Á fundi formanna innan Sjómanna sambands Íslands ( SSÍ ) sem haldin var dagana 21 – 22. októberl síðast liðinn var samþykkt að senda eftirfarandi ályktun til Innanríkisráðherra um tafarlausa lausn á björgunarþyrlumálum Landhelgisgæslunnar. En frá og með næstu áramótum mun skapast neyðarástand þar sem aðeins ein björgunarþyrla mun verða til taks verði ekkert að gert. “Verði ekkert að gert strax
varðandi þyrlukost Landhelgisgæslunnar er hætt við að
hættuástand skapist fljótlega. Landhelgisgæslan á eina
þyrlu og er með aðra til leigu til ársins 2014. Um næstu
áramót fer önnur þyrlan í 3ja mánaða skoðun og verður þá
aðeins ein þyrla tiltæk. Megin verkefni þyrlanna er að
annast leit og björgun, en einnig sinna þær brýnum
sjúkraflutningum og öðrum öryggistengdum verkefnum. Á 17
ára tímabili frá 1994 – 2010 hefur alls 1513
einstaklingum verið bjargað með þyrlum
Landhelgisgæslunnar. Þar af voru bjarganir á sjó alls
361 og um helmingur þeirra utan 20 sjómílna. Í um 71%
tilvika er talið að notkun björgunarþyrlu hafi skipt
sköpum við björgunina. Það er því lífsspursmál fyrir
sjómenn að alltaf séu tiltækar þyrlur til björgunar
þegar óhöpp verða.
Formannafundur SSÍ haldinn í
Stykkishólmi dagana 21. og 22. okt. 2011 skorar því á
innanríkisráðherra að tryggja að Landhelgisgæslan fái nú
þegar a.m.k. tvær stórar þyrlur til viðbótar núverandi
þyrluflota sínum til að hún geti sinnt lögbundnu
hlutverki við eftirlits og björgunarstörf.”