Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu. Á Vestfjörðum verða hátíðarhöld með dagskrá á eftirtöldum stöðum.
Ísafjörður Kröfugangan leggur af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 14.00 Dagskráin í Edinborgarhúsi: Lúðrasveit tónlistarskólans: Stjórnandi Madis Maekalle Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson sjómaður Söngatriði: Sigrún Pálmadóttir, undirleikur Beata Joó Pistill: Kolbrún Sverrisdóttir verkakona Leikatriði: Dýrin í Hálsaskógi Tónlistaratriði: Sigurvegarar Músíktilrauna Between Mountains Kaffiveitingar í Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00
Suðureyri Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14. Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar. Ræða dagsins: Lilja Rafney Magnúsdóttir. Tónlist og söngur barna. Dúettinn Between Moutains. Kaffiveitingar í félagsheimili Súgfirðinga.
Bolungarvík Bolvíkingum er boðið í kaffi og meðlæti 1. maí kl. 14:30 Dagskrá: Tónlistarskóli Bolungarvíkur skemmtir af sinn alkunnu snilld Hjörtur Traustason og Bjarki Einarsson taka nokkur lög


