Hefur þú áhuga á að starfa í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga?

Ert þú félagsmaður í Verk Vest og vilt starfa í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga? Ef svo er endilega mættu á félagsfund Verk Vest sem verður haldinn á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 14. maí 2014 kl.18.00.

Dagskrá.

Tillaga um fulltrúa til setu á aðalfundi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
Breytingar í stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga
Staðan í kjaraviðræðum
Aðalfundur Verk Vest
Orlofshús erlendis
Orlofsferðir Verk Vest 2014
Önnur mál

Boðið verður upp á léttan kvöldverð í upphafi fundar.