Dyravarðarnámskeið í samstarfi lögreglunnar á Vestfjörðum, Verkalýðsfélags Vestfriðinga, slökkviliðsstjórans í Ísafjarðarbæ og Tryggingarmiðstöðvarinnar hf. verður haldið dagana 11 – 14.janúar næst komandi. Námskeiðið er ætlað þeim starfsmönnum veitinga- og skemmtistaða sem sinna dyravörslu og öðrum þeim sem sinna dyravarðarstarfi á einstökum skemmtunum eða dansleikjum. En allir sem sinna dyravarðastarfi, hvort heldur sem aðalstarfi eða hlutastarfi þurfa að hafa lokið námskeiði sem þessu.Námskeiðið stendur í fjögur kvöld frá kl 18:00 – 22:00 og er þátttökugjaldið kr.5.000,- Rétt er að benda á að starfsmenntasjóðir stéttarfélaga taka þátt í kostnaði við námskeiðisgjaldið. Þátttakendur þurfa að skrá sig á Lögreglustöðinni á Ísafirði ekki seinna en föstudaginn 8.janúar 2010.Nánari upplýsingar um dagskrá námskeiðsins má finna hér.