Félagsferð Verk Vest um Ísafjarðardjúp þótti takast vel

Það voru ánægðir félagsmenn sem stigu út úr rútunni að kvöldi laugardagsins 13. júní sl. eftir hringferð um Ísafjarðardjúp. Hópurinn sem taldi 41 félagsmann lagði af stað kl. 10 um morguninn undir styrkri fararstjórn Ara Sigurjónssonar oftast kenndur við bæinn Þúfur í Vatnsfirði. Ari gjörþekkir staðhætti í djúpinu eftir áratugalangan búskap þar áður en hann flutti á mölina. Hópurinn kom við í Ögri þar sem Halldór Hafliðason tók á móti hópnum og lóðsaði hann um gamla kirkjustaðinn í Ögri. Á inn eftir leiðinni var stutt stopp hjá Ferðaþjónustunni í Reykjanesi,
Laust í íbúð í Reykjavík 3. – 10 júlí

Vegna forfalla var tímabilið 3. – 10. júlí á Hagamel að losna. Nú er um að gera að bregðast fljótt við og hafa samband við skrifstofu félagsins í 4565190. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Vel heppnaður fjölskyldudagur Verk Vest í Raggagarði

Félagsmenn í Verk Vest og fjölskyldur þeirra áttu frábæra samverustundi í Raggagarði í Súðavík í sól og blíðu á laugardaginn var. Komu félagsmenn víða af félagssvæðinu á þennan frábæra fjölskyldustað, sem sumir höfðu á orði að væri alltof vel geymt leyndarmál sem þeir væru að uppgötva fyrst nú. Verkalýsðfélag Vestfirðinga færði garðinum veglegt útgrill sem var hannað og smíðað af Steinþóri Bragasyni hjá Vélsmiðju Ísafjarðar, en kappinn er oft kenndur við ráðgjafafyrirtæki sitt sem heitir Alsýn. Grillið er allt hið vandaðasta og smíðað úr rústfríu stáli.
Stöðugleikasáttmáli og samkomulag um breytingar á kjarasamningi undirrituð

Á öðrum tímanum í dag var gengið frá samkomulagi um breytingar á kjarasamningi milli aðildarfélaga ASÍ og SA, þá var einnig undirritaður Stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins og ríkisins um endurreisn íslensks efnahagslífs. Það er von þeirra sem að sáttmálanum standa að hann skpi nýja von og tiltrú á íslenskt atvinnulíf, efnahag og samfélag. Öllum má þó vera ljóst að þær þengingar sem framundan eru verða ekki með öllu sársaukalausar og munu heimili landsmanna ekki fara varhluta af því. Líklegt er að verr hefði getað farið ef samkomulaginu hefði ekki verið náð.
Atvinnuleysistryggingar eru nú samkeyrðar við staðgreiðslugrunn Ríkisskattstjóra

Þeir umsækjendur um atvinnuleysistryggingar sem hafa tekjur þurfa því ekki lengur að skila inn afriti af launaseðlum né upplýsingum um reiknað endurgjald. Þessi í stað er mikilvægt að umsækjendur sem hafa tekjur geri grein fyrir þeim með því að fylla út eyðublaðið „Áætlun um tekjur“ sem er að finna hér á vefnum. Ef ekki hefur verið gerð grein fyrir öllum tekjum má búast við að greiðslur stöðvist þar til upplýsingar um þær berast Greiðslustofu.
Frétt af vef ruv.is segir langt í land að sátt náist

Haft er eftir Eiríki Jónssyni að langt sé í land að sátt náist um aðgerðir í efnahagsmálum, en stíf fundarhöld hafa verið um stöðugleikasáttmála sem hefur verið í smíðum á milli aðila vinnumarkaðar og ríkisstjórnar. Heimildir fréttastofu RÚV herma að ASÍ, SA og sveitafélögin vilji leggja meiri áherslu á niðurskurð en skattahækkanir. SA hefur samþykkt […]
Fundur stjórnar og trúnaðarráðs – kjarasamningur og stöðugleikasátt

Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest er boðuð til fundar fimmtudaginn 25. júní kl. 20:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði. Mjög áríðandi er að sem flestir sjái sér fært að mæta vegna þess samkomulags sem nú er á borðinu í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld. Fundarefni. 1. Staða í kjaraviðræðum 2. Stöðugleikasáttmáli 3. Önnur […]
Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í lífeyrissjóðum

