Stöðugleika- og velferðarsamningur í höfn

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sem er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) og Sambandi iðnfélaga (Samiðn) hefur undirritað nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Samningurinn var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag. Um er að ræða langtímasamning en gildistími samningsins er frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028.
Kjarasamningur – undirritað eintak
Stöðugleika- og velferðarsamningur
Meginmarkmið samnings 

Lækkun verðbólgu og vaxta með samstilltu átaki verkalýðshreyfingar, ríkis, atvinnurekenda, sveitarfélaga og annarra​.
Endurreisn tilfærslukerfa heimila vinnandi fólks​.
Kaupmáttaraukning verði á samningstímanum.

 Launahækkanir 
Hækkanir eru á formi blandaðrar leiðar krónutölu og prósentu. Launahækkanir koma til áhrifa á fjórum dagsetningum með árs millibili á samningstíma.

febrúar 2024 3,25% eða að lágmarki 23.750 kr.

janúar 2025 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.

janúar 2026 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.

janúar 2027 3,5% eða að lágmarki 23.750 kr.

Krónutöluhækkun á samningstíma er 95.000 kr. sem jafngildir 24% hækkunar lægstu launa. 
Aðrir kjaratengdir liðir taka almennum hækkunum í kjarasamningi. 
Ár            Orlofsuppbót         Desemberuppbót
2024​       58.000​ kr.               106.000​ kr.
2025​       60.000​ kr.               110.000​ kr.
2026​       62.000​ kr.               114.000​ kr.
2027​       64.000​ kr.               118.000​ kr.
Forsenduákvæði 
Samningurinn stendur og fellur með því að markmið um lækkun verðbólgu náist, sem aftur eru forsenda vaxtalækkunar. Til að styrkja forsendur og markmið kjarasamninganna mun sérstök launa- og forsendunefnd taka þegar til starfa. Verkefni nefndarinnar er að fylgjast með framvindu þeirra þátta í efnahagslífinu sem áhrif geta haft á markmið samningsins, leggja formlegt mat á forsendur kjarasamningsins og eftir atvikum semja um viðbrögð við forsendubresti sem treysta forsendur samningsins og stuðla að því að hann haldi gildi sínu. 
Einnig eru í samningnum tvö forsenduákvæði sem koma snúa að annars vegar að vörn gegn launaskriði og hins vegar tryggingu launafólks á hlutdeild í framleiðni aukningu.
Framlag stjórnvalda
Framlag stjórnvalda er mikilvægur hluti af ávinningi kjarasamningsins. Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerðaáætlun sem felur í sér fjárframlög til ýmissa mála sem gagnast vinnandi fólki. Er þar um að ræða aukningu ríkisútgjalda um 20 milljarða á ári. Helstu atriðin í framlagi stjórnvalda eru: 
Húsnæðisstuðningur

Sérstakur vaxtastuðningur vegna hás vaxtakostnaðar
Húsnæðisbætur – Grunnfjárhæð hækkar. Sérstök viðbót miðast að því að styðja betur við fjölmennari fjölskyldur

 Barnafjölskyldur

Barnabætur, markmiðið er að fjölga viðtakendum barnabóta og að skerðingarmörkin verði hækkuð í átt að miðtekjum
Fæðingarorlof – Hámarksupphæð hækkar úr 600.000 kr. í 900.000 kr. á tímabilinu
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

 Önnur atriði

Gjaldskrár hins opinbera – Ríkið skuldbindur sig til að hækka ekki umfram 2,5% á árinu 2025. Tilmæli til sveitarfélaga um að endurskoða áður útgefnar hækkanir og halda þeim innan 3,5% vegna barnafjölskyldna.

Ítarlegt kynningarefni verður birt hér á heimasíðunni næstu dag og í kjölfarið fer fram rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn meðal félagsfólks. Niðurstaða afgreiðslu samningsins á að liggja fyrir ekki síðar en miðvikudaginn 20. mars næstkomandi.