Hátt í 60 milljónir hafa náðst upp í launakröfur félagsmanna

Mikið álag hefur verið á starfsmenn skrifstofu Verk Vest
undarna mánuði og misseri, en nánast má segja að samfelld gjaldþrotahrina
fyrirtækja hafi dunið yfir félagsmenn á þessum tíma. Frá því í september 2010
og til janúar 2012 komu þrjú stór gjaldþrotamál inn á borð félagsins ásamt sex umfangsminni
gjaldþrotamál. Stærstu og erfiðustu málin voru án efa gjaldþrot Eyrarodda á
Flateyri og KNH á Ísafirði, var það vegna fjölda þeirra starfsmanna sem félagið
aðstoðaði við að innheimta launakröfur á hin gjaldþrota fyrirtæki. Gjaldþrot TH
á Ísafirði var einnig nokkuð stórt hvað launakröfur varðar en ekki hvað fjölda
þeirra sem þurftu aðstoð við innheimtu launakrafna. Þá eru ótalin minni
gjaldþrotamál sem félagið hefur gert kröfur í þrotabú fyrir hönd sinna
félagsmanna.

Sá háttur hefur verið hafður á að félagið undirbýr og sér um
alla útreikninga launakrafna sinna félagsmanna og hefur sú vinna lagst ofan á
hin hefðbundnu störf hjá starfsfólki skrifstofunnar og erfiða kjarasamningsgerð
árið 2011. Þetta er tímafrek rannsóknarvinna sem krefst mikils utanum halds
og eftirfylgni við skiptastjóra og síðar ef þannig fer samskipti við
Ábyrgðarsjóð launa. En sjóðurinn greiðir samkvæmt ákveðnum reglum upp í
forgangskröfur, svo sem laun, orlof og
lífeyrisiðgjöld ef ekki er til fyrir þeim í þrotabúi hins gjaldþrota
fyrirtækis.

Alls hefur félagið innheimt hátt í 65 miljónir í launakröfur
í umræddum gjaldþrotamálum fyrir félagsmenn á því tímabili sem um ræðir, hefur
Ábyrðgarsjóður launa greitt hátt í 60 miljónir upp í þessar kröfur þar sem ekki
voru til fjármunir í þrotabúum fyrirtækjanna. Ástæða þess að sjóðurinn greiðir
ekki alla kröfuna er að sjóðurinn tryggir eingöngu kr. 374.000 sem hámarksábyrgð
launa fyrir hvern mánuð og kr.599.000 sem hámarksábyrgð áunninna orlofslauna.
Uppæðir hámarksábyrgðar hafa ekkert breyst frá janúar 2009, sem skýtur mjög
skökku við þar sem laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um 13,75% á umræddu
tímabili. Mætti því leiða að því líkum ef hámarksábyrgðir hefðu hækkað í takt
við launahækkanir á umræddu tímabili að hámarksábyrgð launa hvern mánuð í dag
ætti að vera kr.425.500 og hámarksábyrgð orlofslauna ætti að vera kr.681.400.

Miðað við gefnar forsendur hefðu félagsmenn Verk Vest sem
störfuðu hjá fyrirtækjum sem fóru í gjaldþrot á umræddu tímabili ekki tapað
eins miklum hluta launakrafna sinna hefðu hámarksábyrgðir hækkað í takt við
launaþróun á almennum vinnumarkaði.

Það er krafa félagsins að stjórnvöld vinni að því í samvinnu
við verkalýðshreifinguna að hámarksábyrgðir Ábyrgðasjóðs verði hækkaðar í takt
við launaþróun svo að launafólk verði ekki fyrir enn meira fjárhagstjóni þegar
fyrirtæki fara í gjaldþrot nóg er nú samt.