Alþýðusamband Íslands stóð fyrir ráðstefnu um ábyrgð og hlutverk stjórnarmanna í líferyissjóðum í Þjóðmenningarhúsinu þann 11. júní sl. Aðaláhersla ráðstefnunnar var á siðferði og ábyrgð í viðskiptum, en það var megin inngangurinn í erindum þeirra Salvarar Norðdal sem hefur förstöðu fyrir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands og Stefáns E. Stefánssonar sem kemur frá Eþikos, fræðslu- og rannsóknarmiðstöð […]
Dökk mynd af aðstæðum – mikil eining fundarmanna

Mikil eining ríkti á fundi formanna aðildarfélaga ASÍ um stöðuna í viðræðum við atvinnurekendur og stjórnvöld um kjaramálin og stöðugleikasáttmála, sem lauk síðdegis í gær. Á fundinum var samþykkt tillaga mótatkvæðalaust þar sem lýst var fullum stuðningi við forystu og samninganefnd ASÍ sem nú fundar linnulítið í karphúsinu. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fór yfir stöðuna […]
Sjómannadagspredikun séra Magnúsar Erlingssonar

Í Sjómannadagsguðþjónustum á Ísafirði og í Hnífsdal var rómantík sjómennskunar ásamt framtíðarhorfum í greininni megininntak í predikun séra Magnúsar Erlingssonar sóknarprests í Ísafjarðarprestakalli. Í ræðunni kemur Magnús víða við og tekur á sumum af þeim álitamálum sem sjómenn standa frammi fyrir í daglegum störfum og þeim vanda sem við öll stöndum frammi fyrir um þessar […]
Sjómenn – til hamingju með daginn

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendirsjómönnum og fjölskyldum þeirra árnaðaróskir á hátíðisdegi sjómanna.
Sjómenn – til hamingju með daginn
Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendirsjómönnum og fjölskyldum þeirra árnaðaróskir á hátíðisdegi sjómanna.
Ákvörðun tekin um áframhald kjaraviðræðna

Á fundi helstu hreyfinga launamanna á Íslandi með Samtökum atvinnulífsins í morgun var ákveðið að halda áfram viðræðum framlengingu kjarasamninga og gerð stöðugleikasáttmála. SA hefur lagt mikla áherslu á lækkun stýrivaxta og segir það forsendu endurreisnar atvinnulífs í landinu. Eftir litla lækkun stýrivaxta Seðlabankans í gær var jafnvel búist við því að SA segði sig […]
Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest hvetur til áframhaldandi viðræðna við SA

Á fundi stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem lauk á tíunda tímanum gærkvöldi, var samþykkt samhljóða að hvatt yrði til frekari viðræðna um tilboð sem SA lagði fram þann 20. maí sl. Eftir farandi yfirlýsing var send til SGS sem svar samninganenfndar félagsins. „Í ljósi þeirra stöðu sem nú er komin upp eigum við að […]
Fundur stjórnar og trúnaðarráðs – tilboð SA.

Stjórn og trúnaðarráð Verk Vest hefur verið boðað til fundar vegna tilboðs sem SA hefur lagt fram í viðræðum um stöðugleika á vinnumarkaði. Á formannafundi SGS hjá sáttasemjara í gær var farið yfir stöðuna og það tilboð sem SA hefur lagt fyrir samninganefnd ASÍ. Tilboðið gengur út á að tvískipta launahækkunum sem áttu að koma inn þann 1. mars sl. þannig að frá 1. júlí hækki taxtalaun á almennum markaði um kr.6.750, þann 1. nóvember hækki laun aftur um kr.6.750 og þá muni launaþróunartrygging upp á 3,5% einnig koma til framkvæmda. Þá vilja SA fresta launahækkun sem átti að taka gildi 1. janúar 2010 til 1.september 2010.
Krafa um tímabundna aftengingu vísitölu neysluverðs aldrei brýnni

Eitt af brýnustu framhaldsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar hlýtur að vera tímabundin aftenging vísitölu neysluverðs. Þannig verði hægt að draga úr jaðaráhrifum skattahækkana sem voru samþykkt af Alþingi í gærkvöldi. Verði þetta ekki gert mun allt tal um hina margfrægu skjaldborg heimilanna snúast upp í andhverfu sína. Við höfum ekki farið varhluta af hækkuðum álögum á eldsneytisverð á undanförnum vikum. Það munar alla um þær 16 krónur sem bensínlíterinn hefur hækkað síðustu tvær vikur. Álögur á alla landsmenn í formi aukinna jaðarskatta verður að linna.
Bíldudalssókn færðar góðar gjafir

