Gífurleg hækkun stýrivaxta – óskiljanleg ákvörðun !

Formaður Verk Vest fjallar um þær afleiðingar sem boðar stýrivaxtahækkanir Seðlabankans gætu haft í för með sér fyrir atvinnulíf landsmanna í pistli hér á síðunni. Hér fyrir neðan má lesa stuttan útdrátt úr pistlinum.” Stjórn seðlabankans hefur tekið þá ákvörðun að veita atvinnulífi landsmanna náðarhöggið með 550 punkta hækkun stýrivaxta. Var vandinn ekki nægur þótt þessi gjörningur þyrfti ekki að bætast ofan á ? Nú er það ljóst að ein helsta krafa alþjóða gjaldeyrissjóðsins um lánafyrirgreiðslu væri umtalsverð hækkun stýrivaxta. Í ljósi atburða síðustu vikna þá getur laskað atvinnulíf landsmanna ekki tekið á sig frekari áföll sem hækkun stýrivaxta kemur til með að hafi í för með sér. Fjármálaráðherra boðar að hækkunin vari eingöngu í stuttan tíma, kannski er það sá tími sem atvinnulíf okkar þolir ekki við núverandi aðstæður? ” Þá segir ennfremur í niðurlagi pistilsins … “Sú vá sem nú er fyrir dyrum verður ekki leyst nema allir spili í sama liði, hroki og skeytingarleysi gagnvart skoðunum almennings verður að víkja til hliðar, hér eru meiri hagsmunir í húfi en svo að hugmyndir almennings um mögulegar lausnir verði áfram virtar að vettugi.”