Vörukarfa ASÍ hefur hækkað milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í
mars og nýjustu mælingarinnar nú um miðjan júní (9.vika og 25.vika). Á
þessu þriggja mánaða tímabili hækkaði vörukarfan frá 1,4% til 4,4% hjá
öllum verslunarkeðjum nema Krónunni en þar má sjá örlitla lækkun.
Hækkanir eru í öllum vöruflokkum hjá flestum verslunum nema í kjötvörum,
en þar lækkar verð hjá 6 verslunum af 8.
Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest hjá Samkaupum-Strax (4,4%), Hagkaupum
(3,4%), Samkaupum-Úrvali og Bónus (3,2%), Nettó (2,2%), 10/11 (1,7%) og
hjá Nóatúni um (1,4%). Hjá Krónunni lækkaði verðið örlítið milli
mælinga eða um (-0,1%).
Verðkönnun ASÍ má finna hér.