1.maí hátíðarhöldin á Vestfjörðum

Í dag eru 15 þúsund einstaklingar á atvinnu. Getum við sætt okkur við það? Við viljum vinna !
Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.
Orlof og orlofsuppbót 2010

Samkvæmt 4. gr. orlofslaganna er orlofstímabilið frá 2. maí – 15. september og skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu. Þó er heimilt samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna að stytta orlofið á tímabilinu þannig að aldrei verði veittir færri en 14 dagar samfellt á sumarorlofstímabilinu, enda liggi sérstakar rekstrarástæður að baki. Í því samhengi er rétt að benda á að sé orlof tekið utan ofangreinds orlofstímabils að ósk atvinnurekanda þá lengist orlofið um 25%.
Nýtt umsjónarfólk í orlofsbyggðinni Flókalundi

Gunnar Karl Gunnarsson sem verið hefur umsjónarmaður orlofsbyggðar stéttarfélaganna í Flókalundi óskaði fyrr í vetur eftir lausn frá störfum sem umsjónarmaður. Ákveðið hefur verið þau sem hafa leyst Gunnar Karl af undanfarin sumur verði ráðin í hans stað. Nýtt umsjónarfólk ætti að vera mörgum Vestfirðingum að góðu kunn en þau eru Kristjana Jónatansdóttir, dóttir Tana […]
ASÍ vill víðtækt samráð

Alþýðusamband Íslands boðaði til fundar í gær með þeim aðilum sem höfðu frumkvæði að stöðugleikasáttmálanum í fyrra. Krafa ASÍ er að Samtök atvinnulífsins komi aftur að borðinu enda sé verkefnið sem gengið var til sl. sumar enn óleyst. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir ljóst að efnhagsaðgerða sé þörf til að koma hjólum atvinnulífisins af stað. […]
**** LAUST Í SVIGNASKARÐI ****

Vegna forfalla var hús nr. 9 (minna húsið) í Svignaskarði að losna frá 23 – 30.apríl. Þannig að nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Algjör sprenging í umsóknum sumarhúsa Verk Vest

Það má segja að algjör sprenging hafi orðið í umsóknum sumarhúsa hjá Verk Vest fyrir komandi sumar. á Síðasta ári voru umsóknir 134 en 200 í ár, umsóknir sem bárust eftir lok skilafrestar voru 23 sem koma ekki til úthlutunar fyrr en eftir 5. maí. Af þessu leiddi að draga þurfti um allnokkrar vikur í sumar, þannig að ekki fengu allir óska vikuna. Útdrátturinn fór fram á skrifstofu félagsins nú í morgun, en til að tryggja að allt færi sem réttast fram sá Önundur Jónsson yfirlögregluþjónn um útdráttinn. Þeir sem hafa fengið úthlutað eru minntir á að ganga frá greiðslu á bústöðum fyrir 5. maí næst komandi eða hafa samband um greiðslufyrirkomulag fyrir þann tíma. Verði það ekki gert verður öðrum félagsmönnum úthlutað viðkomandi tímabil. Ákveðið hefur verið að hafa þann háttinn á að þeir sem fengu úthlutað fá sent bréf sem staðfestir úthlutunardaga.
Verk Vest gefur út upplýsingarit vegna gjaldþrota

Verk Vest hefur gefið út upplýsingarit fyrir félagsmenn um það ferli sem fara þarf í verði fyrirtækið sem þeir vinna hjá gjaldþrota. þar er reynt að veita svör við ýmsum spurningum sem launamenn þurfa hafa í huga við gjaldþrot vinnuveitanda eins og t.d. hvort starfsmenn séu bundnir af ráðningarsamningi við gjaldþrot ? Hverjar eru forgangskröfur […]
Miðstöð munnlegrar sögu – góður gestur á ferð