Á stjórnarfundi Verk Vest sem var haldinn laugardaginn 16. maí í Gamla skóla á Bíldudal voru Bíldudalssókn færðar góðar gjafir. En á stjórnarfundi þann 1. apríl sl. var samþykkt að eignarhlutur Verk Vest í Gamla skóla yrði færður Bíldudalssókn að gjöf. Með gjöfinni fylgdi allt innbú í eigu félagsins og aðrir þeir munir í eigu félagsins sem hafa sögulegt gildi fyrir Bíldudal. Þá var sóknarnefnd einnig færð peningagjöf til viðhalds á húsinu. Formaður sóknarnefndar ásamt sóknarpresti Bíldælinga færðu félaginu góðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf og vonaðist til áframhaldandi góðs samstarfs við félagið í framtíðinni.
Aðalfundur Verk Vest 2009

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn laugardaginn 23. maí kl.11:00 í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 4 hæð. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningar starfsárið 2008. 3. Lýst kjöri stjórnar, varamanna í stjórn, trúnaðarmannaráði og skoðunarmanna. 4. Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð. 5. Tillaga trúnaðarmannaráðs um laun stjórnar. 6. Önnur mál. Félagsmenn hvattir til að mæta á […]
Kynningarfundur ráðgjafa Virk starfsendurhæfingarsjóðs

Fyrsti kynningarfundur ráðgjafa Virk starfsendurhæfingarsjóðs var haldinn í fundarsal Verk Vest í dag. Ætlunin var að ráðgjafar frá Virk í Reykjavík kæmu til fundarins en vegna hvassviðris var ekki unnt að fljúga vestur í tæka tíð. Í stað þess að fresta fundinum var brugðið á það ráð að Fanney Pálsdóttir ráðgjafi sjóðsins á Vestfjörðum sæi um kynninguna sem tókst í alla staði mjög vel. Nokkuð líflegar umræður urðu að lokinni kynningunni og var það mál fundarmanna að hugmyndafræðin um snemmbær inngrip í veikindaferli einstaklingsins væri úrræði sem hefði vantað.
Orlof og orlofsuppbót 2009

Samkvæmt 4. gr. orlofslaganna er orlofstímabilið frá 2. maí – 15. september og skal orlof veitt í einu lagi á tímabilinu. Þó er heimilt samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna að stytta orlofið á tímabilinu þannig að aldrei verði veittir færri en 14 dagar samfellt á sumarorlofstímabilinu, enda liggi sérstakar rekstrarástæður að baki. Í því samhengi er rétt að benda á að sé orlof tekið utan ofangreinds orlofstímabils að ósk atvinnurekanda þá lengist orlofið um 25%. Þau fyrirtæki sem hyggja á sumarlokun ber að gera það með minnst 1 mánaðar fyrirvara og skal sú ákvörðun liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl þannig að hún nái til allra starfsmanna.
ASÍ leggur fram helsu áherslur í viðræðum við stjórnvöld – langlundargeð launþegasamtaka þrotið !

Á fundi forseta og varaforseta Alþýðusambandsins með oddvitum stjórnarflokkana í gær voru áherslur ASÍ gegn bráðavanda heimila og atvinnulífs lagðar fram. Á fundinum fóru fulltrúar launafólks yfir drög að þríhliða sáttmála um stöðugleika, en verkalýðshreyfingin hefur lagt á það áherslu að koma í veg fyrir að mistök í hagstjórn undanfarinna ára endurtaki sig.
Ríkisstarfsmenn fá hækkun orlofsuppbótar í júní 2009

Verkalýðsfélagi Vestfirðinga hefur borist eftirfarandi bréf þar sem kynnt er ákvörðun um hækkun orlofsuppbótar fyrir árið 2009. Bréfið er sent frá Fjármálaráðuneytinu, en félagið er aðili að kjarasamningi SGS við fjármálaráðherra.“Til upplýsingar fyrir stéttarfélög og stofnanirVið núverandi stöðu kjarasamninga eru ríkisstarfsmenn einu félagsmenn stéttarfélaga á vinnumarkaði, sem ekki fengju hefðbundna orlofsuppbót í júní næstkomandi. Til […]
Fanney Pálsdóttir ráðgjafi starfsendurhæfingarjóðs VIRK komin til starfa

