Miðstjórn ASÍ ályktar um meiðandi umræðu um atvinnuleitendur

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands harmar sleggjudóma í opinberri umræðu um málefni atvinnuleitenda. Sú umræða er ekki studd gögnum og er úr hófi fram neikvæð og einhliða. Miðstjórn varar við því að ýtt sé undir fordóma í umfjöllun um vanda þeirra sem glíma við atvinnuleysi. Miðstjórn ASÍ vísar til fullyrðinga nokkurra atvinnurekenda sem birst hafa í tilteknum […]

Sigurður Pétursson sagnfræðingur fjallar um gul stéttarfélög

Umræða um svokölluð gul stéttarfélög hefur verið áberandi að undanförnu og þá einkum í tengslum við Flugfélagið Play en Íslenska flugstéttarfélagið, sem Play hefur samið við, virðist bera öll merki þess að vera „gult stéttarfélag“. Slík félög standa alla jafna utan heildarsamtaka launafólks, eins og ASÍ, og ganga jafnvel erinda atvinnurekenda og gegn hagsmunum launamanna. […]

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga 18. maí

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 18. maí 2021 kl.18.00 á Hótel Ísafirði. Vegna samkomutakmarkana eru félagsmenn beðnir að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is. Einnig verður hægt að taka þátt um fjarfundabúnað. Boðið verður upp á málsverð í upphafi fundar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins Önnur mál Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og […]

Główne zebranie Verk Vest we wtorek 18 maja.

Główne zebranie Verk Vest odbędzie się we wtorek 18 maja 2021 o godzinie 18.00 w Hotelu w Ísafjordzie. Ze względu na ograniczenia dotyczące spotkań, członkowie są proszeni o powiadomienie o uczestnictwie pod adresem postur@verkvest.is. Możliwy będzie również udział online ( internetowy) Na początku spotkania będzie oferowany posiłek. Program : Padstawowe spotkanie działania zgodnie z art.24 […]

1. maí pistill formanns Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Til hamingju með alþjóðlegan baráttudag verkafólks. Afkoma samfélagsins á Íslandi á fyrri hluta 21. aldarinnar er þrátt fyrir allt með því besta sem þekkist í sögunni. Við búum í landi sem er ríkt af auðlindum – bæði af hendi náttúrunnar og mannauði. Með góðum vilja og réttum ákvörðunum getum við öll notið mannsæmandi lífskjara á […]

1. maí ávarp forseta ASÍ

Úr ávarpi forseta ASÍ sem birt er í vefriti Vinnunnar. …“ Í okkar ríka samfélagi með gjöfulum fiskimiðum, orkunni sem streymir úr iðrum jarðar og eftirsóknarverðri náttúru á enginn að líða skort. Þær raddir heyrast frá viðsemjendum og jafnvel stjórnvöldum að laun á Íslandi séu of há, útflutningsgreinarnar eigi að ráða hvað sé til skiptanna […]

1. maí 2021 – „Það er nóg til“

Annað árið í röð og í annað skiptið síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Líkt og í fyrra er brugðist við þessari stöðu með útsendingu frá sérstakri skemmti-og baráttusamkomu sem verður sjónvarpað á RÚV að kvöldi 1. maí (kl. 21:00).Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og […]

Fyrstu úthlutun um orlofsdvöl sumarið 2021 lokið

Fyrstu úthlutun um orlofsdvöl er lokið og alls bárust 119 umsóknir sem er sprenging frá árinu 2020, en þá voru umsóknir eingöngu 59. Af þessum orsökum var ekki hægt að verða við öllum óskum um fyrsta val og varð að synja 50 umsóknum sem hafa þá alltaf möguleika að sækja um önnur laus tímabil. Þess […]

Verkalýðsfélagið Baldur á Ísafirði 105 ára í dag

Verkalýðsfélagið Baldur var stofnað af verkafólki á Ísafirði 1. apríl árið 1916. Á þeim tíma var mikill uppgangur í bænum, vélbátum fjölgaði ört og mikil atvinna var hjá stóru verslununum sem jafnframt stóðu að útgerð og saltfiskverkun. Á stuttum tíma söfnuðust meir en 400 nöfn á félagalista Verkamannafélags Ísfirðinga, bæði sjómenn og landverkafólk, karlar jafnt […]

Ograniczony dostęp do biur Verk Vest z powodu Covid-19

W świetle decyzji rządu i zaleceń epidemiologa, zachęcamy członków do korzystania z komunikacji elektronicznej z pracownikami stowarzyszenia. Praca w biurach pozostanie niezmieniona, z wyjątkiem tego, że drzwi będą teraz zamknięte, więc osoby, które potrzebują dostępu do kluczy lub muszą odbyć rozmowę osobista , muszą umówić się na wizytę dzwoniąc pod numer 456-5190 lub e-mailem pod […]