Góðan gest bar að garði í þesari viku til okkar á Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Hér er á ferðinni Þorgrímur Gestsson blaðamaður og rithöfundur, sem vinnur að sérstöku verkefni á vegum Alþýðusambands Íslands við að taka viðtöl við fólk úr verkalýðshreyfingunni víðsvegar um landið. Verkefnið er unnið í samstarfi við stofnun á vegum Háskóla Íslands sem nefnist […]
Orlofssjóður Verk Vest stendur í stórræðum

Unnið hefur verið að endurbótum á nokkrum af sumarbústöðum félagsins, má þar nefna að að húsið á Illugastöðum var endurnýjað nánast frá grunni, en engar endurbætur höðu verið gerðar á húsinu undan farin ár. Í dag er bústaðurinn allur hinn glæsilegasti, öll húsgögn og tæki endurnýjuð enda ekki vanþörf á. Eftirleiðis ætti því ekki að […]
Nýr trúnaðarmaður hjá Eyrarodda hf. á Flateyri

Nýr trúnaðarmaður var kjörinn hjá Eyrarodda hf. á starfsmannafundi sem haldinn var þann 7.apríl sl. Eyraroddi hf. er vinnustaður með starfsfólk af blönduðu þjóðerni og því kemur það ekki á óvart að trúnaðarmaður sé af erlendu bergi. Nýji trúnaðarmaðurinn heitir Lolita T. Malagar og er frá Filipseyjum en hún kemur í stað Janinu M. Kryszewska […]
Færðu félaginu handunnið veggteppi

Pjötlurnar sem eru hópur handverkskvenna af norðanverðum Vestfjörðum færði félaginu forláta veggteppi að gjöf á dögunum. Teppið er þakklætisvottur handverkshópsins til félagsins vegna afnota af Bjarnaborg sem er húsnæði félagsins á Suðureyri . En stjórn félagsins samþykkti að lána þeim húsnæðið vegna námskeiðahalds endurgjaldslaust. Veggteppið er allt hið vandaðasta og mun prýða forstofu Bjarnaborgar. Er […]
Þolinmæðin á þrotum – Við viljum vinna !

Það var þungt hljóðið í fundarmönnum á fundi formanna og varaformanna aðildarfélaga ASÍ sem fram fór á Grand Hótel í Reykjvík í gær. Þung orð voru látin falla um þá undarlegu hegðun sem SA og ríkisstjórnin hafa sýnt af sér eftir að hinn svokallaði „Stöðugleikasáttmáli“ var undirritaður fyrir 9 mánuðum síðan. Meðgöngutími sáttmálans hefur verið launafólki mjög erfiður, ítrekuð svik ríkisstjórnar við ákvæði sáttmálans í formi skattahækkana og árása á velferðarkerfið hafa komið verulega illa við buddu launafólks.
SGS lýsir vonbrigðum með afstöðu LÍÚ

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins lýsir vonbrigðum yfir fjarveru LÍÚ og Samtaka Fiskvinnslustöðva úr Ráðgjafanefnd sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnunarkerfið. „Það er ekki vænleg leið til farsællar niðurstöðu og sátta að stunda hótanir og ofríki í stað málefnalegrar umræðu og þá sérstaklega ekki þegar horft er til þeirra sérhagsmuna sem útvegsmenn eru að vernda,“ segir í ályktun framkvæmdastjórnar SGS frá 16. mars s.l. „Taka verður mið af byggðarsjónarmiðum við löndun og vinnslu sjávarfangs, þannig að útvegsmenn séu ekki einráðir um löndun hráefnis til fiskvinnslustöðva eða sölu á erlenda markaði,“ segir ennfremur í ályktun sem framkvæmdarstjórn SGS samþykkti að senda frá sér að loknum umræðum um þessi málefni
„Krefjumst aðgerða gegn atvinnuleysinu“ – ályktun SGS

