Samninganefndir SGS og Samiðnar samþykkja drög að samkomulagi

Samninganefnd
Starfsgreinasambands Íslands ( SGS ) kom saman til fundar í vikunni til að
fjalla um drög að samkomulagi ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins sem nú
liggur fyrir. Það var skýr niðurstaða fundarins að samþykkja
samkomulagið. Helstu atriði samkomulags ASÍ og SA fjalla um styttingu samningstímans til 30.
nóvember 2013 og hækkun iðgjalda til fræðslumála. Áætlað er að ASÍ og SA skrifi undir umrætt samkomulag mánudaginn 21. janúar. Með
þessu móti hefur verið komið í veg fyrir óvissu um stöðu kjarasamninga og munu umsamdar launahækkanir því koma til framkvæmda 1. febrúar
næstkomandi að öllu óbreyttu. Samkvæmt gildandi kjarasamningum eiga taxtalaun og lágmarkstekjutrygging að hækka um 11.000 krónur og önnur laun um 3,25%.

Hægt er að nálgst drög að samkomulagi og yfirlýsingu ASÍ og SA á heimasíðu Samiðnar.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands og Samiðn en eiga fulltrúa í samninganefnd SGS.