Stofnanasamningur undirritaður við Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur

Í hádeginu í gær var undirritaður stofnanasamningur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða við Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur. Samningurinn byggir á kjarasamningi ríkisins við Starfsgreinasambandið sem undirritaður var 6. mars 2020. Samningurinn tekur til 107 starfsmanna stofnunarinnar á öllum starfsstöðvum. Flest störfin eru í aðhlynningu á hjúkrunarheimilum, við ræstingu og í eldhúsum. Veruleg kjarabót er fólgin […]

Takmarkað aðgengi að skrifstofum Verk Vest vegna Covid-19

Í ljósi ákvörðunar ríkisstjórnar og tilmæla sóttvarnarlæknis hvetjum við félagsmenn til að nýta rafræn samskipti við starfsfólk félagsins. Starfsemi á skrifstofum félagsins verður óbreytt að því undanskildu að nú verður hurðin læst, þannig að þeir sem þurfa nálgast lykla eða þurfa nauðsynlega að eiga samtal þurfa að bóka tíma í síma 456-5190 eða með tölvupósti […]

Mínar síður fyrir félagsmenn Verk Vest

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur opnað Mínar síður fyrir félagsmenn á heimasíðu félagsins. Á mínum síðum geta félagsmenn: Sótt um styrki Bætt fylgiskjölum við umsóknir Séð stöðu umsókna Uppfært persónuupplýsingar Skoðað áður afgreiddar umsóknir Til að fá aðgang að Mínum síðum þarftu að vera með rafræn skilríki eða Íslykil. Þú getur sótt um Íslykil inn á mínum […]

Greiðslur úr félagsmannasjóði til starfsmanna sveitafélaga

Félagsmenn Verk Vest starfa hjá sveitarfélögum fá í samræmi við síðustu kjarasamninga greitt 1,5% af launum sínum í Félagsmannasjóð SGS. Greitt var úr sjóðnum í fyrsta sinn 1. febrúar síðastliðinn og hafa nú verið greiddar rúmar 218 milljónir króna til tæplega 5.000 félagsmanna. Félagsmönnum Verk Vest, sem starfa hjá sveitarfélögum, og ekki hafa fengið greitt […]

Veiðileyfi í neðsta svæði Norðurár sumarið 2021

Í ár eins og undanfarin ár býðst félagsmönnum Verk Vest sem dvelja í Svignaskarði að kaupa veiðileyfi í neðsta veiðisvæði Norðurár. Veiðitímabilið frá 7. júní til 14. september. Forgangur til þeirra félagsmanna sem hafa fengið úthlutað húsi í sumar er til 1. júní. Opið verður fyrir almennar pantanir eftir það. Leigjendur á hverjum tíma geta […]

Atvinnulausir njóta almennt ekki afsláttar á leikskóla- eða dagvistunargjöldum

Aðeins Akureyri og Garðabær bjóða upp á lægri leikskólagjöld fyrir atvinnulausa, af þeim 15 sveitarfélögum sem úttekt verðlagseftirlits ASÍ á breytingum á leikskólagjöldum og gjöldum fyrir skóladagvistun og skólamat nær til. Ekkert sveitarfélag er með lægri skóladagvistunargjöld fyrir atvinnulausa. Hafa ber í huga að þrátt fyrir að sum sveitarfélög séu með afslætti fyrir forgangshópa en […]

Mýtan um gott líf á atvinnuleysisbótum hrakin í nýrri skýrslu Vörðu

Um fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Erfiðleikarnir mestir hjá atvinnulausum og innflytjendum, eins og fram kom á veffundi nú í hádeginu þar sem niðurstöðurnar voru kynntar. Varða lagði nýverið könnun fyrir félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands og BSRB þar sem spurt var um stöðu […]

WAŻNA WIADOMOŚĆ!

Czy jesteś członkiem w Verk Vest? Czy w zeszłym roku pracowałeś dla gminy? A może przestałeś pracować w gminie w zeszłym roku? W umowie płacowej między Verk Vest a gminami utworzono specjalny fundusz członków ! Pracodawca wpłaca miesięczną składkę do funduszu w wysokości 1,5% całkowitego wynagrodzenia członka związków i jest wypłacana z funduszu 1 lutego […]

Félagsmannasjóður – ÁRÍÐANDI SKILABOÐ!

