Lokað á Ísafirði og Patreksfirði vegna jólaferðar starfsfólks

Vegna jólaferðar starfsfólks Verk Vest verður skrifstofan á Ísafirði lokuð föstudaginn 7. desember. Skrifstofan á Patreksfirði verður lokuð frá hádegi í dag fimmtudag. Skrifstofa félagsins á Hólmavík verður opin frá kl.8 -12.00 á föstudag.
Allt að 96% munur á kostnaði heimila við flutning og dreifingu raforku !

Allt að 96% verðmunur er á flutningi og dreifingu raforku milli fyrirtækja en tiltölulega lítill munur er á hæsta og lægsta verði orkusala eða 9,17%. Kostnaður við flutning og dreifingu raforku hefur hækkað um 2,6 -19,4% síðan í ágúst 2016. Mest hefur raforkukostnaðurinn hækkað hjá Norðurorku, 19,4% en minnst hjá Rafveitu Reyðarfjarðar, 2,6%. Veitur er […]
Nowa ankieta z Zwiazkow Zawodowych dotyczaca lepszych warunkow dla pracownikow – Do wygrania nagrody !

RHA, Centrum Badawcze Uniwersytetu w Akureyri już niedługo wyśle Wam ankiete związaną z nowymi umowami zbiorowymi i prosimy o poświęcenie 5 minut na jej wypełnienie. Chcielibyśmy z góry podziękować wszystkim respondentom za udział w badaniu. Państwa udział jest niezwykle istotny. Wszyscy którzy wezną udział w wypełnieniu oraz odesłaniu antykiety samoistnie wezną udział w loteri gdzie […]
Kennitöluflakk veldur miklu samfélagslegu tjóni

Á 43. þingi ASÍ var sett fram krafa um að gripið verði til aðgerða til að stöðva kennitöluflakk og það er eina af þeim kröfum sem verkalýðshreyfingin hefur sett fram gangvart stjórnvöldum. Ekki er til formleg skilgreining á kennitöluflakki en í sinni einföldustu mynd má lýsa kennitöluflakki sem skipulagðri aðgerð einstaklinga þar sem verðmæti eru […]
Ný kjarakönnun Verk Vest – Happdrættisvinningar!

RHA, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri hefur sent félagsmönnum netkönnun um komandi kjarasamningagerð. Það tekur innan við 5 mínútur að svara könnuninni og hvetjum við þig til að svara könnuninni. Allir sem senda inn svör verða sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti og eru veglegir vinningar í boði. Vinningur er viku dvöl að eigin vali í sumarhúsi félagsins […]
Vilt þú hafa áhrif?

Hefur þú áhuga á að taka þátt í trúnaðarstörfum fyrir félagið? Ágæti félagsmaður, Verkalýðsfélag Vestfirðinga leitar eftir áhugasömum félagsmönnum til framboðs í trúnaðarstöður hjá félaginu. Áhugasamir félagsmenn eru beðnir um að hafa samband við Ásdísi, asdis@verkvest.is eða Huldu, hulda@verkvest.is fyrir 5. nóvember n.k. Einnig er hægt að koma við á skrifstofum félagsins á Ísafirði og […]
Endurgreiðsla á gangnamiðum

Eins og kunnugt er hefur Spölur hætt að rukka í Hvalfjarðargöngin og tekur félagið á móti ónotuðum gangnamiðum frá félagsmönnum til endurgreiðslu. Á Ísafirði verða miðar endurgreiddir beint með peningum. Á Patreksfirði verður einnig tekið á móti gangnamiðum sem verða endurgreiddir með millifærslu frá félaginu. Við munum taka við miðum til og með 31. október […]
Kvennafrí 24. október 2018 kl. 14.55

Miðvikudaginn 24. október kl. 14.55 ætla konur að yfirgefa vinnustaði og safnast saman á Silfurtorginu á Ísafirði og ganga fylktu liði í Alþýðuhúsið á Ísafirði og halda baráttufund undir kjörorðinu: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! Stjórnendur á vinnustöðum eru hvattir til gera ráðstafanir til að auðvelda konum að yfirgefa vinnustaðinn á þessum tíma og karlmenn […]
Opnum fyrir jól og áramót í dag fimmtudaginn 18. október

Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús Verkalýðsfélags Vestfirðinga fyrir jól og áramót 2018 fimmtudaginn 18. október kl. 8:00. Orlofshúsin eru sem eru í úthlutun eru: Bjarnaborg, íbúðir í Reykjavík og íbúð á Akureyri, Svignaskarð og Ölfusborgir. Ekki er hægt að sækja um ákveðin hús/íbúð að undanskilinni stóru íbúðinni í Reykjavík. Félagsmenn geta farið inn á […]
Skrifstofur félagsins lokaðar föstudaginn 19. október