Á fundi Starfsgreinasambands Íslands voru til umfjöllunar meðal annarra mála þau fjárfestingarverkefni sem ríkisstjórnin hafði lofað við gerð stöðugleikasáttmálans. Þetta eru fjárfestingaverkefni upp á 280 – 380 milljarða króna á ári næstu 3 árin sem gætu skilað um 26 þúsund ársverkum á næstu árum, framkvæmdir sem mundu hafa veruleg áhrif á efnahagsframvindu næstu ára, takist að koma einhverjum hluta þeirra á legg. Þessar framkvæmdir myndu því slá á gríðarlegt atvinnuleysi sem er og fer vaxandi.
Skipulagsmál – fundarherferð ASÍ um landið

Undanfarnar vikur hefur hópur starfsmanna á skrifstofu ASÍ farið um landið og átt fundi með fulltrúum úr stjórnum, varastjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga ASÍ þar sem rætt hefur verið um skipulag Alþýðusambandsins. Fundaröðin hófst í Reykjavík 10. febrúar og líkur á Selfossi þann 23. mars. Markmið fundanna er að fá fram með skipulögðum hætti viðhorf og […]
Áfram Vestur – „Góðar samgöngur eru lífæð hverrar byggðar“

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendi almennum borgarafundi á Patreksfirði sem haldin var um heilsárs samgöngubætur milli norður- og suðursvæðis Vestfjarða eftirfarandi hvatningu með baráttukveðju:
„Verkalýðsfélag Vestfirðinga leggur sérstaka áherslu á að tengja norður- og suðursvæði Vestfjarða í einni framkvæmd með jarðgöngum og vegabótum. Þá er ítrekað að útboð geti farið fram sem fyrst þannig að framkvæmdarinnar í heild sinni geti hafist eins fljótt og auðið er.
Félagsblað Verk Vest komið út

Starfsfólk skrifstofu stéttarfélagann á Ísafirði hefur haft í nógu að snúast þessa dagana líkt og endra nær. En þessa dagana bætist ofan á allt annríkið frágangur og útgáfa á fyrsta tölublaði sem félagið gefur út. Í blaðinu eru fréttir af félagssvæðinu, kjaramál, ferðasögur og orlofsferðir 2010 svo eitthvað sé nefnt. Þá fylgir einnig með blaðinu […]
Starfslok – að hverju þarf að huga ?

Mörgum reynast starfslok vegna aldurs, eða að öðrum orsökum, erfið. Fólk Kvíðir því að fjárhagurinn þrengist, það kvíðir aðgerðarleysinu og þannig mætti áfram telja. Það er þó óvissan sem reynist mörgum erfiðust.Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum bjóða félagsmönnum sínum að taka þátt í námskeiði sem fjallar um ýmis þau atriði sem rétt […]
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna – Frelsi til fjölskyldulífs

Fjölmenni sótti hádegisverðarfund í dag af tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars en boðað var til fundarins af verkalýðshreyfingunni, Jafnréttisstofu og Jafnréttisráði. Yfirskriftin var Frelsi til fjölskyldulífsmeð áherslu á samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.
Gyða Margrét Pétursdóttir doktor í kynjafræðum flutti erindi þar sem hún fjallaði m.a. um að útivinnandi mæðurættu oft erfitt með að samræma fjölskyldulíf og atvinnu. Þær notuðu oft „Pollýönnuleikinn“, þ.e. að bæru stöðu sína saman við þær sem eru í ennþá verri stöðu. Þær slá í og úr, finna viðmið og öfgaviðmið „…þetta sleppur allt… ef ég væri til dæmis einstæð og ekki með foreldra þá væri þetta mjög erfitt.“ Gyða Margrét lagði áherslu á að mikið vinnuálag væri á nútímakonum og nauðsynlegt væri að huga að styttingu vinnutímans.
Aukið atvinnuleysi – tökum á svartri atvinnustarfsemi !

