Lokað á Patró

Í dag, föstudag 25. ágúst, verður lokað á skrifstofunni á Patró. Opið er á Ísafirði eins og venjulega, sími: 4565190

Trúnaðarmannanámskeið 3. – 5. desember

Verk Vest stendur fyrir trúnaðarmannanámskeið dagana 3. – 5. desember í samstarfi við Félagsmálaskóla Alþýðu, og Fos Vest. Leiðbeinendur koma frá Félagsmálaskólanum sem heldur utan um trúnaðarmannafræðsluna. Á námskeiðinu verður fjallað stöðu trúnaðrmanns á vinnustað, einelti, vinnuvernd og lestur launaseðla. Um er að ræða þriggja daga námskeið sem er hluti af kjarsamningsbundinni fræðslu trúnaðarmanna. Að […]

Desemberuppbót 2014

Desemberuppbót 2014 Almenni samningur milli SGS og SA 73.600 kr. Starfsfólk á hótel og veitingastöðum ( bensínstöðvar ) 73.600 kr. Samningur f.h. Ríkissjóðs og SGS 73.600 kr. Samingur SGS og Launanefndar sveitarf. 93.500 kr. Starfsfólk Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum 109.287 kr. Samningur verslunar og skrifstofufólks 73.600 kr. Vinnustaðasamningur Ísl. Kalkþörungafélagsins 75.149 kr. Bændsamtök Íslands og SGS […]

Átt þú uppsafnaðann rétt í Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks ?

Nýjar starfsreglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks voru samþykktar í fyrra og hófst tveggja ára aðlögunartímabil þann 1. janúar 2014. Nýjar reglur munu taka við af eldri reglum árið 2016. Á aðlögunartímanum gefst félagsmönnum sem eiga uppsöfnuð stig samkvæmt eldri reglum Starfsmenntasjóðsins kostur á að nýta þau. Verk Vest vill benda félagsmönnum í verslunar- og skrifstofudeild […]

Ríkisvaldið standi við lög og gerða samninga

Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK segir afstöðu stjórnar VIRK mjög skýra, sem kemur fram m.a. í umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, að ef ríkið tekur ekki þátt í fjármögnun á VIRK eins og lög kveða á um og samningar gera ráð fyrir þá er ljóst að VIRK getur ekki tekið við einstaklingum í þjónustu á […]

Vegið að jafnrétti til náms

„Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að fyrirhugaðar breytingar á umhverfi framhaldsskólanna, sem munu bitna af þunga á nemendum eldri en 25 ára, verði endurskoðaðar. Íslenskar aðstæður eru um margt sérstakar og varhugavert að heimfæra stöðuna á Norðurlöndum upp á Ísland. Hér á landi hefur ungt fólk haft aðgang að vinnumarkaðnum, ólíkt nágrannalöndunum, sem gerir það […]

Landssamtök lífeyrissjóða gera athugasemdir við fjárlagafrumvarp

Landssamtök lífeyrissjóða ( LL ) hafa sent Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis athugsemdir vegna niðurfellingar framlags til jöfnunar örorkulífeyrisbyrði. Jafnframt skora LL eindregið á nefndina að beita sér fyrir því að að fallið verði frá áformum um breytingu á framlagi til jöfnunar örorkubyrði. Í athugasemdunum LL er rakið hvernig örorkuframlagið er tilkomið og að það hafi […]

Stjórn Verk Vest mótmælir harðri og óvæginni aðför að launafólki

Hin harða og óvægna aðför að launafólki sem birtist í fjárlagfrumvarpi 2015 á sér vart hliðstæðu hin síðari ár. Slík aðför er hvatning til launafólks inn í komandi kjaraviðræður um að láta sverfa til stáls. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur stjórnvöld til að koma í veg fyrir að óbreytt fjárlagafrumvarp nái fram að ganga um leið […]

Skipuleg leit að legháls– og brjóstakrabbameini bjargar mannslífum

Nú er bleikur mánuður, sem þýðir að athygli er vakin á nauðsyn þess að fara í krabbeinsskoðun. Leghálskrabbamein er annað algengasta krabbamein í heimi hjá konum og tiltölulega algengt meðal ungra kvenna. Það er eitt fárra krabbameina þar sem orsakir eru þekktar en meginorsök leghálskrabbameins er HPV–veira sem smitast við kynmök. Flest þessara smita hverfa […]

ÞETTA ER EKKI RÉTTLÁTT!

Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi. Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana. Hækkun á matvælumHækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum. HeilbrigðismálMeð meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem […]

Lokað á Ísafirði og Patró

Skrifstofur Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði verða lokaðar eftir kl.12.00 föstudaginn 3. október vegna vinnustaðaferðar starfsfólks. Þeir sem eiga eftir að ganga frá leigusamningum vegna íbúða, kaupa miða í göng eða flugmiða úmsókna eða vegna annarra mála er vinsamlegast bent á að ljúka því fyrir kl.12.00 á föstudag svo hægt verði að komast hjá […]

Ríkisstjórn ríka fólksins – nokkrar staðreyndir

„Lækkun á miðþrepi tekjuskattsins úr 25,8 í 25,3% mun samkvæmt greiningu fjármálaráðuneytisins skila 11 milljörðum í auknar ráðstöfunartekjur hjá heimilunum á árunum 2014 og 2015. Líkt og ASÍ benti á þegar breytingin var gerð gagnast hún aðeins tekjuhæstu heimilunum að fullu og í mun minna mæli lág- og millitekjufólki. Hjá þeim sem voru með tekjur […]

Fjárlagafrumvarpið 2015 – Aðför að launafólki

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu um fjárlagafrumvarpið og samskipti launþegahreyfingarinnar við ríkisstjórnina. …“Almennt launafólk hefur á síðustu árum tekið á sig miklar byrðar með samdrætti í tekjum, auknum útgjöldum og skuldsetningu sem leitt hafa til minni kaupmáttar. Þetta á ekki síst við um lágtekjuhópa og lífeyrisþega. Á sama tíma hefur verið skorið […]

Þing ASÍ – UNG

Þriðja þing ASÍ-UNG verður haldið í dag,12. september, undir yfirskriftinni „Samfélag fyrir alla … líka unga fólkið“. Öll aðildarfélög ASÍ, rúmlega fimmtíu talsins, hafa rétt til að senda fulltrúa á þingið. Fulltrúi Verk Vest er Þórdís G. Guðmundsdóttir trúnaðarmaður félagsins hjá Samkaupum á Ísafirði. En hvað er ASÍ -UNG ? Félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eru um […]

Ljóst að nýtt fjárlagafrumvarp mun að óbreyttu setja komandi kjaraviðræður í uppnám

Á nýafstöðnum formannafundi Starfsgreinasambands Íslands komu fram hörð mótmæli gegn þeirri aðför sem ríkisstjórnin er í gegn atvinnulausum og tekjulágum með nýju fjárlagafrumvarpi. Með hækkun á matarskatti er verið að velta álögum frá tekjuhæsta fólkinu yfir á lágtekjufólk sem mun rýra enn afkomu almenns launafólks og sérstaklega þeirra tekjulægstu. Fjármálaráðherra hefur lýsti því yfir að […]

Starfsgreinasambandið heldur formannafund á Ísafirði

Starfsgreinasamband Íslands ( SGS ) heldur útvíkkaðann formannafund á Ísafirði í dag og á morgun. Fundurin fer fram á Hótel Ísafirði og þátttakaendurnir, sem eru 35 að tölu, koma frá aðildarfélögum SGS af öllu landinu. Gera má ráð fyrir að kjara- og atvinnumál verði fyrirferðamikil á fundinum þar sem undirbúningur fyrir kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði […]

Ekkert réttlætir ofurlaun forstjóra hjá íslenskum fyrirtækjum

Í nýrri samantekt ASÍ hafa ofurlaun íslenskra forstjóra verið sett í samhengi við laun almennings í landinu. Ekki kemur neinn nýr snannleikur í ljós, annar en sá að forstjórarnir eru tugföldum verkamannalaunum eins og við flest sennilega vitum. Umræðan fyrir hrun var á þann veg að réttlæta þessi ofurlaun af því fyrirtækin væru að skila […]

Samningnefnd SGS lýsir þungum áhyggjum af stöðu starfsfólks í ferðaþjónustu

Fram kom í máli margra formanna sem sátu samninganefndarfund hjá Starfsgreinasambandinu á fimmtudaginn var, að ástandið í kjaramálum fólks sem starfar innan ferðaþjónustunnar hefur aldrei verið jafn slæmt. Í sumar hafa komið óvenju mörg mál inn á borð stéttarfélaganna sem fjalla um að ekki eru greidd laun samkvæmt kjarasamningum. Einn fundarmanna gekk svo langt að segja: „Það er varla að það komin inn launamanneskja með rétt laun í veitingabransanum.“ Fundarmenn voru sammála um að ekki væri endilega um að ræða svik og pretti heldur væru atvinnurekendur oft illa upplýstir um kjarasamninga og leita sér ekki réttra upplýsinga.

Minnum á frídag verslunarmanna

Félagsmenn í Verk Vest sem starfa við verslunar- og afgreiðslustörf eru minntir á að frídagur verslunarmanna er mánudaginn 4. ágúst. Frídagurinn er stórhátíðardagur og ber að greiða fyrir vinnu þann dag samkvæmt ákvæðum þar um. Það er ekki vinnuskylda á frídögum og stórhátíðardögum og á fastráðið starfsfólk í verslunum rétt á að fá greidda dagvinnu […]

