Gleðilegt sumar !

Verkalýðsfélag Vestfirðinga óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra góðs og heillaríks sumars. Skrifstofan verður að venju lokuð sumardaginn fyrsta – opnum aftur kl 08:00 á föstudag.Þeir sem hafa fengið úthlutað bústöðum hjá félaginu eru minntir á að staðfesta pantanir fyrir 20. maí nk. Minnum einnig á skráningar í orlofsferðir félagsins um Ísafjarðardjúp, Eyjafjörð og fjölskyldudag í […]

Gleðilegt sumar !

Starfsfólk skrifstofu verkalýðsfélaganna óskar félagsmönnum og öðrum viðskiptavinum gleðilegs sumar með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á liðnum vetri. Jafnframt er minnt á á skrifstofan er lokuð sumardaginn fyrsta en við opnum aftur föstudaginn 20. apríl kl.08.00.

Perlufiskur – Hótar að segja upp öllu starfsfólki !

Í fréttum svæðisútvarps Vestfjarða kemur fram sú ósmekklega hótun framkvæmdarstjóra Perlufisks á Bíldudal að öllu starfsfólki verði sagt upp verði byggðarkvóti lagður af. En eingöngu 20% af hráefnisöflun Perlufisks treystir á byggðarkvóta að sögn framkvæmdarstjóra Perlufisks. Þetta kemur fram í viðtali sem svæðisútvarp Vestfjarða átti við framkvæmdarstjóra fyrirtækisins, viðtalið í heild má nálgast hér.

Samvinna Vinnumálastofnunar og atvinnulífsins – vinnumarkaðsúrræði

Vinnumálastofnun hefur gefið út bækling þar sem fyrirtæki, sveitafélög, stofnanir og frjáls félagasamtök eru hvött til að nýta sér þau vinnumarkaðsúrræði sem í boði eru til að fjölga starfsfólki. Þarna eru ýmsir möguleikar reifaðir og er vert að benda sveitarfélögum sérstaklega á ýmsa möguleika er varðar átaksverkefni. Einnig er rétt að benda iðnfyrirtækjum og öðrum þeim sem gætu nýtt sér starfsþjálfunarsamninga eða reynsluráðningar til fjölgunar starfa. Þá er einnig vert að benda fyrirtækjum í nýsköpun á sem vilja þróa nýjar viðskiptahugmyndir á að nýta sér starfsorkuúrræði til fjölgunar störfum í nýsköpun.

Afgreiðsla umsókna orlofshúsa að ljúka

Umsóknir um sumarhús hjá Verk Vest eru töluvert fleiri fyrir orlofssumarið 2009 en hefur verið undanfarin ár, til samanburðar voru 134 umsóknir í ár á móti 119 umsóknum síðasta sumar, sem var þó mjög gott. Þrátt fyrir fjölgun umsókna virðast þær dreifast nokkuð vel og þurftir eingöngu að draga um nokkrar tímabil í júlí í Svignaskarði og Ölfusborgum. Aldrei slíku vant þurfti ekki að draga um verslunarmannahelgina sem hefur hingað til verið mjög umsetin af félagsmönnum.

Heilbrigðisráðherra fundar með verkalýðshreifingunni

Í samstarfi við BSRB og Starfsgreinasamband Íslands, SGS, boðaði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, til fundar með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þann 6. apríl sl. Fundarefni var staða mála og framtíðarhorfur í heilbrigðisþjónustu. Fundurinn var fjölmennur og vel sóttur af félögum af landsbyggðinni og var sérstaklega ánægjulegt að sjá hve vel var mætt frá SGS félögum. Að lokinni framsögu ráðherra var opnað fyrir umræður sem voru nokkuð líflegar.

„Þegar vel gengur þá á verkafólk í landi að hafa það betur,“ segir forstjóri H.G. viðtali á vef Bæjarins Besta.

„Þegar vel gengur þá á verkafólk í landi að hafa það betur,“ segir forstjóri H.G. viðtali á vef Bæjarins Besta. Ekki var það reyndin þegar kom að því að hækka taxta fiskverkafólks þann 1. mars sl. Þá var haft eftir forstjóra HG í Hnífsdal og forstjóra Odda á Patreksfirði að þeir ætluðu ekki að rjúfa samstöðu vegna samkomulags Samtaka atvinnulífsins um frestun launahækkana. Hvernig er með samtöðu við þeirra fólk sem skapar hin raunverulegu verðmæti, er samstaða við það ekki jafn áríðandi?