Á stjórnarfundi Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem var haldinn í húsi félagsins á Suðureyri í gærkvöldi var staða atvinnumála mjög til umræðu. Áhyggjur fundarmanna beindust helst að því hversu mjög atvinnuleysi í fjórðungnum hefur aukist. Einnig þá staðreynd að þrátt fyrir að íbúmum fjórðungsins hafi fækkað nokkuð á síðasta ári þá hefur atvinnuleysi aukist meira en gert var ráð fyrir. Þetta hlýtur að vekja okkur til umhugsunar um að þrátt fyrir að hluti af atvinnulausum flytist á brott þá erum við samt að sjá umtalsverða aukningu á atvinnuleysi. Þessi staðreynd segir okkur að störfum í fjórðungnum hefur fækkað mun meira en nemur brottfluttum.
Dökkar horfur í ár en batna á næsta ári – endurskoðuð hagspá ASÍ

Í endurskoðaðri hagspá hagdeildar ASÍ er gert ráð fyrir meiri samdrætti en spáð var í haust og hægari bata í efnahagslífinu. Enn ríkir mikil óvissa um stóriðjuframkvæmdir og allt útlit fyrir að þær frestist a.m.k. fram á næsta ár sem hefur þær afleiðingar að samdrátturinn í ár verður meiri en ráð var fyrir gert og atvinnuleysi meira. Fyrir heimilin þýðir þetta meiri samdrátt í kaupmætti og versnandi lífskjör fram á næsta ár.
Ályktun miðstjórnar um atvinnu- og efnahagsmál

Miðstjórn ASÍ lýsir áhyggjum af þeirri miklu óvissu sem ríkir um framvindu íslensks efnahags- og atvinnulífs. Dráttur á lausn ICESAVE málsins hefur sett efnahagsáætlun Íslands og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins sem og afgreiðslu lána frá vinaþjóðum í uppnám. Afleiðingarnar eru að erfitt ef ekki ómögulegt er að fjármagna þær stórframkvæmdir sem hefjast áttu á þessu ári.
Þá gagnrýnir miðstjórn ASÍ seinagang stjórnvalda við að taka nauðsynlegar ákvarðanir sem snúa að atvinnuuppbyggingu og endurreisn efnahagslífsins.
Réttur fólksins, ekki rukkaranna

Miðstjórn ASÍ krefst nú þegar aðgerða af hálfu stjórnvalda til að bregðast við greiðsluvanda þeirra heimila sem verst standa.Ríkisstjórnin hefur haft heilt ár til að bregðast við fjárhagslegu hruni þúsunda heimila. Aðgerðirnar hafa verið í skötulíki. Bankar og fjármálastofnanir hafa verið fengnar til að útfæra björgunaraðgerðir, stofnanir sem hugsa fyrst og fremst um að lágmarka eigin skaða en ekki endilega um heill skuldarans. Þetta er aðferðafræði sem miðstjórn ASÍ hafnar.
Við viljum vinna – ályktun miðstjórnar ASÍ

Á fundi miðstjórnar miðvikudaginn 10.febrúar var aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart launþegum í landinu mjög til umræðu. Ekkert ber á þeim sértæku úrræðum sem skuldsettum heimilum hafði verið lofað og eru þolmörk margra heimila löngu brostin vegna þessa. Þá hefur lítið borið á fyrirheitum til að koma hjólum atvinnulífsins almennilega í gang, þar situr allt við sama keyp, nánast engar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða sveitarfélaga og niðurskurðarhnífurinn á lofti. Á fundinum var samþykkt að eftirfarandi ályktun yrði send út.“Atvinnuleysi er böl. Það er því forgangsmál að stuðla með öllum tiltækum ráðum að aukinni atvinnu um leið og við verjum störfin.
Stjórn Verk Vest mótmælir lokun svæðisútvarps Vestfjarða

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Ríkisútvarpsins ohf, að segja upp starfsfólki og loka starfsstöð svæðisútvarpsins á Vestfjörðum. Miklu máli skiptir fyrir landsbyggðina að hafa ákveðinn vettvang þar sem málefni líðandi stundar, menning og fréttir innbyrðis á svæðinu fær góða umfjöllun. Slík umræða tengir landsbyggðina betur saman og styrkir sjálfsímynd íbúanna. Stuttir fréttapistlar af […]
Gríðarleg fjölgun á atvinnuleysisskrá mikið áhyggjuefni

