Lyfja oftast með hæsta verðið á lausasölulyfjum

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

Verðlagseftirlit
ASÍ kannaði á mánudaginn verð á 45 algengum lyfjum sem seld eru án lyfseðils.
Farið var í 18 apótek en Árbæjarapótek, Lyfjaborg Borgartúni og Apótek
Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni. Lægsta verðið var oftast að finna hjá
Garðs Apóteki Sogavegi í 25 tilvikum af 45. Lyfja Borgarnesi var hins vegar
oftast með hæsta verðið eða í 12 tilvikum af 45.

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

Af algengum lausasölulyfjum má nefna Postafen sem
er gefið við ferðaveiki (10 stk.) sem var dýrast á 590 kr. hjá Siglufjarðar
Apóteki en ódýrast á 440 kr. hjá Garðs Apóteki, sem er 150 kr. verðmunur eða 34%.
Exemkremið Mildison Lipid (30 gr.) var dýrast á 1.525 kr. hjá Rima Apóteki,
Langarima en ódýrast á 1.190 kr. hjá Garðs Apóteki sem er 28% verðmunur. Verkjalyfið
Treo (500 mg. 20 stk.) var dýrast á 889 kr. hjá Lyfju en ódýrast á 635 kr. hjá
Garðs Apóteki sem er 40% verðmunur. Ofnæmislyfið Histasin (10 mg. 30 stk.) var
dýrast á 1.359 kr. hjá Lyfju en ódýrast á 988 kr. hjá Apótekinu Akureyri sem er
38% verðmunur.

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

Könnunin var gerð í eftirtöldum apótekum: Apóteki Hafnarfjarðar, Tjarnarvöllum 11;
Apótekarinn Smiðjuvegi, Kópavogi; Apótekinu Akureyri, Furuvöllum 17; Garðs
Apóteki, Sogavegi 108; Lyf og heilsu Selfossi; Lyfju Borgarnesi; Lyfjavali
Álftamýri, Álftamýri 1-5; Lyfjaveri, Suðurlandsbraut 22; Reykjavíkur Apóteki,
Seljavegi 2; Rima Apóteki, Langarima 21; Skipholts Apóteki, Skipholti 50B;
Urðarapóteki, Vínlandsleið 16;
Akureyrarapóteki, Kaupangi við Mýrarveg; Apóteki Vesturlands, Smiðjuvöllum 32,
Akranesi; Siglufjarðar Apóteki, Norðurgötu 4B; Apóteki Garðabæjar, Litlatúni 3;
Apóteki Suðurnesja, Reykjanesbæ; Austurbæjar Apóteki, Ögurhvarfi 3. Árbæjarapótek,
Lyfjaborg Borgartúni og Apótek Ólafsvíkur neituðu þátttöku í könnuninni.

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:“Table Normal“;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:““;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:“Calibri“,“sans-serif“;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;}

Nánar er fjallað um könnunina á heimasíðu ASÍ.

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:“Table Normal“;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:““;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:“Calibri“,“sans-serif“;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;}