Sjómannasamband Íslands – Fréttatilkynning

Framkvæmdastjórn Sjómannasambands Íslands, sem Verk Vest er aðili að hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu vegna þeirra ávirðinga og rangfærslna sem haldið hefur verið á lofti gegn samtökum sjómanna undanfarna daga.“Undanfarna daga hefur
verið mikil umræða í fjölmiðlum um aðgerðir útvegsmanna gagnvart stjórnvöldum
vegna frumvarpanna sem nú liggja fyrir Alþingi um veiðigjald og stjórn
fiskveiða og þátt sjómanna í þeim aðgerðum.
Stjórn Sjómannasambands
Íslands sendi Alþingi umsagnir um þessi frumvörp þar sem afstaða samtakanna til
frumvarpanna kemur skýrt fram. SSÍ telur að með frumvarpinu um veiðigjöld á
útgerðina gangi stjórnvöld of langt í tillögu sinni um skattheimtu á útgerðina
og deilir því þessari skoðun með útvegsmönnum auk þess sem ýmislegt í
frumvarpinu um stjórn fiskveiða þarf að laga að mati Sjómannasambands
Íslands til að breytingarnar skaði ekki hagsmuni sjómanna.
Þó Sjómannasamband
Íslands hafi í mörgum atriðum svipaða sýn og útgerðin hvað þessi frumvörp
varðar er það alveg ljóst að samtökin eru ekki aðilar að aðgerðum útgerðarinnar
hvað þessi mál varðar.
Auk þess er rétt að fram
komi að kjarasamningar sjómanna hafa verið lausir frá upphafi ársins 2011 og
hefur ekki verið mikill vilji hjá útvegsmönnum til að ljúka samningagerð við
samtök sjómanna. Nú nýlega vísuðu útvegsmenn kjaradeilunni til
ríkissáttasemjara. Í kröfugerð LÍÚ á hendur sjómönnum kemur fram hörð krafa um
verulega lækkun á launum sjómanna óháð því hvort frumvarpið um veiðigjöld
verður að lögum eða ekki. Auk þess hafna útvegsmenn alfarið að bæta sjómönnum
þá kjaraskerðingu sem sjómenn hafa þegar orðið fyrir vegna afnáms
sjómannaafsláttarins. Jafnframt eru einstaka útgerðarmenn að þvinga fram fækkun
í áhöfnum skipa til að lækka launakostnað og telja þeir að þær aðgerðir komi
sjómönnum eða samtökum þeirra ekkert við. Fleira af þessum toga mætti nefna.
Í ljósi þess sem að framan er sagt, auk ýmissa annarra
þátta, má ljós vera að Sjómannasamband Íslands er ekki aðili að aðgerðum
útvegsmanna á sama tíma og barið er á rétti sjómanna í öðrum málum. Aðgerðir
útvegsmanna gagnvart stjórnvöldum eru því alfarið á þeirra ábyrgð.“