Sterkari saman! – fimmta þing Starfsgreinasambands Íslands

Í dag og á morgun, 14. og 15. október, fer fimmta reglulega þing Starfsgreinasambands Íslands fram á Hótel Natura í Reykjavík, en yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Sterkari saman í 15 ár“. Þegar formaður Starfsgreinasambandsins og Einingar-Iðju, Björn Snæbjörnsson, hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flytja ávörp.
Hér má lesa setningarræðu Björns Snæbjörnssonar formanns SGS.

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn.
Aðildarfélög SGS eru þessi:Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.
Þingfulltrúar Verk Vest á þingi SGS eru þau Finnbogi Sveinbjörnsson, Hnífsdal, Ólafur Baldursson, Ísafirði, Sólrún B. Aradóttir, Bíldudal og Sigurlaug Stefánsdóttir, Hólmavík.
Dagskrá 5. þings Starfsgreinasambands Íslands Hótel Natura í Reykjavík 14.-15. október 2015
Miðvikudagur 14. október 2015

Kl. 10:00 Setning og ávörp gesta

Eygló Harðardóttir, ráðherri félags- og húsnæðismála
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

Kl. 10:45 Yfirlit yfir þróun og horfur í kjaramálum, Ólafur Darri Andrason
Kl. 11:15

Álit kjörbréfanefndar, kosning þingforseta og ritara
Kosning nefndanefndar
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS 2013-2015
Ársreikningar sambandsins 2013 og 2014

Kl. 11:45 Matarhlé
Kl. 13:00 Kynning á ályktunum, lagabreytingum, starfsáætlun og fjárhagsáætlun Lagabreytingar, fyrri umræða
Kl. 13:30 Almennar umræður
Kl. 15:00 Kaffihlé
Kl. 15:30

Nefndanefnd kynnir niðurstöður sínar
Nefndastörf (Kjaranefnd, Starfsháttanefnd, Laganefnd, Kjörnefnd, Atvinnunefnd og Húsnæðisnefnd)

Kl. 18:00 Matur

Fimmtudagur 15. október 2015

Kl. 09:00 Lagabreytingar, síðari umræða og afgreiðsla
Kl. 10:00

Almenn umræða
Afgreiðsla ályktana frá nefndum
Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar
Ákvörðun um skatthlutfall

Kl. 12:30 Matarhlé
Kl. 13:30 Afgreiðslu mála fram haldið
Kl. 14:30

Kosning formanns SGS
Kosning varaformanns SGS
Kosning 5 aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning 5 varamanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning endurskoðenda og félagslegar skoðunarmanna reikninga
Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd)

Kl. 16:00 Þingslit