Samkomulag um launaþróunartryggingu starfsmanna sveitafélaga

Samkomulag um launaþróunartryggingu til starfsmanna ríkis og sveitarfélaga var undirritað af hálfu ASÍ þann 17. april síðat liðinn. Laun félagsmanna í aðildarfélögum ASÍ sem starfa hjá sveitarfélögum munu hækka um 1,7 prósent að meðaltali vegna samkomulagsins og laun félaga ASÍ sem starfa hjá ríkinu um 0,4 prósent að meðaltali. Launaþróunartryggingin er afturvirk og gildir frá […]

1. maí hátíðarhöld stéttarfélaganna

Tökum öll þátt í kröfugöngu stéttarfélaganna. Union members! Show solidarity and take part in the parade. Wszyscy bierzemy udzial w pochodzie zwiazków zawodowych. Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14.00. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi. Dagskráin í Edinborgarhúsinu: Kynnir verður Finnur Magnússon. Lúðrasveit Tónlistarskóla […]

Hvert atkvæði skiptir máli!

Nýjir kjarasamningar Starfsgreinasambands Íslands og Landssambands íslenskra verzlunarmanna við Samtök atvinnulífsins voru undirritaðir 3. apríl og fengu nafnið Lífskjarasamningar. Aðgerðarpakkinn sem ríkisstjórnin kom með að borðinu á loka metrunum reyndist lykillinn að því að hægt var að ljúka við gerð nýrra kjarasamninga. Við sem tókum þátt í að móta samningana teljum þá munu koma lægst […]

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga Verk Vest

Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninga Verk Vest hefst föstudaginn 12. apríl kl. 13.00 og lýkur þriðjudaginn 23. apríl kl. 16.00. Kosningahnappar fyrir kjarasamningana verða opnaðir á www.verkvest.is föstudaginn 12. apríl kl.13:00. Ítarlegar upplýsingar um kjarasamning verkafólks er að finna á heimasíðu SGS. KJÓSA UM KJARASAMING SGS Hér má svo finna ítarlegar upplýsingar um kjarasamning verslunar- og […]

Laust um páska í Reykjavík

Íbúðir félagsins í Ásholti og Hagamel í Reykjavík eru lausar um páska. Nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Félagsmenn geta bókað beint á orlofsvef félagsins eða koma við á skrifstofum félagsins á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði. Mieszkania Naszych zwiazkow na Ásholt i Hagamel w Rekjaviku sa wolne w Swieta Wielkanocne. Kto pierwszy ten lepszy. […]

Umowa zbiorowa na lata 2019-2022

Związki członkowskie federacji związków zawodowych SGS podpisały nową umowę zbiorową z federacją pracodawców SA, która musi następnie zostać zatwierdzona w głosowaniu. Umowa obowiązywałaby od 1 kwietnia 2019 roku do 1 listopada 2022 roku czyli przez 3 lata i 8 miesięcy. Aby zapoznać się dokładniej z propozycjami oraz głosowaniem prosimy kliknąć na link poniżej. Głosowanie elektroniczne […]

Fundur trúnaðarráðs og trúnaðarmanna Verk Vest mælir með Lífskjarasamningi

Nýgerður Lífskjarasamningur fékk góðar undirtektir á fundi trúnaðarráðs og trúnaðarmanna Verk Vest í gærkvöldi. Góðar umræður sköpuðust um einstök efnisatriði svo sem breytingar á ungmennalaunum, kauptaxta og forsenduákvæði samningnsins. Þó svo almenn ánægja hafi verið með aðkomu stjórnvalda lýstu fundarmenn óánægju sinni að skattabreytingar skuli ekki koma fram fyrr en á næsta ári og því […]

Tillögur sérfæðihóps ríkisstjórnar til kaupa á húsnæði

Starfshópur sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skipaði í lok síðasta árs leggur til fjórtán tillögur og breytingar á þeim úrræðum sem fyrir eru til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Tillögur hópsins voru kynntar í dag á fjölmennum fundi í húsakynnumi Íbúðalánasjóðs. Þær miða m.a. að því að […]

Innlegg ríkisstjórnar í tengslum við kjarasamninga

Eftir viðræður við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur undanfarna daga og vikur kynnti ríkisstjórnin innlegg sitt til að liðka fyrir gerð kjarasamninga í gær. Aðgerðirnar munu nýtast best tekjulágum einstaklingum og ungu fólki sem rímar við áherslur og kröfur verkalýðshreyfingarinnar í yfirstandandi kjaraviðræðum. Meðal helstu atriða í innleggi ríkisstjórnarinnar eru: Nýtt lágtekjuþrep í þriggja þrepa skattkerfi. Ráðstöfunartekjur […]

Nýjir kjarasamningar Verk Vest

Á ellefta tímanum í gærkvöldi voru undirritaðir nýjir kjarasamningar fyrir félagsmenn í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Kjarasamningar taka til allra almennra verkamannastarfa, hótel, veitinga- og ferðaþjonustustarfa, afgreiðslufólk í verslunum og skrifstofufólks. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2019 – 30. nóvember 2022 og gilda launahækkanir frá gildistöku samningsins. Lægstu kauptaxtar hækka mest á samningstímanum eða um 90.000 kr. […]

