandi verðbólgu og óásættanlegri stöðu á húsnæðismarkaði. Sú kjararýrnun sem almenningur verður fyrir þessa dagana vegna verðbólgu og hækkandi vöru- og húsnæðisverði mun hafa veruleg áhrif á kjaraviðræður komandi hausts. Verðbólga mælist 7,2% um þessar mundir og hefur ekki verið hærri frá fjármálahruni. Helsti […]
Launafólk! til hamingju með baráttudaginn okkar 1. maí

Yfirskrift baráttudags launafólks í ár er “ Við Vinnum“ en það er einmitt vinnandi fólk skapar verðmæti samfélagsins og heldur hjólum atvinnulífsins gangandi. Aldrei varð þetta skýrara en í gegnum heilan heimsfaraldur þar sem launafólk stóð vaktina og hélt öllu samfélaginu gangandi. Í lok dags var það svo að mörg fyrirtæki gátu vel við unað […]
SZKOLA BIUROWA NTV I ISLANDZKI W PRACY BIUROWEJ MÍMIR- KURS ONLINE

W przypadku pracy biurowej znajomosc komputera jest kluczowa. Oferujemy Panstwu szkolenie biurowo-komputerowe, które jest skierowane do osób pragnacych rozszerzyc swoje umiejetnosci zawodowe lub zmienic profil zatrudnienia. Kurs obejmuje równiez nauke jezyka islandzkiego potrzebnego do pracy w biurze. Kurs jest przeznaczony glwwnie dla osób z niepelnym wyksztalceniem. Kolejny kurs rozpoczyna sie 25 kwietnia i potrwa do […]
Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG

Verk Vest augslýsir eftir ungu fólki á aldrinum 16 – 35 ára til að taka þátt í fræðslu- og tengsladögum ASÍ – UNG. Viðburðurinn er ætlaður öllu ungu fólki hjá Verk Vest sem eru 16-35 ára, og hafa áhuga á starfi stéttarfélaga. Tími: 28.-29. apríl 2022 Staðsetning: Haldið á Hótel Harmi í Borgarfirði og er gert ráð […]
Framleiðni hækkar umfram laun

Framleiðni hækkar umfram laun Í nýlegu mánaðaryfirliti var að finna samantekt á nýjum gögnum Hagstofunnar um laun og framleiðni í hagkerfinu. Gögnin frá Hagstofunni sýna að framleiðni hækkaði umfram laun milli 2020 og 2021. Framleiðni og laun eru skilgreind sem framleiðsla og laun auk launatengdra gjalda á hverja unna vinnustund. Framleiðni jókst um 4,1% í […]