Enn eru miklar hækkanir á matvörum í verslunum, að því er fram kemur í nýrri
mælingu verðlagseftirlits á vörukörfu ASÍ sem gerð var um sl. mánaðarmót (viku 36). Við samanburð á mælingu verðlagseftirlitsins frá því í maí (viku 19), hækkar vörukarfan um 2-5% hjá öllum verslunarkeðjum nema Nóatúni, þar sem karfan
lækkar um 1%.
Miklar hækkanir eru áberandi í flestum vöruflokkum körfunnar en lækkanna gætir á grænmeti og ávöxtum hjá þjónustuverslunum og klukkubúðum.
Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest á milli mælinga í Samkaupum-Strax um 5,6%, í Krónunni um 4,7%, í 11-11 um 4,6% og í Bónus um 4%. Í 10-11 nam hækkunin
3,9%, í Kaskó 3,2%, í Hagkaupum 2,7%, í Samkaupum-Úrval 2,3% og í Nettó
hækkaði vörukarfan um 2,2%, á þessu fjögurra mánaða tímabili.Nánar er greint frá verðkönnuninni á vef ASÍ.