Trúnaðarmannanámskeið Verk Vest

Dagana 4. – 5. apríl heldur Verkalýðsfélag Vestfirðinga námskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Félagsmálaskóla alþýðu og er hluti af kjarasamniningsbundinni fræðslu til trúnaðarmanna. Á námskeiðinu verður farið yfir hvert er hlutverk stéttafélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna. Lögð verður áhersla […]

Versnandi umgengni í orlofseignum Verk Vest

Að gefnu tilefni þá biðjum við félagsmenn um að ganga betur frá eftir dvöl íbúðum og orlofshúsum eftir notkun. Að undanförnu hefur kvörtunum frá félagsmönnum og umsjónarmönnum vegna umgengi og lélegra þrifa fjölgað óvenju mikið. Á höfuðborgarsvæðinu hefur fyrirtækið Sólar ehf. hefur umsjón með íbúðum félagsins. Leigutaki þarf ekki að þrífa íbúðina eftir leigutíma, en […]

Göngum ekki í störf félaga okkar !

Verkalýðfélags Vestfirðinga lýsir yfir fullum stuðningi við boðuð verkföll félaga okkar í Eflingu og VR. Um leið hvetjum við félagsmenn okkar til þess að ganga alls ekki í störf félagsmanna Eflingar og VR. Það er áríðandi að við styðjum baráttu félaga okkar fyrir bættum kjörum. Stjórn Verkalýðfélags Vestfirðinga

Starfsgreinasambandið slítur kjaraviðræðum

Starfsgreinasamband Íslands hefur ákveðið að slíta kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins eftir árangurslausan fund hjá ríkissáttasemjara í dag. Síðastliðin föstudag samþykkti viðræðunefnd Starfsgreinasambandsins einróma að ef ekki kæmu fram nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins um helgina hefði viðræðunefnd sambandsins fulla heimild til þess að slíta kjaraviðræðum. Engar nýjar hugmyndir eða tillögur hafa komið fram […]

Viðræðunefnd SGS fær heimild til að slíta viðræðum við SA

Fréttatilkynning frá Starfsgreinasambandi Íslands. Undanfarnar þrjár vikur hafa samningaviðræður um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífins farið fram undir verkstjórn Ríkissáttasemjara. Forsendur viðræðna hafa verið umræða um nýja launatöflu, styttingu vinnuvikunnar, samræmingu á vinnumarkaði og fleiri atriði. Í viðræðum undanfarinna vikna hefur ýmislegt áunnist, annað þokast í rétta átt og sumt er óleyst og því […]

Starfsumhverfi starfsfólks við hótelþrif á Íslandi

Vegna aukins umfangs í ferðaþjónustu á Íslandi hefur starfsmönnum gististaða fjölgað mikið undanfarin ár. Í þeim hópi eru starfsmenn sem sinna hótelþrifum og ákvað Vinnueftirlitið að ráðast í könnun og úttekt á vinnuumhverfi þessa hóps samfara ábendingum um að gæta þurfi að starfsumhverfi hans sérstaklega. Markmiðið með átakinu var því að kanna vinnuumhverfi starfsfólks við […]

Starfsgreinasamband Íslands tekur ákvörðun um áframhald kjaraviðræðna

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur samþykkt að halda viðræðum áfram við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning og verður viðræðum haldið áfram eftir helgi. Aðilar hafa fundað nánast daglega undanfarnar vikur, auk þess sem vinna starfshópa um einstök málefni hefur verið í fullum gangi. Viðræðurnar hafa gengið þokkalega en staðan er viðkvæm og margt er enn óleyst. […]

Opnað fyrir sumar umsóknir í orlofshús Verk Vest

Þann 14 mars verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús hjá Verk Vest sumarið 2019. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og sótt um með því að velja: Sumar. Félagið býður upp á orlofshús fyrir félagsmenn í öllum landshlutum sumarið 2019. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ásabyggð á Flúðum – […]

Sveitafélög sýni ábyrgð – ályktun samninganefnar SGS

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands skorar á sveitarfélög landsins að standa undir þeirri ábyrgð sem þau bera vegna kjarasamninga. SGS krefst þess að sveitarfélögin haldi aftur af kostnaðarhækkunum og hækkunum á margvíslegum þjónustugjöldum og velti ekki auknum kostnaði yfir á almennt launafólk. Sjálfvirkar hækkanir á fasteignagjöldum í fjölmörgum sveitarfélögum eru algerlega óásættanlegar og bitna harðast á þeim […]

Breytt þjónusta orlofsíbúða í Reykjavík

Frá og með 1. mars breytist þjónusta fyrir íbúðir félagsins í Reykjavík. Orlofssjóður hefur gert þjónustusamning við Sólar sem tekur við að þjónusta íbúðirnar frá þeim tíma. Með þjónustusamningi við Sólar verða þrif innifalin í leiguverði og gildir ný verðskrá frá 17. maí þegar opnar fyrir sumarúthlutun. Á sama tíma taka einnig gildi breyttar umgengnisreglur […]

