LÍÚ með kverkatak áSA. Fáheyrð svik í kjaraviðræðum.

Hagsmunir LÍÚ yfirskyggja allt annað hjá SA
Undir miðnætti í gærkvöldi slitnaði upp úr viðræðum við Samtök atvinnulífsins um kjarasamning til þriggja ára, samtímis slitnaði upp úr viðræðum um skammtíma samning aðila. Á vef mbl.is í dag er reynt að breiða yfir þá svikamillu sem LÍÚ var með í gangi og þeirra þátt í að því fór sem fór.
Fljótlega eftir að viðræður hófust kom í ljós að Samtök
atvinnulífsins gerðu það að skilyrði fyrir gerð kjarasamninga, að
niðurstaða fengist í sjávarútvegsmálum. SA vildi ekki einungis tryggja
lausn í sjávarútvegsmálum, heldur náði krafan einnig til þess að lausnin
væri SA og LÍÚ þóknanleg. Samninganefnd ASÍ var ekki reiðubúin að
setjast að viðræðum á þessum forsendum og sleit viðræðum. Umræða um
breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafa ekkert með almennar
kjaraviðræður á Íslandi að gera. ASÍ og aðildarsamtök þess hafa skoðanir
á sjávarútvegsmálum en það hefur aldrei komið til greina hjá
Alþýðusambandinu að styðja kröfur SA og LÍÚ varðandi breytingar á
fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Viðræður hófust aftur í febrúar eftir að miðstjórn ASÍ sendi frá sér
ályktun þar sem áréttað var að SA bæri samkvæmt landslögum að standa
undir þeirri frumskyldu sinni að ganga til kjarasamninga.
Sjávarútvegsmálin vofðu þó enn yfir.
LÍÚ var með kverkatak á kjaraviðræðunum. LÍÚ tók 100 þúsund
félagsmenn ASÍ í gíslingu. LÍÚ sem er eitt af átta aðildarfélögum SA tók
sín eigin samtök í gíslingu og þar með stóra aðila eins og Samtök
iðnaðarins, Samtök verlsunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar.
Allt var þetta gert til að þvinga fram niðurstöðu í sjávarútvegsmálum
sem væri útgerðaraðlinum í landinu þóknanleg. Þetta er ofbeldi og
vinnubrögð sem eru LÍÚ til vansa. Þetta framferði varð að lokum til þess
að sú vegferð um þriggja ára samning, sem SA hóf sjálft í byrjun árs,
rann út í sandinn í dag.
Rökin sem SA lagði upp með, að þjóðarheill krefðist langtímasamnings,
véku á endanum fyrir hagsmunum LÍÚ. Það er dapurleg niðurstaða. SA beit
svo höfuðið af skömminni með því að ganga á bak orða sinna og svíkja
undirritun skammtímasamnings sem lá á borðinu og fresta þannig
launahækkun hjá okkar fólki.Frá þessu og fleiru er tengist því hvers vegna slitnaði upp úr viðræðum aðila má finna á vef ASÍ.