Ertu félagsmaður í Verk Vest? Starfaðir þú hjá sveitarfélagi á síðasta ári? Eða hættir þú vinnu hjá sveitarfélag á síðasta ári? Í kjarasamningi Verk Vest við sveitafélög var stofnaður sérstakur félagsmannasjóður. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanns og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. Allir félagsmenn Verk […]

Mikilvægur dómur um talningu veikindadaga

Á síðustu árum hefur ítrekað komið til ágreinings milli ASÍ og SA um hvernig telja skuli veikindadaga. SA hefur haldið því fram að telja skuli almanaksdaga í forföllum en ASÍ haldið því fram að einungis skuli telja þá daga sem launamaður hefði að óbreyttu átt að vinna. Félagsdómur staðfesti túlkun ASÍ með dómi sínum þann […]

Kosið í deildarstjórnir hjá Verk Vest

Á aðalfundi starfsgreinadeilda sem haldinn var þriðjudaginn 12. janúar var kosið í stjórnir deilda. Formenn starfsgreinadeilda eiga fast sæti í stjórn Verk Vest. Samkvæmt lögum Verk Vest eru starfandi 5 starfsgreinadeildir og fengu eftirtaldir einstaklingar kosningu. Matvæla- og þjónustudeild ( SGS ) Aðalmenn Gunnhildur B. Elíasdóttir Ísl. sjávarfang Þingeyri – formaður Jóhanna B. Ragnarsdóttir Hólmadrangur […]

AUGLÝSING UM KOSNINGU TIL STJÓRNAR VERK VEST

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2021 til 2023 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu.Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga og […]

Dagbækur 2021

Dagbækur Verk Vest fyrir árið 2021 eru loksins komnar og verða aðgengilegar á skrifstofum félagsins á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði.

Aðalfundur deilda Verk Vest og Trúnaðarráðs

Boðað er til sameiginlegs aðalfundar starfsgreinadeilda Verk Vest og fundar trúnaðarráðs Verk Vest þriðjudaginn 12. janúar kl.18:00. Fundurinn verður haldinn á efstu hæð í Alþýðuhúsinu á Ísafirði. Dagskrá. Kosið um tillögu kjörnefndar Verk Vest Kosning í stjónir starfsgreinadeilda Matvæla og þjónustudeild SGS Opinber deild SGS Deild verlsunar- og skrifstofufólks Iðnaðardeild Önnur mál. Vegna sóttvarna verður […]

Fréttatilkynning frá formannafundi SGS

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af því hvernig gengur að innleiða og skipuleggja styttri vinnuviku hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Í kjarasamningum sem undirritaðir voru síðasta vor var samið um styttingu vinnuvikunnar. Í samningum er lögð áhersla á að það fari fram alvöru samtal milli starfsmanna og stjórnenda um fyrirkomulag og innleiðingu á hverri stofnun/starfsstöð […]

Skil á gögnum fyrir fræðslusjóði og Sjúkrasjóð

Síðasta greiðsla dagpeninga og styrkja hjá Verk Vest og Félagi járniðnaðarmanna vegna desembermánaðar fer fram 22. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári. Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi fimmtudaginn 17. desember nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í janúar 2021.

Framlenging á fræðsluátaki fræðslusjóðanna! Til 1.apríl 2021

Fræðslusjóðirnir, Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt, hafa ákveðið að framlengja fræðsluátak sjóðanna sem sett var af stað sl. vor f.o.m. 15.mars 2020. Samningar við fræðsluaðila; Gerðir voru samningar við fræðsluaðila sem bjóða upp á vefnám/fjarnám (einnig staðbundið þegar það er hægt vegna Covid)þar sem fyrirtækjum og einstaklingum er boðin þátttaka í námi/námskeiðum þeim að kostnaðarlausu. […]

Rafrænn fulltrúaráðs- og sjóðsfélagafundur Gildis

Fimmtudaginn 3. desember næstkomandi heldur Gildi-lífeyrissjóður opinn fund fyrir fulltrúaráð og sjóðfélaga. Í ljósi samkomutakmarkana vegna útbreiðslu Covid-19 verður fundurinn að þessu sinni rafrænn. Dagskrá: Staða og starfsemi Gildis á COVID-19 ári Fjárfestingar Gildis Önnur mál Hægt verður að horfa á fyrirlestra á netinu og senda fyrirspurnir á frummælendur.

Ný launareiknivél SGS

Ertu óviss hvort verið er að borga þér laun samkvæmt kjarasamningum? Ef svo er hvetjum við þig til að skoða nýju launareiknivél SGS. Þar er hægt að reikna út laun miðað við kjarasamninga SGS á almennum markaði, við ríki og sveitarfélög og með þeim hætti athuga hvort launaseðlar eru réttir. Byrjaðu á að velja þitt […]