Meintar ólögmætar aðgerðir í garð meðlagsskuldara

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

MicrosoftInternetExplorer4

Innheimtustofnun
hefur heimilidir á grundvelli 5. gr. laga nr. 54/1971, að stofna til
kröfusambands milli stofnunarinnar og launagreiðanda meðlagsskuldara.
Þannig getur stofnunin gert kröfu á atvinnurekandann, að hann dragi, drjúgan
hluta hluta útborgaðra launa meðlagsskuldara og greiði beint til
stofnunarinnar, jafnvel í hverjum mánuði um langt árabil. Lögum samkvæmt
ber atvinnurekandinn ábyrgð gagnvart Innheimstustofnun þegar umrætt
kröfusamband er komið á, en ekki meðlagsskuldarinn.

Samtök
meðlagsgreiðenda hafa gögn undir höndum og nokkur staðfest dæmi sem sýna að
atvinnurekendur hafa í nokkkrum tilfellum látið hjá líða að greiða frádregna
meðlagsskuld launþega til Innheimtustofnunar og haldið þeim þess í stað hjá
sér. Meðlagsskuldarar eru í slíkri stöðu grandalausir því það
skuldayfirlit sem Innheimtustofnun sendir meðlagsskuldurum gerir ekki grein
fyrir inngreiðslum til stofnunarinnar, heldur einungis höfuðstóllinn.
Halda skal því til haga að slík vinnubrögð samræmist ekki upplýsingaskyldu
stofnunarinnar, stjórnsýslulögum samkvæmt. Meðlagsskuldarar geta því ekki
séð með nokkrum hætti að meðlög séu ekki greidd enda lækkar höfuðstóllinn ekki
sem safnar dráttarvöxtum sem eru 23.4% að jafnaði.

Þau fyrirtæki
sem umræddir meðlagsskuldarar unnu hjá voru sett í gjaldþrotameðferð og að
gjaldþrotaskiptum loknum hafði Innheimtustofnun látið hjá líða að gera kröfur í
þrotabúin. Að loknum gjaldþrotaskiptum gerði Innheimtustofnun
meðlagsgreiðendum grein fyrir því að greiðslur höfðu aldrei borist til stofnunarinnar
þrátt fyrir að hún átti frumkvæði á að stofna til slíks kröfusambands. Í
kjölfarið gerði Innheimtustofnun nýjar kröfur á meðlagsskuldaranna þannig að
þeir þurfa greiða sömu meðlagskröfurnar tvisvar, sem í sumum tilfellum hlupu á
nokkrum milljónum.

Samtök
meðlagsgreiðenda telja framgöngu Innheimtustofnunar brjóta í bága við 5. gr.
laga nr. 54/1971 sem kveður á um kröfusamband Innheimtustofnunar og
atvinnurekanda og er því framganga stofnunarinnar bæði ólögleg og siðlaus að
mati samtakanna.

Mikilvægt er að
meðlagsskuldarar sem þurfa að sæta innheimtuhörku af þessu tagi séu meðvitaðir
um rétt sinn og þessarar ólögmætu framgöngu Innheimtustofnunnar, einkum þar sem
gjaldþrotum fyrirtækja hefur fjölgað til muna frá hruni.

Stjórn
Samtaka meðlagsgreiðenda.

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin:0cm;
mso-para-margin-bottom:.0001pt;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:”Times New Roman”;
mso-fareast-theme-font:minor-fareast;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;
mso-bidi-font-family:”Times New Roman”;
mso-bidi-theme-font:minor-bidi;}