Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
MicrosoftInternetExplorer4
Bónus var oftast með lægsta verðið þegar
verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í níu dagvöruverslunum víðsvegar um landið
mánudaginn 15. apríl. Kannað var verð á 59 algengum matvörum. Hæsta verðið var
oftast að finna hjá Hagkaupum en lægsta verðið var oftast að hjá Bónus. Í um
helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði vöru undir 25% en
dæmi eru um mun meiri verðmun á einstöku vörutegundum, t.d. er 50% verðmunur á
2 l. af Coke Cola, 50% verðmunur á kartöflumjöli og 135% verðmunur á frostnum
jarðaberjum.
Minnstur
verðmunur í könnuninni var á ¼ l. rjóma frá MS, sem var ódýrastur á 219 kr. hjá
Fjarðarkaupum en dýrastur á 228 kr. hjá Iceland, Nóatúni og Samkaupum Úrval,
verðmunurinn er 9 kr. eða 4%. Mestur verðmunur í könnuninni var á perum sem
voru ódýrastar á 225 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en dýrastar á 589 kr./kg. hjá
Víði, verðmunurinn er 364 kr. eða 162%.
Könnunin
var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum:
Bónus Holtagörðum, Krónunni Lindum, Nettó Akureyri, Iceland Engihjalla,
Víði
Hringbraut, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Hagkaupum Holtagörðum, Nóatúni
Hringbraut og Samkaupum – Úrval Ísafirði. Kostur Dalvegi neitar þátttöku
í könnuninni. Nánari upplýsingar um könnunina veitir Ólafur Darri
Andrason yfirmaður Hagdeildar ASÍ.