Námskeið um réttindi atvinnulausra – áminning

Verk Vest og Fos Vest minna á námskeið um réttindi atvinnulausra þann 6. apríl nk. Einstaklingar í atvinnuleit og trúnaðarmenn félaganna eru hvattir til að skrá sig sem fyrst hjá félögunum. Skráningum þarf að vera lokið fyrir föstudaginn 3. apríl nk. Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér.

Ákvörðun um breytingu á réttindum tekin á aðalfundi sjóðsins 21. maí

Tryggingafræðileg úttekt Lífeyrissjóðs Vestfirðinga miðað við síðustu áramót liggur nú fyrir, en samkvæmt þeirri úttekt þá þá er staða sjóðsins neikvæð um 16%. Rétt er að geta þess að vegna góðrar ávöxtunar undanarin ár þá hafa lífeyrisréttindi sjóðfélaga hækkað umtalsvert umfram verðbólgu, en frá árinu 2002 hefur hækkunin numið 22,4% umfram hækkun vísitölu neysluverðs.

Fleiri fyrirtæki bætast í hópinn og boða hækkanir á taxtalaunum

Á heimasíðu Einingar – Iðju á Akureyri kemur fram að á starfsmannafundi fyrr í dag hafi Ágúst Torfi Hauksson framkvæmdarstjóri Brims á Akureyri tilkynnt að launataxtar yrðu hækkaðir um kr.13.500 frá 1. mars sl. „Við höfum ávalt leitast við að standa við alla þá samninga sem við erum aðilar að og því hækkum við taxtana frá og með 1. mars um 13.500 krónur.“ Var haft eftir Ágústi Torfa við þetta tækifæri. Þá má einnig lesa á orðum Önnu Júlíusdóttur

Starfsfólk HB- Granda fær launahækkanir – Setjum vestfirskt verkafólk við sama borð.

Á starfsmannafundi hjá HB – Granda á föstudag tilkynnti forstjóri fyrirtækisins að áður frestaðar taxtahækkanir starfsfólks kæmu til greiðslu frá 1.mars eins og kjarasamningur kvað á um. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Verkalúðsfélags Akraness, en fréttina í heild má lesa hér. Verkalýðsfélag Vestfirðinga sendir starfsfólki HB – Granda árnaðaróskir með kjarabæturnar.

Formannafundur SGS skorar á HB Granda

Fundur formanna aðildarfélaga SGS sem haldinn var í dag skorar á HB Granda að láta launahækkanir upp á 13.500 krónur koma strax til framkvæmda. Fundurinn samþykkti einróma eftirfarandi ályktun: „Sú ávörðun stjórnar HB Granda, að leggja til að greiða hluthöfum 8% arð er forkastanleg og óásættanleg með öllu í því ástandi sem nú ríkir. SGS […]

Miðstjórn ASÍ ályktar um siðferði og samfélagslega ábyrgð

Miðstjórnarfundur ASÍ sendi frá sér eftirfarandi ályktun um siðlausa ákvörðun stjórnar HB-Granda. Þessi ákvörðun setur samkomulag samninganefndar ASÍ við Samtök Atvinnulíf í algjört uppnám. Þá hefur gjörningurinn einnig hleypt illu blóði í launþega sem fyrir stuttu fengu ekki greiddar út umsamdar kauphækkanir sem áttu að koma til framkvæmda þann 1. mars sl. vegna samkomulagsins.
Siðlaus ákvörðun stjórnar HB-Granda“Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um hundruð milljón króna arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður og skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar.

Launahækkanir komi til framkvæmda strax !

Allmörg fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á vinnu verkafólks eða ófaglærðra virðast vissulega hafa úr meiru að moða en kom fram hjá Samtökum Atvinnulífsins í aðdraganda frestunar launahækkana. Þessi fyrirtæki hefðu að öllum líkindum getað greitt út umsamdar launahækkanir þann 1. mars sl. Nú ber svo við að eitt þessara fyrirtækja, HB – Grandi sem hafði fengið frest hjá launþegum til launahækkana, ákveður að greiða eigendum sínum all ríflegan arð. Arðgreiðslan sem um ræðir er engin ölmusa, kr. 150.000.000 já 150 milljónir króna, hún hefði dugað til að greiða fiskvinnslufólks fyrirtækisins 13.500 króna hækkunina í 8 ár, og svo segja menn að vinnsla og veiðar séu vart á vetur setjandi svo slæmt sé ástandið.

