Þann 1. ágúst síðast liðinn tóku breytingar á lögum nr. 96/2002 gildi. Í kjölfar breytinganna munu ríkisborgarar innan EES-svæðisins (EES/EFTA) ekki þurfa dvalarleyfi á Íslandi en þurfa þess í stað að skrá dvöl sína og tilgang dvalar sinnar hér á landi hjá þjóðskrá.
Breytingarnar ná einnig til þeirra sem koma frá ríkjum utan EES (EES/EFTA) og dvalarleyfum tengdum atvinnuþátttöku. Eftir breytingarnar munu dvalarleyfi sem veitt eru á grundvelli atvinnuþátttöku skiptast upp í þrjá flokka;
Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar.
Dvalarleyfi fyrir íþróttafólk.
Dvalarleyfi vegna skorts á vinnuafli.
Útgáfa vistráðningarleyfa flyst alfarið til Útlendingastofnunar en önnur ákvæði sem lúta að atvinnuleyfum fyrir útlendinga eru óbreytt. Nánar er fjallað um þessar breytingar á vef Fjölmenningarsetursins á eftirfarandi tungumálum การเปลี่ยนแปลงกฎ – Nowelizacja ustawy o cudzoziemcach (nr. 96/2002 ) – Amendments on the Act on Foreigners (No. 96/2002 ).