Alþýðusamband Íslands gaf nýlega út skýrslu um kennutöluflakk og það tjón sem íslenskt samfélag verður fyrir vegna þess. Í sinni einföldustu mynd má lýsa kennitöluflakki sem skipulagðri aðgerð einstaklinga þar sem verðmæti eru tekin út úr einu félagi (hf./ehf.) og sett í annað félag en skuldir og aðrar skuldbindingar skildar eftir og félagið síðan sett í þrot. Mörg dæmi eru um keðju slíkra gjörninga vegna sama rekstursins þar sem sömu einstaklingar eru í forsvari. Fullyrða má að þetta athæfi kosti íslenskt samfélag tugi milljarða króna á ári.
Árið 2012 voru á Íslandi skráð 31 þúsund fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð og fer þeim fjölgandi. Slíkt þýðir að þær skuldbindingar sem gerðar eru í nafni félagsins eru á ábyrgð þess, ekki eigendanna. Dæmi eru um að einn og sami einstaklingurinn hafi farið með 29 félög í gjaldþrot á sjö ára tímabili.
Samfélagslegt tjón
Starfsmenn sem eiga útistandandi launakröfur á hin gjaldþrota félög auk þess að tapa starfi sínu og margvíslegum réttindum.
Fyrirtæki í hliðstæðum rekstri, og starfsmenn þeirra, sem standa skil á sínu en búa við skekkta samkeppnisstöðu vegna þeirra sem hafa rangt við.
Sameiginlega sjóði landsmanna sem verða af tekjum sem skipta a.m.k. tugum milljarða á hverju ári. Tekjum sem nýta mætti til að bæta t.d. heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi.
Nauðsynlegar aðgerðir
Strangari reglur um hæfi einstaklinga til að vera í forsvari fyrir félög með takmarkaða ábyrgð.
Skattalagabrot leiða til missis hæfis á sama hátt og dómur fyrir refsiverðan verknað gerir nú.
Krafa um aukið hlutafé við stofnun félags með takmarkaða ábyrgð og tryggt að það sé greitt.
Takmörk verði sett á nafnabreytingar félaga með takmarkaða ábyrgð.
Girt verði fyrir heimildir aðila sem eru tengdir félögum með takmarkaða ábyrgð til að taka fé út úr félaginu með lánum eða öðrum hætti.
Heimild fengin til að sekta forsvarsmenn félaga sem standa ekki skil á ársreikningi.
Alþýðusamband Íslands hefur lengi gagnrýnt andvaraleysi og ótrúlegt langlundargeð stjórnvalda gagnvart kennitöluflakki og þeim skaða sem slík starfsemi veldur. Nánar má lesa skýrslu ASÍ um kennitöluflakk á vef sambandsins.