Orlofsfréttabréf – félagsskírteini

Félögum í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga ætti nú að hafa borist fréttabréf orlofsnefndar ásamt umsóknum um sumbústaði sem félagsmönnum standa til boða sumarið 2009. Umsóknunum þarf að skila inn fyrir 2.apríl 2009. Þess má geta að í kjölfar jarðskjálftanna á Suðurlandi sl. sumar, þá var ákveðið að ráðast í gagngerar endurbætur á húsum okkar í Ölfusborgum. Munar þar mest um breytingu á eldhúsum þar sem allt var endurnýjað, þá voru svefnherbergi stækkuð og rúm endurnýjuð.

Sjálfstyrking og innra starf tekið fyrir á námskeiði

Verkalýðsfélag Vestfirðinga stendur fyrir námskeiði í sjálfstyrkingu þar sem Sigríður Arnardóttir „Sirrý“ ætlar að laða fram betri hliðina á félagsmönnum Verk Vest. Þá er einnig ætlunin að fara í innra starf félagsins og hvaða áherslur félagsmenn vilja að settar verði í forgang á næstunni. Námskeiðið verður dagana 27. – 28. mars nk. í Reykjanesi við […]

Heilsuátak fyrir atvinnulausa félagsmenn

Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Félag járniðnaðarmann á Ísafirði hafa skrifað undir rammasamning við Ísafjarðarbæ og Stúdíó Dan á Ísafirði þannig að atvinnulausir félagsmenn geti sótt líkamsrækt og sund sér að kostnaðarlausu. Samningurinn gildir til 31.12.2009. Verk Vest hefur sent erindi til allra sveitafélaga á félagssvæðinu þar sem óskað er eftir að gera samskonar rammasamninga.

Hvatning til atvinnurekenda !

Á stjórnarfundi Verkalýðsfélags Vestfirðinga þann 2. mars sl. var frestun launahækkana til umræðu. Þrátt fyrir að mikilvægum árangri hafi verið náð með hækkun lágmarkstekjutryggingar upp fyrir grunnatvinnuleysisbætur þá vill stjórn félagsins beina eftirfarandi hvatningu til atvinnurekenda.

Tillaga kjörnefndar eina framboðið til stjórnarkjörs

Ekki bárust önnur framboð til stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga en sú tillaga sem kjörnefnd lagði fram, en framboðsfrestur rann út þann 26. febrúar síðast liðinn. Teljast þeir einstaklingar sem þar voru boðnir fram því réttkjörnir í stjórn og trúnaðarstörf fyrir félagið starfsárin 2009 – 2011. Samkvæmt 21. grein laga félagsins skal lýsa kjöri sjórnar, […]

Fréttir frá Starfsendurhæfingu Vestfjarða – SEV

Starfsendurhæfing Vestfjarða tók til starfa 1. janúar síðastliðinn og er starfsemin til húsa í Vestrahúsinu, Árnagötu 2 – 4 á Ísafirði. Starfsendurhæfing Vestfjarða er sjálfseignarstofnun og hefur það að markmiði að veita einstaklingum á Vestfjörðum endurhæfingu til atvinnuþátttöku í heimabyggð og auka þannig lífsgæði þeirra og fjölskyldna þeirra.

Almenn launahækkun kemur ekki til framkvæmda 1. mars

Nokkurs misskilnings viðist gæta varðandi samkomulag um frestun kjarasamninga sem ASÍ og SA hafa skrifuðu undir í gær. Fyrirhugaðar krónutöluhækkanir, kr. 13.500 verkafólk, kr. 17.500 fyrir iðnaðarmenn og 3,5% launaþróunartrygging koma ekki til framkvæmda 1. mars 2009. Eingöngu er verið að hækka lágmarkstekjutryggingu úr 145.000 í 157.000 fyrir fulla dagvinnu að meðtöldum bónusum og vaktaálagi.