Vegna fræðsludags hjá starfsfólki Verk Vest verður skrifstofa félagsins lokuð föstudaginn 19.október. Opnum aftur mánudaginn 22.október kl.8.00. Z powodu dnia edukacyjnego z pracownikami Zwiazkow Zawodowych bedzie biuro zamkniete w piatek 19 pazdziernika.
Verkalýðskempan Pétur Sigurðsson fallin frá

Fyrsti formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga Pétur Sigurðsson andaðist sunnudaginn 14. október, á áttugasta og sjöunda aldursári, en Pétur var fæddur 18. desember 1931. Pétur var af alþýðufólki kominn og hefur hann helgað íslenskri alþýðu starfskrafta sína óslitið megnið af starfsæfinni. Pétur stóð í fylkingarbrjósti fyrir vestfirskt Verkafólk í hartnær hálfa öld, sem forseti Alþýðusambands Vestfjarða frá […]
Réttindamál kynnt fyrir nýbúum

Þau eru fjölbreytt verkefnin sem koma inn á borð verkalýðsfélaganna. Á dögunum héldu Verkalýðsfélag Vestfirðinga í samstarfi við verkefnisstjóra mótttöku flóttamanna kynningafund um réttindi á vinnumarkaði fyrir nýbúa sem koma frá Írak og Sýrlandi. Ekki er það svo að formaður Verk Vest tali arabísku og naut því liðsinnis Ahmad, sem unnið hefur að móttöku flóttafólks […]
Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands kynnt

Sá sögulegi atburður átti sér stað á samninganefndarfundi SGS að öll verkamannafélögin á Íslandi sameinuðust í eina stóra samninganefnd. Ekki verður lengur talað um Flóabandalagið og landsbyggðina, heldur ætla öll 19 félögin að vinna sameiginlega að kröfum verkafólks á Íslandi. Samninganefnd SGS er því í forsvari fyrir hátt í 60.000 félagsmanna innan ASÍ. Mjög mikill […]
Að halla réttu máli

Vilja náttúruverndarsamtök og forystufólk veiðiréttarhafa virkilega fara með umræðuna um stöðu laxeldis á Vestfjörðum niður á það sorglega plan sem lögmaður náttúruverndarsamtaka Íslands og formaður veiðiréttarhafa koma fram með í fjölmiðlum? Vilja umrædd hagsmunasamtök vera þekkt fyrir að tefla fram talsmönnun sem skreyta sig með mannfyrirlitningu og útlendingahatri? Slíkur málflutningur er gjörsneyddur náungakærleik og samfélagslegri […]
Yfirlýsing vegna afturköllunar starfs- og rekstraleyfa fiskeldisfyrirtækja á Vestfjörðum

Fiskeldi á Vestfjörðum er að verða burðarás atvinnulífs á Vestfjörðum. Vanhugsaðar stjórnvaldsaðgerðir með afturköllun starfs- og rekstrarleyfa fiskeldisfyrirtækja hafa valdið ótta, óöryggi og reiði íbúa á Vestfjörðum. Sú atburðarás, ef ekkert verður að gert, mun hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir Vestfirði og samfélagið þar til frambúðar. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga fordæmir slíkar aðgerðir og mun ekki sætta […]
Félagsfundur 19. september kl.18:00

Vilt þú hafa áhrif ? Verkalýðfélag Vestfirðinga boðar til félagsfundar sem verður haldinn á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 19. september kl.18:00. Félagsmenn í trúnaðarráði eru sérstaklega hvattir til að mæta. Dagskrá Kosning fulltrúa á þing Alþýðusambands Íslands dagana 24. -26. október Kosning fulltrúa á þing Sjómannasambands Íslands dagana 11. – 12. október Kvöldverður í boði Verk […]
Félagsleg undirboð og brotastarfsemi verði ekki liðin á vinnumarkaði

Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands komu saman til fundar á Akureyri föstudaginn 7. september og tóku sérstaklega fyrir eftirlit með félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Formannafundur Starfsgreinasambandsins krefst þess að stjórnvöld grípi til aðgerða enda hafa stéttarfélögin takmörkuð úrræði til viðbragða. Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins krefjast þess að stjórnvöld hefji þegar í stað vinnu við úrbætur […]
Helgartilboð í sumarbústaði Verk Vest

Það er góð veðurspá fyrir helgina og því býður Verk Vest félagsmönnum helgartilboð í sumarbústöðum í Flókalundi, Svignaskarði og Illugastöðum. Helgarverð aðeins kr 15.000,- Fyrstur kemur fyrstur fær !
Laust í Flókalundi á helginni – Tilboð!

