Þjónustufulltrúi 50% starf – Verkalýðsfélag Vestfirðinga

Verkalýðsfélag Vestfirðinga auglýsir eftir þjónustufulltrúa í 50% stöðu á skrifstofu félagsins á Ísafirði.
Ábyrgðasvið:

Almenn þjónusta við félagsmenn
Aðstoð í vinnuréttindamálum
Upplýsingagjöf til félagsmanna
Aðstoð við skýrslugerð
Aðstoð við innheimtu og rafrænar skráningar
Símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf
Vinnustaðaheimsóknir
Hæfniskröfur:

Menntun sem nýtist í starfi
Þekking á starfsemi stéttarfélaga er kostur
Reynsla af uppgjörsvinnu, skýrslugerð og afstemmingum er kostur
Þekking á Dk bókhaldskerfi er kostur
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. Önnur tungumál kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
Um 50% starf er að ræða frá kl.12:00-16:00 og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf ekki seinna en 1. desember 2016.Nánari upplýsingar veitir:Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is

Umsóknarfrestur til: 25. september 2016