Frestun kjarasamninga staðreynd – kauptrygging hækkar

Á fimmta tímanum í gær náðist samkomulag á milli ASÍ og SA um frestun á endurskoðun og framlengingu kjarasamninga. Þetta þýðir að þær launahækkanir sem hefðu átt að koma inn þann 1. mars frestast. Í samkomulaginu felst að ákvörðun um framlengingu og endurskoðun skal vera lokið eigi síðar en 30. júní á þessu ári.

BÓTHILDUR – frítt fyrir félagsmenn Verk Vest

Í framhaldi af námskeiðum sem félagið hefur staðið fyrir um fjármál heimilanna, þá hefur Verkalýðsfélag Vestfirðinga nú fest kaup á nokkru magni af bókhaldsforritinu BÓTHILDI. Félagar í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga geta nú fengið forritið BÓTHILDI sér að kostnaðarlausi á skrifstofu félagsins.

Gagnlegar upplýsingar til launafólks

Við þær aðstæður sem nú hafa skapast í atvinnulífi landsmanna er nauðsynlegt að halda rekstri fyrirtækja gangandi. Þó er ekki ólíklegt að einstaka fyrirtæki fari í gjaldþrot eða einhver skipti um eigendur. Þessi staða á vinnumarkaði gæti valdið starfsfólki áhyggjum um eigið atvinnuöryggi og framtíð heimila þeirra. Stéttarfélögin munu leitast við að veita félagsmönnum sínum alla þá aðstoð og ráðgjöf sem unnt er, en félögin hafa gott og vel þjálfað starfsfólki í sinni þjónustu.

Látum verkin tala !

Ljóst þykir að þau verkefni sem ennþá bíða afgreiðslu hjá nýju ríkisstjórninni þola enga bið. Nauðsynlegt er að bretta upp ermar og láta verkin tala, leggja til hliða ómálefnalegt dægurþras og óþarfa málalengingar á meðan þjóðin rambar á barmi gjaldþrots ef marka má nýjustu spár og fréttir þar um.

Páskaleiga orlofshúsa í Ölfusborgum og Svignaskarði

Páskaleiga dagana 8 – 14. apríl er ennþá laus til umsókna í Ölfusborgum og Svignaskraði. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 4565190 eða postur@verkvest.is

Skiptar skoðanir um framvindu kjarasamninga

Á fundi formanna inna ASÍ sem haldinn var á Grand Hótel í dag voru skiptar skoðanir um hvort rétt væri að óska eftir frestun á endurskoðun kjarasamninga eða ekki. Samhljómur var meðal landsbyggðarfélaganna sem velflest lögðust gegn því að frestunarleiðin yrði farin. Skilaboð frá samninganefnd Verkalýðsfélags Vestfirðinga inn á fundin voru skýr, almennt launafólk á Vestfjörðum hefði ekki notið launaskriðs í góðærinu og því væri ósangjarnt að ætla þeim sem undanfarin misseri hefðu eingöngu verið á strýpuðum töxtum að taka á sig enn frekari skerðingar í formi frestunar á endurskoðun kjarasamnings langt fram á sumar.

Breytingar á greiðslum styrkja fræðslusjóða

Frá og með 1. janúar voru teknar upp breytingar við greiðslu fræðslustyrkja hjá Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt. Nú verða styrkir afgreiddir um leið og viðkomandi kemur með kvittun vegna greiðslu á námi/námskeiði. Hingað til hafa styrkir ekki verið afgreiddir fyrr en að námi/námskeiði loknu. Þetta er gert til að koma betur á móts við þarfir markhóps sjóðanna. Sérstaklega þegar kreppir að og atvinnuleysi gerir vart við sig í meira mæli en verið hefur. Þá getur þetta einnig reynst hvatning til náms fyrir ungt fólk sem hætt hefur námi á ákveðnum tíma og langar síðan að reyna fyrir sér á ný – hættir að vinna og byrjar í námi.

Ánægja með námskeið fyrir smiði

Dagana 30 – 31. janúar var haldið námskeið í viðhaldi og viðgerðir húsa á vegum Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Iðunnar fræðaseturs. Kennarar á námskeiðinu voru þeir Jón Sigurjónsson og Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það var mál þátttakanda að námskeiðið hefði verið gagnlegt og myndi nýtast vel sérstaklega ef endurgreiðsla virðisaukaskatts af endurbótum yrði að veruleika. […]