Frá áramótum hefur fjölgað gríðarlega á atvinnuleysisskrá hjá vinnumálastofnun á Vestfjörðum, eða úr 133 ainstaklinga í lok desember 2009 í 161 einstakling þann 9. febrúar 2010. Á sama tíma fyrir rúmu ári voru 83 einstaklingar á átvinnuleysisskrá hér á Vestfjörðum og þótti mönnum nóg um þá. Nýjustu tölur segja okkur að atvinnuleysi í fjórðungnum hafi aukist um nærfellt 100% á þessu tímabili. Þrátt fyrir það berja menn sér á brjóst og tala um að hlutfall atvinnulausra sé lang minnst á Vestfjörðum, við þurfum ekki að hafa svo mikla áhyggjur.
Þörungavinnslan á Reykhólum til fyrirmyndar í forvörunm

Þörungavinnslan á Reykhólum var valin fyrirmyndarfyrirtæki VÍS í forvörnum árið 2010. Bílson bílaverkstæði og Strætó bs. hlutu einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í forvörnum. Verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn á sameiginlegri ráðstefnu félagsins og Vinnueftirlitsins um forvarnarmál sem hátt í 180 manns tóku þátt í. Þörungavinnslan fékk afhentan veglegan farandgrip til varðveislu næsta árið. Forvarnarverðlaunum VÍS er ætlað að undirstrika mikilvægi þess að vinna skipulega að öryggis- og forvarnarmálum. Forvarnarverðlaunin verða veitt árlega, þeim viðskiptavinum VÍS sem þykja hafa skarað fram úr í öryggis- og forvarnarmálum, eins og fram kom í setningarávarpi Guðmundar Arnar Gunnarssonar, forstjóra VÍS, á ráðstefnunni.
Stjórnarsamþykkt vegna lokunar Sólborgar á Flateyri

Á stjórnarfundi félagsins sem var haldinn í gær var samþykkt að félagið sendi frá ser eftirfarandi stjórnarsamþykkt vegna lokunar öldrunarheimilisins Sólborgar á Flateyri.
„Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga beinir þeim eindregnu tilmælum til heilbrigðisráðherra að ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða um lokun á öldrunarheimilinu Sólborg á Flateyri verði tekin til endurskoðunar og hún dregin til baka.
Trúnaðar – og talsmenn Verk Vest og Fos Vest á námskeiði

Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum héldu sameiginlegt námskeið fyrir trúnaðar – og talsmenn félaganna mánudaginn 25. janúar síðast liðinn. Mjög góð þátttaka var á fundinum, og komu félagsmenna víðsvegar af Vestfjörðum enda nánast sumarfærð í fjórðungnum. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Eyþór Eðvarðsson, en hann fór yfir erfiðu mál trúnaðarmannsins eins og eineltismál, samskiptaerfiðleikar, kynferðilega áreitni og önnur þau mál er varða trúnaðarmanninn sem ráðgjafa á vinnustaðnum.
Vel heppnuðu dyravarðanámskeiði lokið

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum í samstarfi við Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Tryggingamiðstöðina og slökkvilið Ísafjarðarbæjar stóðu fyrir dyravarðanámskeiði dagana 11 – 14.janúar sl. Samkvæmt nýjum reglum þurfa dyraverðir að ljúka sambærilegu námskeiði til að meiga starfa sem slíkir. Megin áhersla var lögð á að hafa námskeiðið sem fjölbreytilegast og blanda saman verklegu og bóklegu. Námskeiðinu var vel tekið af veitingahúsaeigendum á norðanverðum Vestfjörðum og tóku 15 dyraverðir og eigendur veitingastaða þátt.