Nýir bæklingar fræðslusjóða

Félagsmönnum Verk Vest er bent á að fræðslusjóðirnir Landsmennt, Ríkismennt og Sveitamennt hafa gefið út nýja bæklinga þar sem styrkupphæðir hafa verið samræmdar á milli sjóða. Hjá Landsmennt hækkar hámarksupphæð einstaklingsstyrkja í kr. 60.000,- frá og með 1.júlí 2008.
Atkvæðagreiðsla vegna ríkissamnings

Nú fer hver að verða síðastur að ganga frá atkvæðagreiðslu vegna ríkissamningana sem voru undirritaðir þann 25. maí síðastliðinn. Atkvæði þurfa að berast kjörstjórn SGS fyrir kl 12:00 á morgun föstudag 20. júní.
Fæðispeningar sjómanna á fiskiskipum

Samkvæmt kjarasamningi og samkomulagi forsendunefndar hækkuðu fæðispeningar sjómanna á fiskiskipum þann 1. júní síðastliðinn. Fæðispeningar sjómanna eru endurskoðaðir árlega miðað við breytingu á fæðisvörulið vísitölu neysluvöruverðs.
Vegleg hátíðarhöld um Sjómannadagshelgina

Sjómenn og fjölskyldur þeirra sem og við landkrabbarnir ættum að finna eitthvað við allra hæfi í dagskrá sjómannadagshelgarinnar.
Orlofsferð – Orlofshús

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í glæsilega orlofsferð félagsmanna til Kraká í Póllandi. En eins og komið hefur fram í fréttabréfi sem sent hefur verið út til félagsmanna þá er lokafrestur til að skrá sig í ferðina 7.júni.
Samningar í höfn á Reykhólum

Kjarasamningur starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar hf. voru undirritaðir eftir hádegið í dag. Meginmarkmið kjarasamninganna var að ná sem mestri hækkun inn á dagvinnutaxtann, en uppbygging taxta starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar er á nokkuð annan veg en gerist á almennum markaði.
Verðbólga enn á uppleið

Illa gengur að ná tökum á verðbólgunni sem mælist nú 12,3% á ársgrundvelli. Mest áhrif á hækkun verðbólgunnar er stöðugt hækkandi bensín og olíuverð, sem hækkaði um tæp 6% á milli mánaða. Þá hafa hækkanir á viðgerðum og viðhaldi húsnæðis um rúm 7% nokkur áhrif. Ekkert lát virðist vera á hækkun á mat og drykk […]
Aðalfundur Verk Vest

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt aðalfund félagsins laugardaginn 24. maí síðastliðinn. Í skýrslu stjórnar og reikningum félagsins kom fram að eiginfjár- og eignarstaða er allgóð.
Aðalfundur Verk Vest
Normal 0 21 false false false IS X-NONE X-NONE /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable {mso-style-name:“Table Normal“; mso-tstyle-rowband-size:0; mso-tstyle-colband-size:0; mso-style-noshow:yes; mso-style-priority:99; mso-style-qformat:yes; mso-style-parent:““; mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt; mso-para-margin-top:0cm; mso-para-margin-right:0cm; mso-para-margin-bottom:10.0pt; mso-para-margin-left:0cm; line-height:115%; mso-pagination:widow-orphan; font-size:11.0pt; font-family:“Calibri“,“sans-serif“; mso-ascii-font-family:Calibri; mso-ascii-theme-font:minor-latin; mso-hansi-font-family:Calibri; mso-hansi-theme-font:minor-latin; mso-bidi-font-family:“Times New Roman“; mso-bidi-theme-font:minor-bidi; mso-fareast-language:EN-US;} Verkalýðsfélags Vestfirðinga heldur aðalfund félagsins Þriðjudaginn 29. maí 2012 kl.19:00, í Stjórnsýsluhúsinu […]
Aðalfundur Verk Vest
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 26. maí kl.18:00 í Alþýðuhúsinu ( Ísafjarðarbíó – efsta hæð ). Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 24 gr. laga félagsins. Við ætlum að sjálfsögðu að virða 2ja metra regluna og huga að smitvörnum en hvetjum félagsmenn til að mæta og kynna sér starfsemi félagsins. Einnig bjóðum við félagsmönnum upp á […]
Skrifað undir samningar við ríkið

Í nótt var gengið frá kjarasamningi SGS við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Samningurinn er til 11 mánaða eða til loka mars 2009. Launataxtar hækka um 20.300 kr. frá og með 1. maí sl. en frá sama tíma tekur gildi ný launatafla.
Orlof og orlofsbót 2008

Auglýsingu um orlof og orlofsbót félagsmanna Verk Vest hefur verið sett á síðuna undir Tilkynningar. Þar er að finna helstu upplýsingar um lágmarksorlof ásamt orlofi sem tengist lengri starfsaldri,
Vinnslustöðvun Vísis á Þingeyri frestað