Láttu ekki plata þig! Prufudagar án launa ólöglegir

Því miður er nokkuð algengt að starfsfólk á félagssvæði Verk Vest sem ráðið er til starfa í ferðaþjónustu og á veitingastöðum sé boðin vinna á „Jafnaðarkaupi“. Jafnaðarkaup er ekki til samkvæmt kjarasamningum og því óheimilt að semja um slíkt við starfsfólk. Ekkert virðist skorta á hugmyndarflug hvað er sett inn í jafnaðarkaupið. Hafa sumir ferðaþjónustuaðilar gengið svo langt að reikna fæði, húsnæði og önnur hlunnindi eða jafnvel orlof starfsmanna inn í jafnaðarkaupið. Í sumum tilfellum er haft í hótunum við starfsfólk ef það hyggst leita aðstoðar stéttarfélags. Algengasta hótunin er uppsögn eða að haldið verði eftir af launum ef starfsfólk sættir sig ekki við þau kjör sem að þeim er rétt. Því miður er algengt að áhersla sé lögð á að halda stéttarfélagi utan við launamál og aðbúnað starfsmanna þegar kemur að ráðnigu. Því miður koma alltof mörg svona mál inn á borð hjá stéttarfélögum á hverju sumri og fer starfsfólk Verk Vest ekki varhluta af því.

Kjarasamningur við sveitarfélögin samþykktur

Starfsfólk sveitarfélaga í 13 aðildarfélögum SGS hefur samþykkt kjarasamninginn sem undirritaður var 1. júlí síðastliðinn í sameiginlegri rafrænni atkvæðagreiðslu. Já sögðu 78,84% en nei sögðu 21,16%. Alls voru 2.515 félagar á kjörskrá en 378 greiddu atkvæði (15% kjörsókn).
Þarna var í fyrsta skipti notuð rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla á vegum Starfsgreinasambandsins.

Laust á Einarsstöðum

Hvernig væri að skella sér Austur á land ? Vegna forfalla er laust á Einarsstöðum vikuna 18. – 25. júlí og gildir þá regla fyrstur kemur fyrstur fær. HÚSIÐ HEFUR VERIÐ LEIGT !!

Laust á Einarsstöðum

Hitabylgja á Austfjörðum ! Bústaður félagsins á Einarsstöðum var að losna vegna forfalla vikuna 17 – 24. ágúst. Að vanda gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Takmörkuð opnun á Patreksfirði

Vegna sumarleyfis starfsmanns á Patreksfirði verður takmörkuðu þjónusta hjá skrifstofu félagsins á Patreksfirði frá 11. – 18 júlí. Hægt verður að kaupa flugmiða og gangamiða milli kl. 9 og 12 á sama stað. Félagar snúi sér til skrifstofunnar á Ísafirði vegna annarra mála. Síminn þar er 456-5190 eða senda fyrirspurninr á postur@verkvest.is

Afsláttarkjör með Sæferðum

Félagsmönnum í Verk Vest bjóðast nú afsláttarkjör í VikingSushi og dagsferð í Flatey með Sæferðum í Stykkishólmi þegar bókað er á netinu í gegnum fésbókarsíðu Sæferða. Afslátturinn er 30% af auglýstum verðum og þarf að virkja hann með því að haka við að viðkomandi sé félagsmaður í stéttarfélagi um leið og bókað er í viðkomandi […]

Rafræn atkvæðagreiðsla um sveitafélagasamningana

Félagsmenn í Verk Vest sem starfa eftir kjarasamningum við sveitafélögin eru beðnir að hafa í huga að opnað verður fyrir rafræna atkvæðagreiðslu á hádegi föstudaginn 11. júlí kl. 12:00. Kynningarefnið ásamt bréfi og lykilorði fer í póst miðvikudaginn 9. júlí og ætti að berst félagsmönnum öðru hvoru megin við komandi helgi. Netkosning Á forsíðu SGS.is […]

Prufudagar án launa eru ólöglegir !

Stéttarfélög um allt land hafa orðið vör við að ungt fólk sé látið vinna svokallaða „prufudaga“ án launa, þá er jafnaðarkaup ennþá töluvert algengt og sömuleiðis gerviverktaka. Nauðsynlegt er að fólk þekki rétt sinn og skyldur varðandi vinnutíma og að ekki er hægt að kalla til fólk á vaktir og senda það heim fyrirvaralaust án […]

Skrifað undir nýjan kjarasamning við sveitafélögin

Starfsgreinasamband Íslands undirritaði samninga við Samband Íslenskra sveitarfélaga í gærkveldi fyrir hönd ellefu aðildarfélaga sinna (AFL starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands og Verkalýðsfélag Vesfirðinga). Samningurinn gildir frá 1. maí 2014 til 30. apríl 2015 […]

Er verktakavinna almennt undir lágmarkslaunum?

Drífa Snædal framkvæmdastjóri SGS skrifar þarfa og mjög athyglisverða grein um heimilsþrif og verktakavinnu á heimasíðu SGS. „Ef þú greiðir manneskju 2.500 krónur á tímann fyrir að þrífa heima hjá þér ert þú sennilega að greiða undir lágmarkslaunum í landinu. Ef þú tekur 2.500 krónur á tímann fyrir að þrífa heima hjá fólki ert þú […]

Sumarfrí á Patró

Skrifstofa VerkVest á Patreksfirði verður lokuð frá deginum í dag til mánudagsins 30. júní vegna sumarleyfa. Félagar hafi samband við aðalskrifstofu á Ísafirði í síma 456 5190 eða á postur@verkvest.is