Kjarasamningur við ríkið undirritaður – helstu atriði

Samninganefnd SGS og ríkisins náðu loksins samkomulagi sem var undirritað á áttunda tímanum þann 4. júlí. Frá þessu er greint á heimasíðu SGS en þar má einnig finna helstu áhersluþætti samkomulagsins og framkvæmdaáætlun.

Gildistími samnings er 1. júlí 2009 – 30. nóvember 2010 með fyrirvara um endurskoðun fyrir 31. október 2009.
Ný launatafla tekur gildi frá 1. júlí 2009.
Launahækkun frá 1. júlí 2009
137.656 – 179.999 kr. ……………………………..6.750 kr.
180.000 – 184.999 kr. ……………………………..5.800 kr.
185.000 – 189.999 kr. ……………………………. 4.800 kr.
190.000 – 194.999 kr. ……………………………..3.900 kr.
195.000 – 199.999 kr. ……………………………..2.900 kr.
200.000 – 204.999 kr. ……………………………..1.900 kr.
205.000 – 209.999 kr. ……………………………. 1.000 kr.
Launahækkun 1. nóvember 2009
144.406 – 179.999 kr. ……………………………..6.750 kr.
180.000 – 184.999 kr. ……………………………..5.800 kr.
185.000 – 189.999 kr. ……………………………. 4.800 kr.
190.000 – 194.999 kr. ……………………………..3.900 kr.
195.000 – 199.999 kr. ……………………………..2.900 kr.
200.000 – 204.999 kr. ……………………………..1.900 kr.
205.000 – 209.999 kr. ……………………………. 1.000 kr.
Launahækkun 1. júní 2010
151.156 – 284.999 kr. ……………………………..6.500 kr.
285.000 – 289.999 kr. ……………………………..5.500 kr.
290.000 – 294.999 kr. ……………………………..4.500 kr.
295.000 – 299.999 kr. ……………………………..3.500 kr.
300.000 – 304.999 kr. ……………………………. 2.500 kr.
305.000 – 309.999 kr. ……………………………. 1.500 kr.
Starfsmenn í tímamældri ákvæðisvinnu og ræstingu samkvæmt fermetragjaldi hækka, og mun sama hlutfalls hækkun gilda fyrir ákvæði í kjarasamningi Verk Vest.
Lágmarkslaun fyrir fullt starf skulu vera kr. 157.000.- frá 1. júlí 2009 og kr. 165.000.- frá 1. júní 2010 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun.
Orlofsuppbót árið 2010 verður kr. 25.800.- hafi starfmenn hærri orlofsuppbót þá halda þeir henni.
Persónuuppbót í desember 2009 verður kr. 45.600.- og í desember 2010 kr. 46.800.-
Fatapeningar og reiknitala kaupauka Vegagerðarinnar hækka um 0,7% þann 1. júlí nk., 0,6% 1. nóvember nk. og 1,5% 1. júní 2010.
Sáttanefnd skal skipuð sem tekur til umfjöllunar mál er varða stefnumarkandi túlkanir og álitaefni er varða framkvæmd og þróun samningsins.
Komið verður á samstarfi á sviði mannauðsmála.
Unnið verður að samræmingu á texta kjarasamninga.
Unnið verður að málefnum vaktavinnufólks á samningstímabilinu.
Lokið verður endurskoðun tryggingarskilmála og sameiginlegar reglur gefnar út á haustmánuðum.
Unnið verður að tölfræði- og upplýsingagjöf í samstarfi við Hagstofu og ráðgjafanefnd.