Verk Vest beinir því til félagsmanna sinna sem starfa hjá sveitafélögum að fylgjast með hvort kjarasamningsbundin eingreiðsla hafi skilað sér með launagreiðslum þann 1. febrúar. En samkvæmt ákvæði greinar 1.2.2 í kjarasamningi SGS við Launanefnd sveitafélaga eiga starfsmenn þeirra að fá sérstaka eingreiðslu kr. 25.000 miða við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012.