Óviðunandi tekjuskerðing í lífeyriskerfinu

Þórey Þórisdóttir framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða skrifar „Tekjuskerðing almannatrygginga gagnvart eldri borgurum og öryrkjum er alls ekki sjálfsögð og því síður að hún teljist vera einhvers konar samfélagslögmál sem verði ekki brotið frekar en sjálft náttúrulögmálið. Tekjuskerðingunni var komið á með pólitískri ákvörðun og henni verður ekki breytt eða hún afnumin nema með pólitískri ákvörðun. Íslendingar […]

Kjaraviðræðum SGS vísað til ríkissáttasemjara

Starfsgreinasamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa átt í viðræðum um nýjan kjarasamning frá því í október 2018. Á þeim tíma hafa aðilar átt tæplega 80 fundi um sértæk mál, sem og hátt í 30 fundi viðræðunefnda SGS og SA, um forsendur og innihald nýs kjarasamnings. Ýmislegt hefur þokast áfram á undangegnum vikum í einstökum málum […]

Opnað fyrir umsóknir fyrir páskavikuna !

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir páskavikuna 2019 fimmtudaginn 14. febrúar kl. 8:00. Orlofshúsin sem eru í úthlutun: Bjarnaborg, íbúðir í Reykjavík og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Ekki er hægt að sækja um ákveðin hús/íbúð að undanskilinni stóru íbúðinni í Reykjavík. Félagsmenn geta farið inn á orlofsvef félagsins og sótt […]

Sjálfkjörið í stjórn Verk Vest

Framboðsfrestur til stjórnar Verkalýðsfélags Vestfirðinga og í aðrar trúnaðarstöður hjá félaginu rann út kl.16:00 mánudaginn 11.febrúar. Kjörstjórn bárust ekki önnur framboð og er því A-listi trúnaðarráðs sjálfkjörinn til næstu 2ja ára. Var tilkynnt um niðurstöðuna á aðalfundi starfsgreinadeilda Verk Vest sem haldinn var í gærkvöldi þar sem einnig var kosið í stjórninr deildanna. Ný stjórn […]

Aðalfundur starfsgreinadeilda Verk Vest

Aðalafundur starfsgreinadeilda Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn mánudaginn 11. febrúar kl.18:00 í húsnæði Vinnuvers við Suðurgötu 9 á Ísafirði. Í upphafi fundar verður boðið upp á léttar veitingar. Gestir fundarins verða forsetar ASÍ. Dagskrá: Kosningar í stjórnir deilda samkvæmt 4. grein laga Verk Vest Matvæla – og þjónustu deild SGS Opinber deild SGS Verslunardeild – LÍV […]

Auglýsing um kosningu til stjórnar og trúnaðarráðs Verk Vest

Samkvæmt 19 gr. laga Verkalýðsfélags Vestfirðinga um stjórnarkjör er auglýst eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir starfsárin 2019 til 2021 að viðhafðri allsherjar atkvæðagreiðslu. Samkvæmt því ber að skila lista skipuðum formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fjórum til vara ásamt 30 einstaklingum í trúnaðarmannaráð. Tveimur skoðunarmönnum reikninga […]

Orlofshús Verk Vest á Spáni – sumarbókanir

Sumarhús Verk Vest á Spáni er laust til bókana fyrir sumartímabil 2019. Leigutímabil að sumri eru tvær vikur og vilji fólk vera lengur er mögulegt að leigja tvö tímabil. Skiptidagar sumar 2019 eru þriðjudagar og hefst leigutímabilið þriðjudaginn 28. maí. Verð fyrir tvær vikur er kr.90.000 og skilagjald er kr.13.000. Rétt er að benda á […]

Orlofshús Verk Vest á Spáni – Sumarbókanir

Þar sem ferðatakmörkunum vegna Covid 19 hefur verið létt mjög víða og fólk farið huga að sumarleyfum þá er rétt að benda á að sumarhús Verk Vest á Spáni hefur verið opnað til bókana fyrir sumartímabil 2022. Leigutímabil að sumri eru tvær vikur en vilji fólk vera lengur er mögulegt að leigja tvö tímabil. Rétt […]

Verðlaunahafar kjaramálakönnunar

Verk Vest í samstarfi við RHA, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri sendi félagsmönnum netkönnun vegna kjarasamningagerðar sem nú er í gangi. Könnuninni lauk þann 18. desember og þeir félagsmenn sem tóku þátt voru sjálfkrafa þáttakendur í happdrætti á vegum félagsins. Vinningshafar voru dregnir út fyrir jól og hafa þegar fengið vinninga afhenta. Aðalvinning, vikudvöl að eigin […]

Verk Vest greiðir út styrki og sjúkradagpeninga fyrir jól

Félagsmenn sem hafa skilað inn umsóknum um sjúkra- og fræslustyrki til Verk Vest fá umsóknir afgreiddar á morgun föstudag 21. desember. Sjúkradagpeningar verða einnig greiddir út á morgun föstudag. Starfsfólk Verk Vest sendir félagsmönnum jóla- og nýárskveðjur og þakkar gott samstarf á liðnu ári.