Hús nr. 9 í Flókalundi er laust til helgarleigu 24. – 27. ágúst. Tilboðsverð fyrir helgina er kr. 16.500. Nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar

Síðasti áfangi hækkunar á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóði launafólks á almennum vinnumarkaði kom til framkvæmda þann 1. júlí 2018 en þá hækkaði framlagið um 1,5% og er nú orðið 11,5%. Skylduiðgjald til lífeyrissjóðs nemur því nú samtals 15,5% sem skiptist í 4% iðgjald launamanns og 11,5% mótframlag atvinnurekenda. Atvinnurekenda greiðir hækkað mótframlag til þess lífeyrissjóðs […]
Laust í Ásholti í Reykjavík

Vegna forfalla er laus íbúð í Ásholti í Reykjavík dagana 6 – 10. júlí. Nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær !
Alicante á Spáni

Húsið á Spáni er laust dagana 9. -23. júlí ( 14 dagar ) og 20. ágúst – 3. september ( 14 dagar ). Leiguverð með skilagjaldi kr. 93.000. Nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær, eingögnu bókanlegt í síma 4565190 hjá Verk Vest. Nánari upplýsingar um staðsetningu ofl.
Ágæti félagsmaður, Drogi Członku, Dear Union Member of Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

Verk Vest leggur ríka áherslu á að félagsmenn komi á framfæri skoðununum sínum um kjaramál og hverju eigi helst að berjast fyrir við endurnýjun kjarasamninga. In English Po Polsku Í lok maí sendum við þér skoðunarkönnun til að kanna hug þinn til komandi kjarabaráttu og eru svör þín mjög mikilvæg fyrir samninganefnd félagsins. Því miður […]
Ísland – Króatía á bíótjaldi á Ísafirði og Patreksfirði

Verk Vest, Ísafjarðarbíó og Skjaldborg bjóða upp á beina útsendingu frá landsleik Íslands og Króatíu þriðjudaginn 26. júní klukkan 18:00. Bíóhúsin opna klukkutíma fyrir leik, mætum snemma og tryggjum okkur sæti. TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ ! Gegn framvísunar félagsskírteinis býður Verk Vest félagsmönnum upp á popp og kók.
Ráðgjafi á sviði starfsendurhæfingar

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður í samvinnu við Verkalýðsfélag Vestfirðinga leitar að ráðgjafa í 50% starf með starfsstöð á Ísafirði. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Ráðgjafar VIRK starfa hjá stéttarfélögum samkvæmt samningi við VIRK. Að VIRK standa öll helstu samtök […]
Þjóðhátíðartilboð á gistingu í völdum sumarhúsum

Ákveðið hefur verið að bjóða Þjóðhátíðartilboð á gistingu í völdum sumarhúsum. Þjóðhátíðarverð er á helgardvöl frá föstudeginum 15. – 18. júní í hús nr. 9 í Svignaskarði, hús nr. 9 í Flókalundi og hús félagsins á Illugastöðum. Helgarverð er kr. 16.500. Þjóðhátíðartilboð á vikudvöl í sömu húsum dagana 15. – 22. júní. kr. 19.900. Hvernig […]
Ójöfnuður, misskipting og fátækt – Ályktun frá aðalfundi

„Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir fullkominni ábyrgð á stjórnvöld sem hafa markvisst unnið að auknum ójöfnuði á Íslandi undanfarna áratugi. Allar ríkisstjórnir frá 1990 hafa með markvissum hætti gert þá ríkari enn ríkari og fátæka algjörlega bláfátæka.
Kjaraskerðningar á íslenskt launafólk gegnum skatta og velferðarkerfið eiga sér engin fordæmi í samanburði við hin norðurlöndin. Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir stjórnvöld ábyrg fyrir þeirri stöðu.“
Kjaramálakönnun Verk Vest
Ágæti félagsmaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins mun á næstu dögum leggja fyrir þig netkönnun um komandi kjarasamningagerð. Það tekur innan við 5 mínútur að svara spurningalistanum. Við hvetjum þig til að svara könnuninni. Niðurstöðurnar verða notaðar til að greina helstu hagsmunamál félagsmanna fyrir komandi viðræður við atvinnurekendur um nýjan kjarasamning. Skoðanir þínar eru […]
Kjaramálakönnun Verk Vest

Ágæti félagsmaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga RHA, Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri mun á næstu dögum leggja fyrir þig netkönnun um komandi kjarasamningagerð. Það tekur innan við 5 mínútur að svara spurningalistanum. Við hvetjum þig til að svara könnuninni. Ef þú hefur takmarkaðan aðgang að tölvu er þér velkomið að fá aðstoð á opnunartíma skrifstofum Verk Vest. Dear […]
Laust í Flókalundi – Tilboð!

Verk Vest býður félagsmönnum upp á tilboðsverð kr. 16.500 fyrir helgardvöl í Flókalundi 8 – 11. júní. Fyrstur kemur fyrstur fær. Eingöngu bókanlegt á skrifstofum félagsins í síma 4565190.