Boðað verkbann LÍÚ ólöglegt!

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:“Table Normal“;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:““;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:10.0pt;
font-family:“Calibri“,“sans-serif“;
mso-fareast-font-family:Calibri;
mso-bidi-font-family:“Times New Roman“;}

Þær aðgerðir sem LÍÚ hefur boðað gegn stjórnvöldum samræmast
ekki leikreglum á vinnumarkaði. Vinnustöðvun eða verkbann líkt og LÍÚ hefur
hvatt til í fréttatilkynningu frá laugardeginum 2. Júní standast ekki ákvæði í
öðrum kafla laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur sem fjallar um
verkföll og verkbönn. Í 14.gr. laganna segir: „Heimilt
er stéttarfélögum, félögum atvinnurekenda og einstökum atvinnurekendum að gera
verkföll og verkbönn í þeim tilgangi, að vinna að framgangi krafna sinna í
vinnudeilum, og til verndar rétti sínum samkvæmt lögum þessum, með þeim
skilyrðum og takmörkunum einum, sem sett eru í lögum.“ Boðaðar
aðgerðir LÍÚ beinast ekki gegn viðsemjanda sem eru samtök sjómanna heldur gegn
stjórnvöldum. Slíkt stangast algjörlega á við 17.gr. laga nr 80/1938 en þar
stendur skýrum stöfum að óheimilt sé að hefja vinnustöðvun ef tilgangur
vinnustöðvunar er að þvinga stjórnvöld til að framkvæma athafnir, sem þeim ber
ekki að framkvæma lögum samkvæmt. Verkalýðsfélag Vestfirðinga beinir því til
félagsmanna að leita réttar síns verði þeir fyrir fjárhagslegu tjóni sem megi
rekja til boðaðs verkbanns LÍÚ verði það að veruleika. Slíkt verði ekki látið viðgangast óátalið af
hálfu félagsins enda ber LÍÚ fulla ábyrgð þar sem um ólöglega aðgerð er að
ræða.Verkalýðsfélag Vestfirðinga beinir því til vestfirskra útgerðarmanna að virða lög og leikreglur á vinnumarkaði og senda skip sín á sjó eftir sjómannadagshelgarstoppið.