Þingmönnum sendar ályktanir frá þingi SGS

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

MicrosoftInternetExplorer4

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin:0cm;
mso-para-margin-bottom:.0001pt;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:”Times New Roman”;
mso-fareast-theme-font:minor-fareast;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;
mso-bidi-font-family:”Times New Roman”;
mso-bidi-theme-font:minor-bidi;}

Alþingismönnum hafa verið sendar ályktanir frá þingi SGS er varða kjör og hasmuni verkafólks á Íslandi. Hér fyrir neðan má lesa stutta samantekt um þessar ályktanir. Einnig er hægt að nálgast ýtarefni með því að smella á meira við hverja ályktun. Ályktun um efnahags- og atvinnumálÞing SGS hefur miklar áhyggjur af stöðu efnahags- og
atvinnumála. Það sé forgangsmál að auka arðbærar fjárfestingar svo unnt sé að
örva hagvöxt og skapa störf. Stjórnvöld, atvinnulíf og fjármálakerfið eru hvött
til þess að fá hjól atvinnulífsins til að snúast hraðar með því að stuðla að
auknum fjárfestingum.Meira.
Ályktun um kjaramálÍ þessari ályktun er ríkisstjórnin hvött til þess að standa
við þau loforð sem hún gaf út samhliða undirritun kjarasamninga í vor. Þingið
bendir á að það sé ákveðin hætta á að forsendur kjarasamninga séu brostnar hvað
varðar verðbólgu, gengi krónunnar og framkvæmdir til að vinna bug á
átvinnuleysi. Þá valda ákveðnir þættir í nýútkomnu fjárlagafrumvarpi
vonbrigðum.Meira.
Ályktun um séreignalífeyrissparnaðÞing SGS mótmælir harðlega vanhugsaðri fyrirætlun
stjórnvalda að lækka skattfrelsi iðgjalda í séreignsjóði, þar sem slíkt mun
hafa neikvæð áhrif á langtímasparnað sem er forsenda aukinnar fjárfestinga.
Aðildarfélög SGS munu hvetja sína félagsmenn til að hætta að leggja í
séreignasparnað af eigin launum, því annars lendir fólk í tvísköttun.Meira.Ályktun um málefni heimilannaÞing SGS hefur miklar áhyggjur af erfiðari stöðu heimila í
landinu og eru fjármálastofnanir hvattar til að axla sína ábyrgð á skuldavanda
heimilanna. Það sé mikilvægt að skapa þá efnahagsumgjörð að hægt sé að lækka
vexti til samræmis við það sem gerist í nágrannalöndum Íslands. Þá telur þing
SGS að mikilvægt að stjórnvöld (ríki og sveitarfélög) endurskoði tekju- og
eignatengingar í vaxtabóta-, barnabóta-, og húsaleigubótakerfinu.Meira.
Ályktun um forsendubrestÞing SGS vill að bankar og fjármálastofnanir leiðrétti
skuldir heimilanna vegna þess forsendubrests sem varð á lánum heimila við
efnahagshrunið 2008. Meira.
Ályktun um atvinnuleysisbæturÞing SGS harmar afstöðu stjórnvalda gagnvart atvinnulausum
sem endurspeglast í nýframkomnu fjárlagafrumvarpi og krefst þess að fallið
verði frá þeim áformum. Þess er krafist að stjórnvöld hækki bætur í samræmi við
hækkun launataxta þeirra tekjulægri og greiði atvinnuleysisbætur í allt að
fjögur ár.Meira.
Ályktun um jafnréttismálÞing SGS leggur áherslu á að kynbundinn launamunur sem
viðgengst á íslenskum vinnumarkaði sé ólíðandi og mikilvægt sé að aðilar
vinnumarkaðarins finni leiðir til að útrýma þessu ranglæti.Meira.