Við gerð kjarasamninga 2008 var ákveðið að koma á fót sameiginlegum endurhæfingarsjóði vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar. Í dag heitir sjóðurinn starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK og er rétt að benda á heimasíðu sjóðsins í því tilefni www.virk.is . Megin hlutverk sjóðsins er að vera með snemmbær inngrip í veikinda- eða slysaferli þannig að einstaklingurinn fái þau úrræði sem nýtast honum sem best til að komast út á vinnumarkaðinn á ný. Á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun sjóðsins hefur farið fram mikið skipulags og uppbyggingarstarf. Eitt af verkefnum sjóðsins er að gera samninga við sjúkrasjóði stéttarfélaganna um ráðningu endurhæfingarráðgjafa.
Góð þátttaka í 1. maí hátíðarhöldum hjá Verk Vest

Veðrið lék við göngumenn í kröfugöngu stéttarfélaganna á 1. maí á Ísafirði og var mikið fjölmenni í göngunni. Óvenju mörg kröfuspjöld voru á lofti og lýsir það kannski best því ástandi sem er í samfélaginu. Gengið var sem leið niður Pollgötuna að Edinborgarhúsinu þar sem hátíðarhöldin fóru fram. Aðalræðumaður dagsins var Matthildur Helga og Jónudóttir feministi og framkvæmdarstjóri hjá vestfirska tölvufyrirtækinu Snerpu. Matthildur lagði út frá „Nallanum“ í ræðu sinni og kom einnig inn á það uppbyggingarstarf sem væri framundan, þar yrðu allir að vinna að sameiginlegu markmiði.
Merki Verk Vest komið á sinn stað

Nokkuð er um liðið síðan stærstur hluti merki félagsins fauk af og skildi eftir sig frekar ljótt sár á vegg húsnæðis Verkalýðsfélags Vestfirðinga. Höfðu gestir og gagngandi orð á því að ástandið væri félaginu til skammar. Nú hefur verið unnin bragarbót þar á, en starfsmenn 3X – Technology sáu um hönnun og uppsetningu á merkinu.
Almennur félagsfundur og aðalfundur Baldurs deildar Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt almennan félagsfund í gær. Tilefnið var kosning fulltrúa á ársfund Lífeyrissjóðs Vestfirðinga sem verður haldinn þann 21. maí nk. á Hótel Ísafirði. Samkvæmt reglum sjóðsins á félagið rétt á 28 fulltrúum sem hafa atkvæðisrétt á fundinum, en fundurinn er opinn öllum sjóðsfélögum sem hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Byggjum réttlátt þjóðfélag – tökum öll þátt í hátíðarhöldunum á 1. maí

1. maí
Byggjum réttlátt þjóðfélag og tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna.
Á Ísafirði verður lagt af stað í kröfugönguna frá Baldurshúsinu, Pólgötu 2 kl. 14:00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi. Á Suðureyri verður lagt af stað frá Brekkukoti kl. 14:00 og gengið að sudlauginni þar sem hátiðarhöldin hefjast með boðsundi. Á Patreksfirði verða hátíðarhöld með hefðbundnu sniði þar sem boðið verður í kaffi í félagsheimilinu. Þá verður að vanda haldið 1. Maí BINGÓ og eru vinningarnir veglegir að vanda, en meðal vinninga er vikudvöl í olofshúsi Verk Vest og helgardvöl í orlofsíbúð félagsins. Þá hvetur 1. maí nefnd stéttarfélaganna alla sem luma á kröfuspjöldum frá opnu fundunum á Silfurtorgi í vetur til að mæta með þau í gönguna, eða jafnvel búa til ný og mæta með þau.
Sjómenn slysatryggðir í ferðum til og frá vinnu

Þetta kemur fram í frétt á mbl.is fyrr í dag þar sem vitnað er í niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur í máli Hraðfrystistöðvar Þórshafnar gegn Tryggingarstofnun ríkisins. Í dómnum sem kveðinn var upp í lok mars kemur fram að sjómenn eigi að njóta tryggingaverndar almannatrygginga á ferðum sínum á vegum útgerða frá heimilum sínum. Umfjöllun á mbl.is […]
Deildaraðalfundur Baldursdeildar Verk Vest

Deildaraðalfundur Baldursdeildar Verk Vest verður haldinn strax að loknum félagsfundi Verk Vest Miðvikudaginn 29. apríl nk. Dagskrá: Kosning deildarstjórnar og varamanna Önnur mál Stjórnin
Félagsfundur Verk Vest miðvikudaginn 29. apríl kl. 18:00

Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Félagsfundur verður haldinn í fundarsal félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði miðvikudaginn 29. apríl nk. Dagskrá. 1. Kosning fulltrúa á ársfund Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 21. maí 2009 samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. Önnur mál Stjórnin.