Formaður Verk Vest hefur fengið staðfest að boðuð vinnslustöðvun í fiskvinnslu Vísis á Þingeyri hefjist ekki fyrr en að loknum sumarleifum starfsfólks.
Fréttabréf Orlofsnefndar Verk Vest

Eins og kom fram í frétt hér á vefnum þá hefur orlofsnefnd félagsins verið að vinna að ýmsum afþreyingar möguleikum fyrir félagsmenn.
Stýrihóp SGS veitt umboð

Viðræðunefnd SGS kom saman í gær í húsakynnum sáttasemjara til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum SGS við SNR (samninganefnd ríkisins).
Jákvæður fundur SGS með ríkisstjórninni

Fulltrúar Starfsgreinasambandsins áttu fund með ríkisstjórninni þ.e. forsætis-, utanríkis- félagsmála- og fjármálaráðherra í morgun þar sem farið var yfir stöðu kjaraviðræðna við samninganefnd ríkisins.
Aðalfundur Verk Vest 24. maí kl.14:00

Félagar í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga eru hvattir til að taka laugardaginn 24. maí frá og mæta til aðalfundar félagsins. Fundurinn verður með hefðbundnu sniði og verður boðið upp á kaffiveitingar að fundi loknum. Dagskrá fundarins má sjá undir tilkynningum hér á síðunni.
Trúnaðarmannanámskeiði lokið

Sameiginlegu námskeiði Verkalýðsfélags Vestfirðinga og Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum lauk á föstudag með kynningu á starfsemi félaganna.
Kröfur sjómanna kynntar viðsemjendum

Fulltrúar Sjómannasambands Íslands (SSÍ) og Verkalýðsfélags Vestfirðinga komu saman í húsakynnum Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) á dögunum og kynntu kröfur sjómanna fyrir viðsemjendum.
Ríkissamningar – viðræðum enn slegið á frest.

Viðræður vegna kjarasamninga Starfsgreinasambands Íslands ( SGS ) vegna ófaglærðra hjá ríkisstofnunum eru í biðstöðu. En samningarnir hafa verið lausir frá 31. mars síðast liðinn.
Stjórnarfundur á Patreksfirði

Stjórn félagsins hélt stjórnarfund í húsi félagsins á Patreksfirði. Vegna ófærðar í vetur og lélegra samgangna á milli norðurs og suðursvæðis Vestfjarða yfir veturinn náðist ekki að halda fundinn fyrr.
Varað við ESB inngöngu – tökum fyrst til heima!

Ágæt þátttaka var í 1. maí kröfugöngu á Ísafirði þrátt fyrir hryssingslegt veður. Hátíðarhöldin þóttu takast vel og var gríðarlegt fjölmenni í kaffisamsæti að dagskrá lokinni. En hefð er orðin fyrir því að 1. maí nefnd stéttarfélaganna bjóði í kaffi á þessum baráttudegi verkalýðsins.
1. MAÍ – baráttudagur launþega !

Að vanda hefur mikill metnaður verið lagður í dagskrá 1. maí hátíðarhaldanna. Á félagssvæði Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður dagskrá á þremur stöðum.
Verðbólguhraðinn ógnvænlegur.

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands þá mælist verðbólga í aprílmánuði 11,8%.
Nýjir orlofsmöguleikar félagsmanna

Orlofsnefnd Verk Vest hefur komið samið saman og farið yfir möguleika til frekari afþreyingar til félagsmanna nú í sumar.
Er sumarið loksins komið ?

Eftir nokkuð risótta tíða að undanförnu hefur veðrið heldur betur leikið við menn og málleysingja á Vestfjörðum þessa dagana.
Úthlutun orlofshúsa að ljúka

Umsóknarfrestur til að sækja um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga nú í sumar lauk 10. apríl. Þeir sem sendu inn umsóknir áður en fresturinn rann út komast í aðalúthlutun.
“ Grípa þarf til tafalausra aðgerða „

Á fundi framkvæmdarstjórnar Starfsgreinasambandsins var samþykkt að gefin yrði út ályktun vegna þeirra stöðu sem launþegar standa nú frammi fyrir í efnahagsmálum.
Sjómenn móta kröfur vegna endurnýjunar kjarasamnings

Sjómannfélag Ísafjarðar, sem er deild í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, boðaði til fundar vegna sjómannasamninga sem gilda til 31. maí næst komandi.
Húsaleigubætur – sveitarfélög hvött til hækkunar

Verklýðsfélag Vestfirðinga hvetur sveitarfélög á Vestfjörðum til að hækka húsaleigubætur í samræmi við reglugerð sem Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra undirritaði 7. apríl sl. Húsaleigubætur hafa ekki verið hækkaðar síðan árið 2000, en í nýgerðum kjarasamningum var hækkun húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta hluti af ríkisstjórnarpakkanum.