Samkomulag um verð á Ufsa

Náðst hefur samkomulag við LÍÚ um verð á Ufsa þegar afla er ráðstafað til eigin vinnslu eða afli seldur til skylds aðila. Samkomulagið sem gildir frá 15.júní 2010 – 1.janúar 2011 er tilkomið vegna bókana um fiskverð í síðustu kjarasamningum. Verðið skal endurskoðað reglulega eða að minnsta kosti mánaðarlega og skulu verðbreytingar meðal annars hafa hliðsjón af þróun aflaverðs samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.Viðmið á verði fyrir ufsa í júní skal vera eftirfarandi:Undirmál 50 kr/kgAð 1,7 kg 97 kr/kg1,7 kg – 3,5 kg 119 kr/kg3,5 kg og stærri 130 kr/kg