ÞETTA ER EKKI RÉTTLÁTT!

Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi. Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana.
Hækkun á matvælumHækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum.
HeilbrigðismálMeð meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda.
MenntamálFyrirheit um eflingu starfs-, verk- og tæknimenntunar eru svikin og möguleikar fólks á vinnumarkaði með litla formlega menntun til að sækja sér nám eru skertir verulega.
StarfsendurhæfingNiðurskurður til starfsendurhæfingar er aðför að fólki sem veikist eða slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.
AtvinnuleysistryggingarStytting bótatímabils er fordæmalaus aðför að atvinnulausu fólki og mun auka enn á fátækt í landinu.
HúsnæðismálEkki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að mæta miklum vanda í húsnæðismálum.
Jafnræði í lífeyrismálumSkert framlög til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyrissjóða valda skertum lífeyrisgreiðslum til félagsmanna ASÍ.
SkattalækkanirRíkisstjórnin hefur að undanförnu afsalað ríkissjóði tekjum fyrir tugi milljarða króna til að bæta hag þeirra ríkustu.